Myndir af bílum sem taka tvö stæði í bílahúsi
15.1.2016 | 10:51
Flestir lifa lífinu þannig að þeir vilja leggja af ósiði og bæta sig, þar með að taka ríkara tillit til annarra. Sá sem þetta ritar er jafn breyskur og aðrir en reynir hvað hann getur að vera hjálpsamur, málefnalegur ... en ekki tekst það nú alltaf sem skyldi.
Um þessar mundir hef ég vinnuaðstöðu á Laugaveginum og legg bílnum í Bílastæðishúsið á Hverfisgötunni. Listin að leggja í stæði er mörgum erfið, bílastæðin heldur mjó og oft þyrfti maður á góðri megrun að halda til að geta sæmilega komist út úr bílnum.
Það er hins vegar ekki stóra vandamálið heldur þeir sem ekki höndla þá list að leggja bíl sínum vel í stæði eða þá að þeir hreinlega nenna því ekki.
Daglega bölvar maður þeim sem leggja illa, raunar taka yfir tvö bílastæði með því að staðsetja bíl sinn nærri því á hvítri línu sem afmarkar þau og stundum er hreinlega lagt á línuna eða yfir hana. Tvö stæði tekin.
Hér eru nokkrar myndir sem ég hef tekið frá því 17. desember og fram til dagsins í dag. Hér kennir margra grasa.
Ekki er aðeins fínu bílunum illa lagt heldur eru þetta alls kyns bílar.
Viðbáran er eflaust sú að fólk er að flýta sér, má ekki vera að því að leggja almennilega. Sumir eru rétt að skreppa, verða bara nokkrar mínútur.
Betra er að orða þetta rétt. Þeir sem ekki kunna að leggja í stæði ættu ekki að hafa réttindi til að aka bíl. Sá sem ekki getur stjórnað bíl undir svona kringumstæðum er slæmur bílstjóri. Sá sem hugsar fyrst og fremst um sjálfan sig og tekur ekki tillit til annarra er slæmur bílstjóri. Sá sem er að flýta sér svo mikið að hann geti ekki farið eftir reglum er slæmur bílstjóri.
Hér eru nokkrar myndir teknar í bílastæðahúsinu og sýna hvernig slæmir ökumenn leggja bílum sínum.
Af hverju fara stöðumælaverðir ekki inn í bílahúsin og sekta þá sem taka tvö stæði?
Með því að klikka einu sinni á mynd má stækka hana og þá má betur sjá smáatriðin.
Bálför David Bowies
14.1.2016 | 11:27
Blaðamenn kunna ekki allir nærfærnislegt orðalag þegar kemur að andláti einstaklings og jarðarför.
Um hinstu för þess ágæta tónlistamann David Bowie segir til dæmis á mbl.is:
Að sögn Daily Mail voru líkamsleifar söngvarans brenndar í kyrrþey ...
Á visir.is er orðalagið um sama atburð:
Lík breska listamannsins David Bowie hefur verið brennt til ösku í New York.
Á pressan.is er orðalagið allt annað:
Breskir fjölmiðlar segja að bálför David Bowie hafi farið fram nokkrum klukkustundum eftir andlát hans á sunnudaginn
Líklega myndu flestir segja að bálför sé snyrtilegra og hóflegra orð en flest annað þó svo að annað sé ekki beinlínis rangt.
Vart þörf á að taka það fram að lík hafi verið brennt til ösku nema að hugsanlega séu aðrir kostir mögulegir við bálför. Svo mun þó ekki vera.
Hins vegar eru líkamsleifar varla rétt orð í þessu tilviki og varla þörf á að skýra það orð nánar.
Þetta er hér nefnt vegna þess að taktleysi og ónærgætni gætir oft hjá sumum blaðamönnum. Þeir kunna ekki að segja frá og skilja ekki að blæbrigði frásagnarinnar eiga að vera ólík eftir því hvað um er fjallað hverju sinni. Ugglaust er það slæmt að blaðamenn skilji þetta ekki en verra er ef enginn segir þeim til.
Hér er ein báran stök í jarðskjálftum eða þannig ...
13.1.2016 | 17:23
Katla er í andslitrunum, Hekla á dánarbeði, Bárður er búinn í bili ...
Hvað á ég við?
Jú, jarðskjálfta á landinu. Það er einhvern veginn þannig, sýnist okkur í Landsambandi þekkingarsnauðra jarðfræðiáhugamanna, að fátt áhugavert sé að gerast.
Á meðfylgjandi korti, sem kemur best út ef smellt er á það, merkja deplarnir jarðskjálfta. Þeir raða sér eftir réttum línum gosbeltisins sem gengur í gegnum landið. Þegar nánar er að gáð er lítið líf í helstu brotabeltum landsins nema fyrir norðan, í Tjörnesbrotabeltinu. Þar iðar allt af fjöri undir niðri.
Jarðskjálftar hér á landi haga sér eins og sauðfé. Þeir koma í hópum en bara einn birtist í einu. Þegar allt leikur á reiðiskjálfi fyrir norðan er ekkert að gerast annars staðar. Á sama tíma eru aldrei hrinur á Reykjaneshrygg, í Mýrdalsjökli, Bárðarbungu og á Tjörnesbrotabeltinu. Þetta er svo skrýtið að aðeins ein báran sé stök í jarðskjálftum.
Annað sem vekur undrun er að stórlega dregur úr skjálftum yfir vetrartímann. Lítið bara á Mýrdalsjökul, Kötlu. Þar er allt með kyrrum kjörum enda harðfrosið ofan í dýpsta helv...
Gaman að geta sagt þetta allt saman. Svo koma jarðfræðingarnir og eyðileggja allt fyrir manni. Auðvitað er Hekla ekki dauð. Mælingar sýna að hún er að þrútna út. Sama er með Bárðarbungu. Málið er að jarðfræðingar stóla á fleiri tæki en jarðskjálftamæla.
Ég set vit mitt og þekkingu á draumspakan mann sem segir að brátt dragi til tíðinda. Ég næ ekki að draga neitt upp úr honum frekar en fyrri daginn. Hann er raunar bestur að greina það sem liðið er.
Landsamband þekkingarsnauðra jarðfræðiáhugamanna er ekki sammála þeim draumspaka. Það ályktaði með þremur atkvæðum gegn tveimur að hvorki stórir skjálftar eða eldgos verði fyrr en í fyrsta lagi í ágúst á þessu ári eða næsta.
Landvernd og Ferðafélagið ráðast gegn öflugustu landgræðslujurtinni
8.1.2016 | 16:43
Einu sinni var Landvernd í fararbroddi þeirra sem vildu græða upp landið. Félagið var stórhuga, útvegaði grasfræ og áburð og hvatt fólk til að grípa poka á bensínstöð á leið í sumarfríið og verða þannig að einhverju gagni.
Þessi tími er löngu liðinn. Nú hefur Landvernd fengið ótrúlegasta bandamann sem hugsast getur í svo óskiljanlegt verkefni að engu tali tekur. Eftirfarandi auglýsing birist í ferðaáætlun FÍ undir fyrirsögninni Lúpínuferð með Landvernd:
Fararstjóri: Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Ferðafélag Íslands og Landvernd hafa um árabil átt farsælt samstarf um ferðir á viðkvæm svæði sem ratað hafa í umræðuna. Í þessari ferð verður sjónum beint að lúpínunni og ekið inn á hálendið, þar sem þátttakendur fræðast um útbreiðslu plöntunnar og taka höndum saman við að eyða henni.
Verð: 6.000/9.000. Innifalið: Rúta og fararstjórn.
Mér er eiginlega öllum lokið. Þarna sameinast tvö þekkt og virt félög krafta sína í að eyða lúpínu, afkastamestu landgræslujurt sem þekkist. Hvernig getur svona gerst? Síðan hvenær urðu Landvernd Ferðafélag Íslands gróðureyðingafélög? Guðmundur sá sem nefndur er fararstjóri starfar sem framkvæmdastjóri Landverndar.
Tötrar Íslands
Sérfræðingar segja nú að við landnám Íslands hafi það bókstaflega verið skógi vaxið rétt eins og haldið er fram í Landnámu. Talið er að skógar hafi þakið um 15-40% landsins í stað um 1% nú og raunar sé það svo að gróður hafi þá þakið allt að þremur fjórum hlutum landsins.
Síðan hefur margt gerst. Til að þjóðin hafi getað lifað af í landinu þurfti hún eldivið og þar að auki voru skógar landsins ótæpilega beittir. Þekkingin var ekki meiri en sú að ágangur forfeðra okkar á gróðurríkið var slíkur það nær gjöreyddist.
Þeir eru til sem í dag dásama gróðurleysur Íslands rétt eins og það sé hið eina og rétta ástand landsins. Þeir eru einnig til sem hamast svo hatramlega gegn lúpínunni að þeir skipuleggja ferðir til að slíta hana upp. Landvernd og Ferðafélag Íslands ætla nú að bætast í hóp hryðjuverkamanna í íslenskri náttúru. Eins og ekki hafi nóg gerst á undanförnum öldum og í dag sé ekki við nógu ramman reip að draga í náttúruverndarmálum þó þetta komi nú ekki líka til.
Lúpínan græðir landið hraðar en annar gróður
Hvað er lúpína og hvers vegna telst hún landgræðslujurt. Jú, hún er þeim kostum búin að hún framleiðir köfnunarefni, nitur, úr andrúmsloftinu og bætir þannig jarðveginn. Fyrir vikið auðveldar hún öðrum jurtum lífið, gerir þeim kleift að vaxa á þeim stöðum sem enginn gróður hefur vaxið í hundruð ára. Ófrjóir melar blómstra með lúpínu og á eftir kemur annar gróður.
Takið til dæmis eftir áreyrum í Morsárdal þar sem lúpínan hefur auðveldað birkiskóginum að breiðast út.
Sjáið Vatnshlíð við Hvaleyrarvatn fyrir ofan Hafnarfjörð sem fyrr á árum hafði orðið uppblæstri að bráð. Þar var lúpínu sáð fyrir nokkrum áratugum og nú er þarna gróskumikil og fallegur birkiskógur og margvíslegur annar lággróður í frjósömum moldarjarðvegi sem að mestu er til kominn vegna hennar.
Takið eftir ævintýrinu í Heiðmörk fyrir ofan Reykjavík. Þar hefur verið sýnt fram á að lúpínan hafi stuðlað að auknum vexti gróðurs og síðan hafi hún hörfað. Þetta má glöggt sjá þegar bornar eru saman loftmyndir frá mismunandi tímum.
Á blómatíma Landverndar átti að græða landið með grasi og tilbúnum áburði. Þetta var reynt með miklum tilkostnaði og erfiðleikum. Á vegum Landgræðslunnar var í áratugi flogið með grasfræ og og þjóðin fylgdist með stolt með. Sagt er að milljörðum hafi verið varið í landgræslu en árangurinn var allof lítill miðað við allt erfiðið. Um það veit þjóðin eflaust lítið.
Lúpínan breytir til hins betra
Lúpínan vex hratt, dreifir sér víða, haðar en allar aðrar jurtir og það leggja margir henni til lasts en aðrir lofa. Ágúst H. Bjarnason segir í afar fróðlegri vefsíðu sinni, Fróðleikur um flóru og gróður (feitletrun er mín):
Mörgum er í nöp við lúpínu. Ýmsar ástæður valda því. Sumum finnst hún ljót, en við því er ekkert að gera. Aðrir vilja halda í ósnortna mela og telja þá höfuðprýði landsins. Slík afstaða lýsir ótrúlegu skilningsleysi á mikilvægi gróðurs yfir höfuð og er erfitt við slíku að gera. Og svo eru þeir, sem vilja, að melarnir fái að vera í friði og gróa upp af sjálfsdáðum.
Mergurinn málsins er sá, að sumt fólk óttast, að lúpínan útrými öðrum tegundum. Það er náttúrlega fjarstæða, en hitt er sönnu nær, að hún breyti einu gróðurfélagi í annað. Með tíð og tíma gisna lúpínu-breiðurnar og aðrar tegundir sækja í sig veðrið. Þetta er breytilegt eftir landshlutum, en á Suðvesturlandi og Suðurlandi eru dæmi um, að hrútaberjaklungur og blágresi hafi lagt undir sig uppgræddar lúpínubreiður. Meira að segja hefur sjaldgæf, friðlýst plöntutegund, ferlaufungur (krosslaufi), haslað sér völl innan um lúpínu á einum stað.
Margir þeirra sem leggjast gegn lúpínu halda því fram að gróðurfar verði einsleitt fái hún að vaxa óáreitt. Þetta er auðvitað rangt vegna þess að lúpínan auðvelda öðrum tegundum jurta að ná fótfesti. Ágúst H. Bjarnason segir um þetta á vefsíðu sinni:
Vissulega má taka undir það að nokkru leyti, að lúpína er þegar orðin all áberandi í gróðurríki landsins. Meginorsökina má rekja til þess, hve landið er illa farið, gróður og jarðvegur víða horfinn út í hafsauga. Það eru slík svæði, sem lúpínan leggur undir sig, og getum við því fáum um kennt nema okkur sjálfum.
Skynsamlegast er að hefja nú þegar öfluga skógrækt á öllum láglendismelum og lúpínuökrum og planta á hverjum stað þeim tegundum, sem reynslan hefur kennt mönnum að þrífast þar bezt.
Á 20-40 árum munum við þá endurheimta frjósamt land, þar sem nú ríkir auðnin ein, og lúpínan mun hörfa í skugga trjánna. Þegar melarnir hafa klæðzt trjágróðri, er unnt að breyta ákveðnum hlutum þeirra í akurlendi eða nýta sem beitiland fyrir búsmala. Þetta ferli með hjálp lúpínu tekur ekki nema hálfa mannsævi.
Ræktun með lúpínu er töfrum líkust
Stórmerkilegar greinar og hugleiðingar um kosti lúpínu sem landgræðslujurtar er að finna í skrifum Gunnars Einarssonar, sauðfjárbónda að Daðasstöðum, sem eru skammt sunnan við Kópasker. Hann hefur á víðaáttumiklu landi sínu unnið að uppgræðslu og notar lúpínuna óspart með stórkostlegum árangri. Þessar greinar má finna á Facebook undir hópnum sem kallar sig Vinir Lúpínunnar.
Gunnar segir meðal annars í grein á landbúnaður.is:
Mér leist strax mjög vel á lúpínu sem landbótajurt, þegar ég kynntist henni sem unglingur fyrir ofan Hafnafjörð. Áður en ég varð bóndi fékk ég fjölskylduna með mér til að týna lúpínufræ, sem ég svo sáði með góðum árangi. Ég sá líka, að eftir að við fluttum hingað norður, að lúpínan gæti gert okkur mögulegt að rækta melana margfalt hraðar upp.
Þrátt fyrir góðan ásetning fórum við ekki að nota lúpínu til ræktunar fyrr en við gátum fengið fræ frá landgræðslunni. Ræktunin með lúpínunni hefur verið töfrum líkust. Það er geysilega gaman að sjá lúpínuna breyta öllu þessu landi, sem áður voru ófrjósamir melar, í gott beitiland.
Frá barnæsku hef ég fylgst með sigri hrósandi landgræðslumönnum með grasfræ og áburð sem telja okkur trú um velgengni í uppgræðslu lands - og hrifist með. Þó vissulega hafi tekist að græða upp á ákveðnum stöðum, oft með ærinni fyrirhöfn og kostnaði, hefur það þó ekki farið framhjá þeim sem ferðast um landið að tötrarnir hafa lítið breyst. Hugsanlega hefur hlýnandi veður á síðustu tveimur áratugum hjálpað til að styrkja og auka gróður. Dæmi um slíkt sér maður glöggt á samanburð á myndum. Að öðru leyti hefur ekki mikið gerst.
Á síðustu árum hefur orðið gjörbreyting í gróðurframvindu hér á landi og þá sérstaklega með tilkomu lúpínunnar. Víða um land sér maður breytingar, kominn er gróður þar sem áður voru gróðuleysur. Jafnvel hátt í fjallahlíður sér maður blómstrandi lúpínu.
Svo gerist það að á Facebokk sjást myndir af sigri hrósandi hryðjuverkamönnum með lúpínu í höndunum sem þeir hafa rifið upp úr gróðurlausum melum. Í þennan litla hóp virðist Landvernd og Ferðafélagið ætla að skipa sér í.
Er nema von að maður örvænti um framtíð þjóðar í gróðurlausu landi. Það er þó huggun harmi gegn að lúpínan er orðin svo útbreidd hér á landi að útilokað er að hafa hemil á henni. Verkefni Landverndar og Ferðafélagsins eru því fyrirfram gjörtöpuð - og það er vel.
Hitt er verra að félögin tvö skuli leggja í þessa vegferð í stað þess að efna til kynningar og verkefna í uppgræðslu á þeim stöðum sem lúpínan hefur náð fótfestu, nefna má skógrækt. Um slíka krafta myndi miklu muna.
Á annað hundrað orð yfir vind
7.1.2016 | 12:03
Stundum hvarflar að manni að orðaforði margra sem starfa í fjölmiðlum sé ansi rýr. Þetta datt mér í hug þegar ungi veðurfræðingurinn sagði að á landinu væri vindasamt. Þeir eldri hefðu líklega sagt að víða væri hvasst enda fjölmörg orð og orðasambönd til sem lýsa veðri, ekki síst vindasemi.
Raunar eru til á annað hundrað orð sem lýsa vindi. Nefna má þessi:
- aftakaveður
- andblær
- andi
- andvari
- áhlaup
- bál
- bál
- bálviðri
- belgingur
- blástur
- blær
- blæs
- brimleysa
- derringur
- drif
- dúnalogn
- dús
- fellibylur
- fjúk
- fok
- foráttuveður
- galdraveður
- gambur
- garri
- gerringur
- gjóla
- gjóna
- gjóstur
- gol
- gola
- gráð
- gustur
- hrakviðri
- hregg
- hríð
- hroði
- hrök
- hundaveður
- hvassviðri
- hviða
- hvirfilbylur
- hægviðri
- illviðri
- kaldi
- kali
- kári
- kul
- kuldastormur
- kuldastrekkingur
- kylja
- kyrrviðri
- kæla
- lágdeyða
- ljón
- logn
- lægi
- manndrápsveður
- mannskaðaveður
- músarbylur
- nepja
- næðingur
- næpingur
- ofsarok
- ofsaveður
- ofsi
- ofviðri
- ókjör
- óveður
- remba
- rembingur
- rok
- rokstormur
- rumba
- runta
- ræna
- skakviðri
- slagveður
- snarvindur
- snerra
- snerta
- sperra
- sperringur
- stilla
- stormur
- stólparok
- stólpi
- stórastormur
- stórveður
- stórviðri
- strekkingur
- strengur
- streyta
- streytingur
- stroka
- strykur
- súgur
- svak
- svali
- svalr
- sveljandi
- svipur
- tíkargjóla
- túða
- veðrahamur
- veðurofsi
- vindblær
- vindkul
- vindsvali
- vindur
- vonskuveður
- ördeyða
- öskurok
Í mörgum fræðigreinum tíðkast töluleg söfnun upplýsinga og í ljósi þeirra er hægt að draga nokkuð skýrar ályktanir af stöðu mála. Þetta á til dæmis við í mörgum raunvísindagreinum og einnig hagfræði.
Skyldu íslenskufræðingar rannsaka málfar með tilliti til orðaforða, fjölda orða til dæmis í bókum, greinum eða fréttum? Af ofangreindum orðum yfir andrúmslofti á hreyfingu, nota flestir orðið vindur. Þekkir fólk ekki fleiri orð? Spurningin er betur orðuð svona: Hvers vegna notar fólk ekki fleiri orð en þetta númer 109?
Fyrir um áratug var könnun gerð á orðafjölda í ritmálssafni Orðabókar Háskólans en í þeirri skrá voru öll orð sem þá hafði verið safnað úr prentuðu máli frá 1540 og fram á miðjan níunda áratuginn. Þessa könnun má hafa til viðmiðunar um orðafjölda í málinu með þeim fyrirvara að talsvert hefur bæst við síðar, til dæmis samsetningar af ýmsu tagi og nýyrði, ýmist búin til af orðanefndum eða sprottin upp í þjóðfélaginu þegar þörfin kallaði. Í ritmálssafninu voru þá rúmlega 610.000 orð. Af þeim voru rétt tæp 43.000 grunnorð, það er að segja orð sem hvorki voru forskeytt (til dæmis and-vari, til-brigði), viðskeytt (til dæmis góð-legur, breyt-ing) né samsett (snjó-bretti, hjóla-skauti). Samsett orð reyndust rétt tæplega 519.000 og um rúmlega helming þeirra átti Orðabókin aðeins eitt dæmi.
Þarna eru ekki talin með orð sem eru í talmálssafni Orðabókarinnar en í því safni eru orð sem ekki eru sótt í prentað mál heldur til heimildarmanna Orðabókarinnar. Í því safni eru rúmlega 50.000 orð og má áætla að dæmi um þriðjung þeirra sé ekki að finna í ritmálssafni.
Svo segir Guðrún Kvaran, íslenskufræðingur, á Vísindavefnum undir fyrirsögninni Hvað eru til mörg orð í íslensku?.
Guðrún skrifaði líka um fjölda orða yfir snjó:
Í íslensku eru til mörg orð um snjó og snjókomu. Mikilvægt var hér áður fyrr, þegar fólk fór landshluta á milli ýmist gangandi eða á hestum, að lýsing á færi í snjó væri sem gleggst. Mjöll er notað um nýfallinn snjó og ef snjórinn er mjög laus í sér er talað um lausamjöll. Nýfallinn snjór er líka nefndur nýsnævi. Harðfrosin snjóbreiða er nefnd hjarn. Skari er notað ef efsta lag snjóbreiðu er frosið, og fari menn eða skepnur í gegnum lagið er talað um áfreða, brota, ísskel eða fastalæsing. Djúpur snjór er kallaður kafsnjór, kafald og kafaldi og smágert kafald kallast líka kafaldshjastur. Mjög blautur, djúpur snjór er stundum nefndur bleytuslag og hálfbráðinn snjór kallast krap og blotasnjó.
Él er skammvinn snjókoma oft með vindi og dimmt él er sums staðar kallað moldél. Snjógangur er éljagangur eða snjókoma með hléum en snjóhraglandi er kalsanæðingur með slyddu eða hagli og þekkist líka um það orðið snjóbörlingur. Hundslappadrífa er mikil og stórflygsótt snjókoma í logni, einnig nefnd skæðadrífa eða logndrífa. Fyrir vestan er snjókoma í logni einnig nefnd kafaldsmyglingur, hjaldur, lognkafald eða ryk. Hríð er snjókoma í vindi og þykkt hríðarveður er fyrir norðan nefnt kaskahríð. Lenjuhríð þekkist einnig fyrir norðan um fremur litla hríð en blotahríð er slyddu- eða krapahríð. Ofankoma er notað um hvers kyns úrkomu en oftast um snjókomu, él og slyddu en ofanhríð er haft um mikla snjókomu án þess að það skafi. Smáúrkoma eða él er kallað fukt og þá er sagt að hann fukti.
Bylur er stormur með ákafri snjókomu, og einnig eru notuð um það kafaldsbylur og kafaldshríð en moldbylur er alveg svartabylur þannig að ekki sér út úr augum, í senn stormur, ofankoma og skafrenningur.
Skafrenningur er snjór, sem fýkur með jörðu, líka nefndur neðanbylur, skafald, skafkafald, snjófok, snjódrif og kóf. Fjúk, snjódríf, drift, fjúkburður og fýlingur eru orð notuð yfir skafrenning ef vindur er hægur. Skafbylur, skafhríð, skafmold og skafningur eru öll notuð um skafrenning í miklum vindi og fyrir vestan þekkist sviðringsbylur um hið sama.
Þegar ofan fellur mjög blautur snjór, sem oft er nær því að vera rigning, er talað um slyddu, bleytukafald, klessing eða slytting.
Íslenskan er afar fagurt mál eins og sjá til dæmis má af ofangreindu. Því er sorglegt ef ungt fólk les ekki bækur. Hvergi annars staðar fæst viðunandi orðaforði sem hverjum og einum er nauðsyn að hafa til taks í daglegu lífi.
Rýr orðaforði birtist meðal annars í því að ungt fólk bregður fyrir sér ensku til að hugsun þeirra komist nú örugglega til skila. You understand what I mean?
Ofspáð Kötlugos er löngu gleymt , en ...
6.1.2016 | 10:50
Oft er sagt að fólk gleymi fljótt. Raunar er það þannig að fjölmiðlar gleyma eða segja ekki frá og þar af leiðandi gleymist hverfur ýmislegt úr minni almennings.
Man einhver eftir eldgosunum á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli? Jú, auðvitað. Aðeins tæp sex ár eru frá þessum umbrotum sem voru bara nokkuð skemmtileg fyrir þorra almennings, en olli engu að síður miklum skaða undir Eyjafjöllum og þar fyrir austan.
Vorið 2010, eftir að gosinu í Eyjafjallajökli lauk spáðu margir að um haustið myndi Katla gjósa. Fjölmiðlar hér innanlands birtu ófáar fréttir um hugsanlegt gos í Kötlu og svo rammt kvað af þessum spádómum að jafnvel fjölmiðlar á Bretlandi misstu sig gjörsamlega í dómsdagsumfjöllunum sínum.
Jæja, og tíminn líður eins og honum ber skylda til. Núna, tæpum sex árum síðar, bólar ekkert á þessu margspáða eða ofspáða gosi í Kötlu. Þeir sem fylgst hafa með jarðskjálftamælum sjá eitthvað svipað og sést á myndinni af jarðskjálftavakt Veðurstofu Íslands. Svo til engar hræringar í Mýrdalsjökli og nágrenni. Raunar er það svo að skjálftum í jöklinum hefur síst fjölgað.
Hvers vegna ættu nú fjölmiðlar að fjalla eitthvað um það sem greinilega er ekki fréttaefni? Auðvitað er engin ástæða til þess. Hins vegar er ábyrgð fjölmiðla afar mikil og auðvelt fyrir einn þeirra að fara að missa rökhugsun út af hugsanlegu Kötlugosi og þá fylgja oft hinir með og fyrr en varir á að verða eldgos í jöklinum. Vandamálið er bara að Katla fylgist ekki með fjölmiðlum.
Velkist einhver í vafa er nokkur munur á forsetakosningum og Kötlugosi.
Hið fyrrnefnda er á dagskránni í vor og enginn veit hverjir bjóða sig fram enda rennur framboðsfresturinn út mánuði fyrir kjördag. Hið síðarnefnda er fyrr eða síðar á dagskránni.
Hvort tveggja veldur hins vegar af þarflausu miklum og vandræðalegum vangaveltum í fjölmiðlum og koma þar til fjölmargir spámenn, bæði meiriháttar og minniháttar. Allir þykjast hafa vit á málum en svo kann að vera að enginn sjái rétt í sínu föðurlandi.
Svo er það hitt að Katla og vangaveltur um forsetakosningar hjálpa til að fylla dálksentimetra dagblaða og mínútur í ljós- og hljóðvökum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bernhöftsbakarí er ódýrara en Sandholts
5.1.2016 | 13:46
Ég gekk Laugaveginn í dag sem líklega telst ekki til tíðinda, hvorki hjá mér né öðrum. Hins vegar mun ég eiga fleiri spor þar í framtíðinni en áður, því undanfarnar vikur höfum við feðgar verið að standsetja húsnæði á miðjum Laugaveginum þar sem við munum væntanlega hafa skrifstofur ásamt fleirum.
Í hádeginu rölti ég svo út og ætlaði mér að kaupa eitthvað til að seðja sultinn. Undir stillönsum nokkru ofar er Sandholt bakaríið og þar gekk ég inn. Óhætt er að orða það þannig að ég hrökklaðist út aftur. Verðið var slíkt að ég hefði ábyggilega getað farið inn á einhvern veitingastað og keypt mér þokkalega máltíð fyrir sama pening.
Langloka með sneið af kalkún og grænmeti kostaði tæpar 1.500 krónur. Þó girnileg væri fannst mér verðið of hátt. Sama fannst mér um tvær náskyldar brauðsneiðar sem þó voru aðskildar með girnilegu áleggi og kostuðu tæplega eitt þúsund krónur.
Sumir segja að verðalag á Laugaveginum miðist við að féfletta útlenda ferðamenn. Nærri má liggja að heilt brauð kosti í Sandholt 10.000 krónur og kalkúnninn hátt í 100.000 krónur ef hvort tveggja væri ekki hlutað niður. Dýr myndi Hafliði allur, var eihvern tímann sagt.
Á horninu á Bergstaðastræti og Spítalastígs hefur æði lengi verið starfandi bakarí sem nefnist Bernhöftsbakarí og raunar var það áður á horninu á móti. Nafnið kemur frá Tönnies Daniel Bernhöft sem kom hingað til lands 1834 og stofnaði bakarí. Og hvar skyldi það hafa verið? Jú, þar sem nú heitir Bernhöftstorfan ofan við Lækjargötu. Síðar flutti bakaríið að Bergstaðastræti 14 og enn síðar yfir götuna í húsið sem ber númerið þrettán.
Og það var einmitt í Bernhöftsbakaríi sem ég keypti tvö stór rúnstykki með skinku og osti sem afar kurteis og greiðvikin afgreiðslukona smurði fyrir mig. Þetta kostaði um 800 krónur.
Staðan er því þannig á fyrsta vinnudeginum á nýju skrifstofunni að verðlag í Sandholtsbakaríi á Laugaveginum vekur ekki áhuga minn. Hins vegar Bernhöftsbakarí sá staður sem ég mun hingað til leggja leið mína þegar garnirnar gaula á vinnudegi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Skjálftar í Bárðarbungu eru ekki fyrirboðar eldgoss
5.1.2016 | 11:13
Af leikmannsins hálfu virðast stórir jarðskjálftar vera frekar sjaldgæfir í Bárðarbungu. Stöku sinnum verða þar þó skjálftar upp að þremur stigum. Flestir eru miklu minni og mun sjaldgæfari og raunar hefur skjálftum fækkað frá því eldgosið í Holuhrauni hætti.
Gera má ráð fyrir að dragi til tíðinda í Bárðarbungu eða nágrenni muni jarðskjálftum stórfjölga og stórir skjálftar verða miklu fleiri og tíðari. Þetta er það sem gerðist við síðustu umbrot þegar Bárður dældi kvikunni til norðurs og hún fann sér leið upp úr gamla Holuhrauni, hugsanlega gamlan farveg.
Þó svo að nokkrir stórir skjálftar mælist á þessum slóðum er engin ástæða til að skelfast og búast við hinu versta. Hafi hraunið úr síðasta eldgosi komið úr kvikuhóli sem þarf að fyllast og mynda þrýsting til að atburðirnir endurtakist þá verður að athuga að aðeins hluti af kvikunni kom upp á yfirborðið í Holuhrauni. Mikið af henni dreifðist út og suður, norður og niður inni í jarðskorpunni ef taka má svona óhefðbundið til orða þegar um þessi mál er rætt. Af því má ráða að tómarúmið þarna niðri sé talsvert mikið.
Eflaust draga jarðfræðingar margvíslegar ályktanir af upplýsingum sem fást frá Bárðarbungu og svæðinu þar í kring. Ein af eim er ábyggilega sú að kvika streymir nú upp í hið meinta hólf sem á að vera þar undir.
Hins vegar er gegnir tíminn mældur í dögum, vikum, mánuðum og árum, afar afstæðu hlutverki í öllu þessu og hugsanlega ekki mikilsverðu.
Til skýringar þessu má nefna að Katla á að hafa gosið fyrir löngu miðað við meðalfjölda ára á milli gosa. Þó hún hafi látið á sér bæra í nokkur skipti frá því 1918 hefur ekkert gerst sem máli skiptir. Þannig kann það að verða með Bárðarbungu að ekkert gerist næstu hundrað árin.
Í þetta reyna jarðfræðingar að ráða og nokkuð öruggt má telja að dragi til tíðinda munu mælitæki í kringum Bárðarbungu nema umbrotin með nokkrum fyrirvara. Þá verður óhætt að segja að tíminn skipti máli og hann er að því leyti viðfangsefni jarðfræðinga.
Svo verður að taka það með í reikninginn að enginn völva, spámaður né draumspakt fólk hefur spáð fyrir um gos í Bárðarbungu eða nágrenni (og raunar spáði enginn fyrir um síðasta gos í Holuhrauni). Er þá ekki bara ástæða til að slappa af.
Munum þó að það þarf ekki ófreskan mann til að spá eldgosi á Íslandi. Meira að segja sá sem hér lemur á stafaborð telur að meiri líkur en minni séu á eldsumbrotum á þessu ár ... eða næsta ...
![]() |
Skjálftarnir hafa ekki meiri þýðingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvar eru Löngufjörur og Skógarnes?
4.1.2016 | 13:32
Mogginn skilur oft ekki lesendur sína. Sumir blaðamenn skila inn illa skrifuðum fréttum eða fréttum sem ekki fáir skilja og enginn á ritstjórninni lítur yfir og segir til um hvað betur megi fara.
Hvar eru Löngufjörur á Snæfellsnesi, hvar er Skógarnes? Er Skógarnes bær eða örnefni? Og hvað með landakort?
Til eru örnefnin Ytra- og Syðra-Skógarnes og bær sem ber nafnið Syðra-Skógarnes. Þarna eru engir skógar en syðra nesið, sem raunar er það austara samkvæmt korti, gengur út í leirurnar við ósa Haffjarðarár. Þar heita Löngufjörur og eru þær taldar ná allt að Stakkhamri sem er austan Straumfjarðarár.
Ef vesæll bloggari getur kastað upp korti á fimm mínútum þá hlýtur Mogginn að geta miklu betur.
Ég valdi gamla Atlaskort Landmæling Íslands af því að það er fyllra á þessum slóðum en yngri kort. Inn á kortið hef ég merkt helstu örnefni og bæjarnöfn sem máli skipta.
Svo minnist ég þess að í ævisögu Árna Þórarinssonar, prófasts, er getið um konu sem bjó á Skógarnes og hann hafði miklar mætur á. En hver veit um þann mann og hver hefur lesið hina stórbrotnu ævisögu hans sem Þórbergur Þórðarson skráði? Jú, hann er langalangaafi núverandi formanns Samfylkingarinnar.
Eftir að hafa pælt í kortum er ég sannast sagna engu nær um hvar bíll ferðamannsins fannst. Þó um sé að ræða hörmulegan atburð er ástæða til að hvetja blaðamenn Morgunblaðsins til að sinna lesendum sínum betur og flytja fyllri fréttir af staðreynum mála.
Landafræði er grunnfag fyrir þá sem starfa við blaðamennsku hér á landi. Nú er hins vegar svo komið að margir yngri blaða- og fréttamenn vita sáralítið um landið, sem er svo sem allt í lagi ef þeir kunna að leita heimilda.
![]() |
Fyrst talið að tveggja væri saknað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gaman að hlægja að öðrum en það er líka ljótt ...
2.1.2016 | 15:09
Ég tjái mig aldrei um svona nema með atkvæði í þingsal.
Sá sem þetta sagði hefur hingað til ekki verið fjölmiðlafælinn og löngum þekktur fyrir að segja skoðanir sínar umbúðalaust, jafnvel þegar engin eftirspurn er eftir þeim. Fyrir vikið er hann nefndur Skörungur ársins á hinu skemmtilega vefriti andriki.is. Þar segir um tilnefninguna:
Skörungur ársins: Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar var spurður hvernig hann myndi greiða atkvæði um ÁTVR-frumvarpið. Hann vildi ekki svara því og sagði: Ég tjái mig aldrei um svona nema með atkvæði í þinginu. Því miður var hann ekki spurður hvernig hann myndi greiða atkvæði um eitthvert annað mál, til dæmis afturköllun inngöngubeiðnarinnar í Evrópusambandið.
Svo var valin fundarástæða ársins hjá Andríki og þetta varð fyrir valinu:
Fundarástæða ársins: Ríkisútvarpið ræddi við Nönnu Hlín Halldórsdóttur, einn fundarmanna á samstöðufundinum og hún hafði þetta að segja: Við erum náttúrulega hingað komin til að sýna samstöðu, þú veist, það er, við erum náttúrlega, ég veit ekkert alveg hvernig ástandið er þar, en ég held að það sé ótrúlega mikilvægt til þess að sýna að það sé þú veist að það sé hægt að kjósa líka um manns eigin líf, og að eins og að fjármálaöflin að þau séu ekki þau sem ráði heldur fólkið í landinu.
Gaman að gera hlegið af seinheppnu fólki í upphafi árs en auðvitað er ljótt að hlægja að öðrum.
Sönn gleði vinstri manna vegna ákvörðunar Ólafs Ragnars
1.1.2016 | 15:49
Rétt á eftir nýársávarpi forseta Íslands opnaði ég svaladyrnar hjá mér og leit út í útsynninginn og élin. Þá var eins og ég heyrði margraddað feginsandvarp innmúraðra vinstri manna, þeirra sem vildu láta þjóðina samþykkja skuldir óreiðumanna,Icesave-samninginn. Loksins, loksins, Ólafur Ragnar ætlar að hætta, sagði kórinn.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins segir í viðtali við mbl.is í dag:
Ætli hans stærsta afrek á forsetaferlinum hafi ekki verið að færa þjóðinni réttinn til að útkljá Icesave-deiluna.
Og skyndilega standa aðrir stjórnmálaforingjar upp, jafnvel þeir sem áttu undir högg að sækja gagnvart þjóðinni og forseta Íslands og þeir mæra Ólaf Ragnar. Þeir eru svo innilega kátir og glaðir með ákvörðun hans að allar misgjörðir eru fyrirgefnar og gleymdar.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, og grjótharður stuðningsmaður allra Icesave-samninga ræður sér ekki fyrir kæti er hann segir þetta á Facebook og þerrar gleðitárin um leið:
Bestu þakkir til Ólafs Ragnars Grímssonar fyrir farsælan embættisferil og bestu óskir um farsæla framtíð til hans og Dorritar.
Birgitta Jónssdóttir, formaður Pírata, sem veit oftast ekki hvort hún er að koma eða fara, en hvað varðar Ólaf Ragnar er hún óskaplega fegin að hann skuli hætta og þetta var það sem henni datt í hug á mbl.is:
Hún segir ákvörðun Ólafs vera góða enda eigi enginn lýðræðiskjörinn forseti að sitja eins lengi í embætti og hann hefur gert.
Er það ekki annars hafið yfir allan vafa að menn eiga að fá sitja í kjörnum embættum svo lengi sem þjóðin styður þá? Út á það gengur lýðræðið. Hafi Ólafur Ragnar Grímsson setið of lengi þá er það ekki honum að kenna heldur þjóðinni. Ekki hvað Birgittu finnst ...
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.1.2016 kl. 01:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Orð bera keim af þeim sem þau mæla
31.12.2015 | 15:25
Þú getur ekki vaðið tvisvar í sömu ánni. Það er alltaf nýtt vatn sem leikur um fætur þér.
Svo mun vera um vatnið eins og Heraklítus sagði í Grikklandi fyrir um 2500 árum. Og eins er það með vatnið og tímann, hvort tveggja er alltaf nýtt sé rétt talið.
Ári að ljúka og nýtt að byrja. Þetta nefnast oft tímamót og æði margir upphefjast rétt eins og að áramót hafi í för með sér náttúrulegar breytingar. Svo er nú ekki. Hinn 1. janúar er litlu frábrugðinn 31. desember. Eini munurinn er talning tímans. Rétt eins og þegar sekúnda verður að annarri, mínúta mætir þeirri næstu, klukkustundir raðast í tímanna safn og svo gerist með daga, vikur, mánuði og endanlega hvert ár.
Þrátt fyrir óteljandi slík mót gerist ekkert í náttúrunni, að minnsta kosti ekkert sem við leikmenn greinum. Hún heldur ekki upp á neitt. Engin uppstytta verður í tilefni áramóta, himinninn mun ekki skjóta eldingum og þeyta þrumum. Sólin mun ekki gægjast óvænt fram úr skýjunum eða hitastig dagsins breytast. Ekkert tekur tillit til tímans þó svo að hann sé alls staðar allt um vefjandi. Náttúran er einfaldlega blind, miskunnarlaus og ópersónuleg. Allt fram streymir endalaust. Jafnvel dýrin skynja ekki nokkra breytingu nema hugsanlega fyrir tilstilli manna. Kýrnar tala ekki mannamál um áramót. Hvorki hundur né köttur tárast og óska hvorum öðrum gleðilegs árs.
Jafnvel klettarnir opnast ekki og huldufólk syngur ekki messu í Tungustöpum landsins og óskasteinninn er ófundinn.
Svona er þetta nú gjörsamlega gerilsneytt og leiðinlegt þegar litast er um með gagnaugunum.
Samfélag manna er hins vegar með allt öðrum brag og þar er lífið miklu bjartara en kuldaleg náttúran gefur tilefni til. Við njótum tímans, teljum hann, söfnum honum og geymum til upprifjunar. Dagsmótin eru raunveruleg. Við leggjumst til svefns að kvöldi dags og vöknum að morgni annars. Fyrr en varir fögnum við vikulokum og þannig eru vikumótin nær áþreifanleg. Svo er um mánaðamót, árstíðir og áramót.
Af tilefninu eru ávörpin eru lík og af tilfinningu veitt. Góðan dag, góða helgi, til hamingju með afmæðið, gleðileg jól, gleðilegt sumar ... og gleðilegt ár.
Allt beinist þetta að því sama, að við og allir aðrir getum glaðst. Þannig er lífið bara okkuð indælt hvort sem við erum búsett hér á landi eða annars staðar enda eiga flestir þá ósk æðsta að njóta lífsins með sínu fólki. Eða eins og Tómas Guðmundsson, skáld orðaði það í ljóðinu Ljóð um unga konu frá Súdan:
Samt dáðist ég enn meir að hinu,
hve hjörtum mannanna svipar saman
í Súdan og Grímsnesinu.
Skrýtilegt er það nú samt hversu fáir virðast gera sér grein fyrir einföldum sannindum.
Í takti við annað fólk er ekki úr vegi að ég snýti mér, þurrki tárin af hvörmum og manna mig upp í að óska lesendum mínum gleðilegs og ekki síst gæfuríks komandi árs. Svo held ég til þess fólks sem ég unni mest. En fyrst þetta:
Lítill drengur spurði föður sinn hvort Neró hefði ekki verið slæmur maður.
Gerspilltur, svaraði faðir hans ...
Löngu síðar spurði annar drengur föður sinn hins sama.
Ég veit ekki hvort hægt er að segja það, svaraði faðirinn. Maður má ekki dæma of hart. en því verður ekki neitað að hann fór oft miður heppilega að ráði sínu.
Hér á landi tíðkast að dæma hart. Virkir í athugasemdum ræða smámál líkt og morð og þar af leiðir að þegar um morð er fjallað er munurinn á því á smáatriðum enginn. Þannig er líka pólitíkin, umræðuhefði. Óþrifatalið ræður öllu enda er það tilgangurinn sem helgar meðalið eins og svo oft áður.
Þessu verður að breyta í stjórnmálum og umfjöllun um þau, jafnt á Alþingi, í fjölmiðlum, í athugasemdakerfum fjölmiðla sem og á kaffistofum og heita pottinum.
Staðreyndin er einfaldlega sú að orð bera keim af þeim sem þau mæla. Orðum sínum getur enginn afneitað. Betra er því að hugsa sig um áður en illt er mælt.
Ég óska lesendum mínum og nokkrum öðrum landsmönnum gleðilegra áramóta og öllum farsældar á komandi ári.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tuttugu punktar úr pistlum ársins
31.12.2015 | 15:23
Á árinu 2015 ári skrifaði ég samtals eitthundrað áttatíu og fimm pistla á þessum vettvangi.
Maður er að slappast, það verður að viðurkenna.
Þegar litið er yfir það sem ég hef skrifað á árinu 2015 er vekur eftirfarandi að minnsta kosti athygli mína:
- Fyrir hönd ríkissjóðs keypti skattrannsóknarstjóri lista yfir skattsvikara og greiddi fyrir án reiknings, sem sagt á svörtu. Skyldi Ríkisskattstjóri gera athugasemdir við viðskiptin?
- Samstöðuganga þjóðarleiðtoga vegna morðanna í útgáfufyrirtækinu Charlie Hebdo var sviðsett. Íslenski forsætisráðherrann tók ekki þátt í leikritinu og fékk miklar ákúrur frá stjórnarandstöðunni.
- Á landsfundi Samfylkingarinnar fór allt í handaskolum. Rafræn kosning klikkaði, gerð var tilraun til valdaráns, þeir sem máttu kjósa fengu það ekki, þeir sem ekki máttu kjósa fengu leyfi til þess og formaðurinn var endurkjörinn með einu atkvæði. Ríkisútvarpið hafði ekkert við þetta að athuga. En hefði sonalagað gerst hjá Sjálfstæðisflokknum ...
- Árangur Pírata í skoðanakönnunum helgast af því að Sjálfstæðismenn eru of latir til að berjast og of feitir til að flýja. Grínlaust virðist sem að Sjálfstæðisflokkurinn sé orðinn kerfisflokkur en Píratar verndarar einstaklingsfrelsisins.
- Þetta höfðu Staksteinar í Mogganum um náttúrupassann að segja og ég er sammála: Passinn hafði það þó umfram gistináttagjaldið að hægt var að nota hann til að abbast upp á, angra og auðmýkja landann þegar hann labbaði inn á forna slóð.
- Hver skyldi hafa fundið upp á þeirri vitleysu að kalla leikmenn í boltaliði lærisveina þjálfarans? Sumir fjölmiðlamenn halda þessu statt og stöðugt fram sem ber ekki vitni um annað en þekkingarleysi og skort á málskilningi.
- Vitræn umræða um kjarasamninga og verkföll er útilokuð nema launþegafélög og atvinnurekendur gefi réttar upplýsingar um kjör launþega, heildarlaun og útgreidd laun. Ef ekki heldur leikritið í kjarasamningum áfram en það var skrifað fyrir fimmtíu árum.
- Kosningaúrslitin í Skotlandi síðasta vor urðu þau að flokkur sem fékk 50% atkvæða fékk fimmtíu og sex þingmenn. Aðrir þrír flokkar sem fengu tæplega 47% atkvæða fengu þrjá þingmenn kjörna. Háværar kröfur eru um að sama kerfi verði tekið upp hér á landi.
- Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur, varaði við því að flugvélar geti flogið inn í gosmökk Heklu án þess að flugmenn sjái hann. Starfsmaður Samgöngustofu sem er ekki jarðfræðimenntaður taldi viðvaranir Páls ekki á rökum reistar. Við svo situr enn í dag.
- Margir halda að fjölgun ferðamanna sé af hinu góða. Svo er ekki. Alvarleg náttúruspjöll fylgja séu engar gagnráðstafanir gerðar.
- Lúpínan er þjóðarblóm, engin önnur jurt má kallast landgræðslujurt.
- Menningararfurinn í gömlum húsum í Reykjavík týnist óðum.
- Þetta var svo kröftug sprenging að ég blést hreinlega um koll og það gerðist líka fyrir aðra. Það féll mikið til ofan á mig, segir Siefert. Ég var smurður svo miklu blóði að ég var ekki viss um hvort ég væri sjálfur særður. En það kom í ljós að ég var það ekki. Þetta var blóð úr öðrum. Svona var skrifað í Morgunblaðinu á árinu.
- Sterk rök benda til að ódýrara, fljótlegra og betra verði að byggja nýjan Landspítala frá grunni á besta mögulega stað, í stað þess að byggja við og endurnýja gamla spítalann við Hringbraut.
- Eitthvað mikið virðist að í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu og það bætir ekki úr skák að lögreglan virðist víðsfjarri.
- Sú hugsun að gott sé að breyta klukkunni svo bjartara verði fyrr á daginn er skiljanleg. Hugsunin gengur þó frekar skammt. Í dag er birtutíminn rétt rúmar fimm klukkustundir. Hann lengist ekki við það að breyta klukkunni.
- Svokallaður aðgerðarhópurinn Anonymous telst vera pólitískur sértrúarhópur sem hefur umfangsmikla sérþekkingu á tölvutækni og internetinu. Hann er eins og önnur glæpasamtök, mafían, Daesh eða Isis í heimi íslamista. Hópurinn telur hefndina vera sína af því að hann hefur tæknikunnáttu til að beita henni.
- Staðreyndin er sú að opin og lýðræðisleg samfélög í Evrópu eru miskunnarlaust misnotuð af glæpamönnum undir margvíslegu yfirskini, meðal annars trúarlegu. Ekki er hægt að búa við slíkt, það liggur í augum uppi. Ef eftirlit Schengen-svæðisins hefur brugðist að þessu leiti þarf að lagfæra misfellurnar og bregðast við af hörku. Sé niðurstaðan sú að taka upp vegabréfaeftirlit að nýju þá verður svo að vera.
- Hvenær er maður kjörin á þing og hvenær ekki? Þetta er ein mikilvægasta spurningin sem hrokkið hefur upp úr þeim stjórnmálamanni sem telur sig hvorki kjörinn né ókjörinn. Líklegast er Mörður Árnason hálfkjörinn.
- Sé einhver þannig gerður að hann vilji afsala sér hlutverki sínu sem uppalandi til einhverra óskilgreinds fólks úti í bæ þá verður bara svo að vera. Er hins vegar nokkur vissa fyrir því að þetta fólk boði annað en það sem slæmt er? Þegar öllu er á botninn hvolft er frekar líklegt að börnin læri fátt mikilvægt utan heimilisins ... og auðvitað skólans.
Auðvitað hljóp ég bara á hundavaði yfir það sem ég skrifaði. Eflaust kemur í ljós við nánari rýni að þetta er allt tóm vitleysa.
Er pólitík Ólínu Þorvarðardóttur uppbyggileg og vönduð?
31.12.2015 | 00:18
Á forsíðu Fréttablaðsins í dag er mynd sem gengur fram af mér. Hún virðist nógu sakleysisleg þó. Tveir æðstu ráðamenn þjóðarinnar blómum skrýddir og skælbrosandi ásamt ritstjóra Fréttablaðsins framan við kyrfilega merktar höfuðstöðvar 365. Gerðu viðskipti ársins segir í myndatexta þar sem vísað er til samnings stjórnvalda við kröfuhafa föllnu bankanna að mati dómnefndar Markaðarins, Stöðvar 2 og Vísis.
Svo ósmekklega ritar Ólína Þorvarðardóttir, varðaþingmaður Samfylkingarinnar í pressan.is. Við þetta er fjölmargt að athuga og ekki úr vegi að spyrja og svara nokkrum spurningum.
Er Ólína stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar?
Nei, hún er andstæðingur hennar og finnur henni allt til foráttu.
Var Ólína stuðningsmaður síðustu ríkisstjórnar?
Já, það var hún.
Hafði hún einhverjar athugasemdir við að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, væri valin kona ársins af tímaritinu Nýju lífi?
Nei, síður en svo.
Kallaði hún myndina af Jóhönnu mellumynd?
Nei, guð hjálpi þér.
Skrifaði Ólína við það tækifæri eitthvað á þessa leið til ófrægðar Jóhönnu:
Hér er skólabókardæmi um það hvernig hagsmunatengsl fjölmiðils og valdhafa tvinnast saman á einni mynd. Mellumynd gæti einhver kallað þetta (afsakið orðbragðið). Hér má sjá fjölmiðil koma sér í mjúkinn hjá valdhöfum, sem aftur njóta góðs af hinni jákvæðu birtingarmynd þeirra framan við vörumerki mikilsráðandi fjölmiðils.
Nei, en hún skrifaði þetta í í dag í vefritið pressan.is. Hún var ekki að tala um Jóhönnu heldur vondu kallanna.
Gat verið að Nýtt líf hefði kosið Jóhönnu til að koma sér í mjúkinn hjá valdhöfum góðs af hinni jákvæðu birtingarmynd þeirra framan við vörumerki mikilsráðandi fjölmiðils?
Nei, auðvitað ekki.
Og af hverju er þá Ólína að tuða yfir öðrum sem fá viðlíka sæmd?
Það er einfalt. Ólína er bara á móti núverandi ríkisstjórn og hún studdi síðustu ríkisstjórn og Jóhönnu Sigurðardóttur með ráð og dáð.
Allir aðrir en eru vondir og illa meinandi, þó ekki hún Jóhanna sem þó tók við svipaðri sæmd af fjölmiðli árið 2009.
Svona eru sumir stjórnmálamenn vanir að ausa aðra auri, rétt eins og einhver taki mark á Gróu greyinu á Leiti.
Sannast sagna eru svona skrif hundleiðinleg rétt eins og sá stjórnmálamaður sem ritar. Hún er með óþrifin upp á baki eftir að hafa rægt vondu kallanna.
Óskaplega hlýtur svona fólk að vera illa innrætt og í eðli sínu leiðinlegt. Finnst einhverjum svona pólitík skemmtileg og innihaldsrík?
Svindl fjölmiðla um völvur og spádóma fyrir næsta ár
30.12.2015 | 13:25
Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur á í vök að verjast allt árið að því er fram kemur í kristalskúlu Völvu DV. Kúturinn sem Dagur B. heldur í raun í og heldur honum á floti, er máttlaus stjórnarandstaða í borginni. Sú lélegasta um áratugaskeið.
Fjárhagsstaða borgarinnar er myllusteinn Dags og þegar sífellt kemur betur í ljós að embættismenn og kjörnir fulltrúar draga ekki úr utanlandsferðum og dagpeningagreiðslum molnar úr undirstöðum sem Dagur hefur treyst á.
Svo segir völva dv.is um framtíðina í borgarstjórn Reykjavíkur. Afar sennilegt ...
Óvandaðir fjölmiðlar halda því fram að hægt sé að horfa fram í tímann og segja til um hvað þá gerist. Auðvitað er það ekki hægt. Enginn getur spáð fyrir um hvað gerist.
Sannarlega er hægt að giska á hvað muni gerast með því að draga ályktanir af því sem þekkt er. Þannig er mjög líklegt að kalt verði fram á vor og hlýrra að sumarlagi en að vetri til.
Gera má ráð fyrir að ríkisstjórn sem situr með stuðningi þrjátíu og átta þingmanna af sextíu og þremur muni halda áfram út kjörtímabilið. Um leið er líklegt að illskeytt stjórnarandstaða muni ekki láta af þeim tilburðum sem hún hefur sýnt síðustu mánuði. Ekki þarf völvu eða spámann til að semja líklega atburðarás með þessari forskrift.
Um veðrið er auðvelt að spá, það er í raun og veru alltaf eins frá ári til árs en þó koma af og til fram einhverjir ófyrirséðir atburðir til dæmis miklir stormar.
Verða einhver eldgos á næsta ári? Hugsanlega. Engin gat þó spáð fyrir um eldgosin á Fimmvörðuhálsi, í Eyjafjallajökli, Vatnajökli eða í Holuhrauni. Enginn spáði fyrir um efnahagshrunið 2008.
Svona spámennska í fjölmiðlum er auðvitað ekkert annað en tilraun til að selja blöðin. Völvur eða spákonur eru einfaldlega samantekin ráð á ritstjórnum um sennilegar ágiskanir. Síst af öllu eru þetta staðreyndir og fjarri lagi um einhver vísindi að ræða.
Jarðskjálftahrina mun lengi vel hrista Suðurland og miðhálendið áður en krafturinn leysist í læðingi. Mikið jökulvatn mun hlaupa fram en á óbyggðu landi. Rafmagn mun fara af og bæir einangrast en mannskaði verður ekki. Umbrotin standa ekki lengi.
Þessi auma spá kemur líka úr dv.is. Er eiginlega ekkert frambærilegra en þetta að fá frá völvu DV?
Jarðskjálftar sem munu lengi vel hrista Suðurland og miðhálendið ... en umbrotin standa ekki lengi ... en samt lengi vel. Þvílíkt bull og vitleysa. Látum það þó vera en kann enginn að skrifa á DV og er enginn yfirlestur greina á fjölmiðlinum.
Verst að ekki finnast neinir fjölmiðlar sem geta flett ofan af svindli fjölmiðla í spámennsku fyrir næsta ár.
Þeir sem klappa tröllin upp viðhalda vondri umræðuhefð
29.12.2015 | 12:24
Við verðum að breyta umræðuhefðinni, er niðurstaða greinar sem einn stofnenda Pírata, Smári McCarthy, skrifar í Stundina í dag. Greinin birtist í kjölfar frétta um vandræðagang á spjallsvæði Pírata, þar sem of mikið mun hafa þótt vera af því sem Smári kallar fávitalegar skoðanir.
Í grein sinni, þar sem hvatt er til kurteisi og yfirvegaðrar umræðu, kallar Smári valdhafa siðlaus, mannvond fífl. Hann segir einnig fjölda fólks á alþingi tala viðstöðulaust með rassgatinu.
Um fjölmiðla hefur hann það meðal annars að segja, að svokallaðir blaðamenn skófla upp hverskyns bulli og að flestir fjölmiðlar virðist sáttir við að láta frá sér hvaða rætnu drullu sem er.
Smári varar við því, að óvönduð umræða og fjölmiðlun verði til þess að sá tími komi þegar enginn hreinlega muni lengur hvernig á að vera kurteis og gagnrýninn.
Þannig stendur skrifað í vefriti sem nefnist Herðubreið, höfundurinn er Karl Th. Birgisson ritstjóra. Við fyrstu sýn er þetta svo sem gott á Smára McCarthy.
Hér hef ég nokkrum sinnum gert athugasemdir við hina margumræddu umræðuhefð sem einna helst er óþrifalegust í stjórnmálum. Spara þar margir ekki stóru orðin sem er svo sem allt í lagi ef ekki fylgja formælingar og uppnefni. Ástæðan er eflaust sú að mörgum er heitt í hamsi og láta vaða, ekki aðeins í athugasemdadálkum fjölmiðla heldur einnig á hinu háa Alþingi.
Líkur benda til að sá sem tvinnar saman óhróðri og andstyggilegheitum um annað fólk þjáist af öðru eða hvort tveggja þessu:
- Sá sem lætur svona út úr sér er fyrst og fremst að upphefja sjálfan sig. Þekkt er að upphafning á eigin verðleikum á uppruna sinn í aumu sjálfsáliti, þörf á viðurkenningu annarra og oftar en ekki slæmu uppeldi. Til viðbótar er afar líklegt að sá sem niðurlægir aðra trúi því innst inni að fyrir vikið upphefjist hann sjálfur
- Viðkomandi heldur að einhver trúi óhróðrinum og missi álit á þeim sem um er rætt. Sé einhverjum nógu illa borinn sagan; sönn, hálfsönn eða ósönn, sé mannorðið ónýtt. Þetta er aðferð sem kennd er við Gróu á Leiti.
Ofangreint er auðvitað þvert á alla málefnalega umræðu þar sem rökræður um skoðanir og stefnu skipta öllu en sá sem orðar þær skiptir minna máli.
Hversu oft höfum við ekki séð og heyrt hinn háværa og freka taka yfir umræður og rúlla andstæðingnum upp eins og það er oft nefnt. Staðreyndin er þó engu að síður sú að málstaður þess sem fer hallloka í umræðum þarf síður en svo að vera lakari eða verri en þess sem er talinn hafa haft yfirhöndina.
Þegar upp er staðið skiptir afstaða lesenda eða áheyrenda öllu máli, að þeir sjái í gegnum umræðuna, átti sig á því hvaða málstaður er góður. Þeir sem klappa tröllin upp, hvetja til vondrar umræðu og viðhalda hefðinni. Hinir halda sig frá henni, varast opinberlega að veita tröllunum athygli.
Í raun og veru er Karl Th. Birgisson, ritstjóri Herðubreiðar, að berja á pólitískum andstæðingi. Þetta er í hnotskurn hin vonda íslenska umræðuhefð í stjórnmálum.
Eðlilegra hefði verið að hrósa Smára McCarthy fyrir að hafa snúið við blaðinu, tekið afstöðu gegn vondri umræðuhefð. Þess í stað leggur ritstjórinn á sig að rifja upp ill ummæli Smára til að gera lítið úr greininni og sinnaskiptum hans.
Engin breyting verður á umræðuhefðinni í íslenskum stjórnmálum sé ráðist með illu á einn af boðberum breytinga.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er ekki ráð að Ögmundur og Stefán sameinist?
24.12.2015 | 10:53
Þeim virðist fjölga á Íslandi sem ekki sjá nekt keisarans. Auðvitað á allur ríkisrekstur að vera í stöðugri endurmótun. En það gildir um allt efnahagskerfið. Líka hið einkarekna. Stundum getur smá stofnun verið kröftugri en stór og síðan öfugt. Og stundum eru tillögur settar fram bara til að passa upp á hagsmuni. Það hefur Viðskiptaráðið gert svo lengi sem ég man eftir. En á meðal annarra orða, hví ekki sameina Viðskiptaráð og Samtök atvinnulífsins? Er þetta ekki sama tóbakið?
Svo segir Ögmundur Jónasson, alþingismaður á heimasíðu sinni, ég er áskrifandi að pistlum hans, fæ tvær meldingar í hvert sinn er hann skrifar eitthvað þar.
Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, skrifar stundum pistla á vefritið Eyja. Stundum les ég greinar hans. Hann segir á í pistli:
Kanski Viðskiptaráð ætti að líta sér nær. Það eru ansi margar stofnanir og samtök einkageirans að gera það sama og Viðskiptaráð, þ.e. að reyna að hafa áhrif á stjórnmálin í þágu eigin hagsmuna (SA, LÍU, SI, Samtök atvinnurekenda, SFF, o.m.fl.). Þarna mætti sameina og spara, í anda tillagna Viðskiptaráðs.
Þetta er allt fjármagnað með félagsgjöldum á fyrirtæki, sem fleyta kostnaðinum svo út í verðlagið. Við erum með eitt hæsta verðlag í heimi, án þess að hafa hæstu laun í heimi. Kanski það sé á ábyrgð einkageirans? Væri ekki verðugt verkefni fyrir Viðskiptaráð að lækka verðlag á Íslandi, með hagræðingu í einkageira, án þess að lækka laun vinnandi fólks?
Hérna eru komnar athyglisverðar tillögur um að frjáls félagasamtök sameinist og það leggja þeir vinstri mennirnir Ögmundur og Stefán fram hvor í sínu lagi.
Í anda tillögu þeirra sýnist mér tilvalið að Ögmundur og Stefán sameinist. Eru þeir ekki sama tóbakið?
Rökstuðningurinn er sá að þeir eyða hvorir um sig plássi á netinu við að messa um sömu málin. Væri ekki verðugra að þeir litu til hins fækkandi hóps vinstri manna á Íslandi og skrifuðu hér eftir sameiginlegar greinar til að auðvelda fólki lesturinn og afla upplýsinga.
Þrjú þúsund og þrjú hundruð jólakveðjur út í tómið
23.12.2015 | 15:30
Í morgun gekk ég út á svalir, eins og ég geri jafnan árla á Þorláksmessu, dró nokkrum sinnum djúpt andann og hrópaði síðan af öllum kröftum:
Sendi ættingjum og vinum bestu óskir um gleðileg jól og heillaríkt nýtt ár. Þakka allt á árinu sem er að líða.
Svo beið ég í dálitla stund þangað til svörin bárust:
Já, sömuleiðis, gleðileg jól, kallaði einhver.
Haltu kjafti, helv... þitt. Fók er að reyna að sofa hérna, öskraði rámur kall.
Ha ..., kaseiru? hrópaði skræk kona.
Hundur gelti, annar tók umsvifalaust undir og köttur mjálmaði.
Ég gekk inn í stofu, nennti ekki að hlusta á hundgá, jafnvel þótt fyrr eða síðar myndi hundur sonar míns, hann Fróði (sko hundurinn heitir Fróði ekki sonurinn) hugsanlega gelta, mér eða einhverjum öðrum til ánægju.
Engu að síður velti ég því samt fyrir mér hvort ekki væri skynsamlegra að senda jólakort eða tölvupóst. Þetta hef ég hins vegar gert á Þorláksmessu frá því ég var barn og með því sparað mér ótrúlegar fjárhæðir í kaupum á jólakortum og frímerkjum.
Nú kann ábyggilega einhver að misskilja mig og halda að ég sé að gagnrýna þann hálfra aldar gamla sið að senda jólakveðjur á gufunni Ríkisútvarpsins.
Nei, nei, nei ... Því er nú víðsfjarri, en úr því að verið er að brydda upp á þessu, man ég aldrei eftir að hafa heyrt jólakveðju til mín eða þeirra sem ég þekki.
Nú má vel vera að enginn sendi mér jólakveðju í útvarpinu, sem í sjálfu sér er dálítið sorglegt. Hitt kann þó að vera jafn líklegt að útilokað sé að hlusta með einbeittri athygli á þrjú þúsund jólakveðjur lesnar í belg og biðu í tvo daga samfleytt og ná að grípa þá réttu. Ýmsum kann að finnast það álíka sorglegt.
Fyrst verið er að misskilja viljandi tilganginn með þessum skrifum mínum vil ég nefna, í fullkominni vináttu, kurteisi og virðingu fyrir hefðum fólks, þá staðreynd að það er ábyggilega ódýrara og markvissara að hrópa kveðjur af svölunum en að borga Ríkisútvarpinu fyrir að lesa þær út í tómið.
Þá hrekkur þetta eflaust upp úr lesandanum:
En það er svo gasalega jólalegt að hlusta á jólakveðjulesturinn á gufunni.
Já, því skal ég nú trúa. Það er líka obboðslega jólalegt að tala til þjóðarinnar úti á svölum á Þorláksmessumorgni.
(Vilji svo til að einhver glöggur lesandi telji sig hafa lesið ofangreindan pistil á Þorláksmessu á síðasta ári skal tekið fram að höfundur fer jafnan út á svalir þennan dag)
(Myndin er af sérútbúnu ökutæki við dreifingu á jólakveðjum Ríkisútvarpsins. Hugsanlega blandast einhver snjór með kveðjunun, en það er nú bara svoooo jólalegt)
![]() |
3.300 jólakveðjur lesnar í ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað er eiginlega rangt við það sem forsetinn sagði?
23.12.2015 | 13:13
Sýnist ÓRG vilja nýja forgangsröðun. Hvað með að hætta að úthluta forsetanum milljónum fyrir stórveislur þar sem veisluborðin svigna?
Þetta mun Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, sagt á Twitter vegna þessara orða forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, í Ríkisútvarpinu (feitletrun er undirritaðs):
Satt að segja er mér það óskiljanlegt að í svona litlu landi með svona öflugar og margþættar stofnanir og alla þessa umræðu um velferðina og samhjálpina skuli okkur ekki takast að skipuleggja okkur á þann hátt að það geti allir gengið að því vísu að þeir geti haldið hátíðir af þessu tagi á mannsæmandi hátt. Að þurfa að standa hérna í biðröð í kuldanum til þess að fá skyr og mjólk og brauð og kjöt og smá gjafir handa börnunum sínum. Það er mér gjörsamlega óskiljanlegt að þessari þjóð takist ekki að leysa þetta vandamál.
Ég fæ ekki betur séð en að Ólafur Ragnar mæli hér fyrir munn flestra, að minnsta kosti þeirra sem ég þekki til sem og þeirra er tjáð sig hafa í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum. Hvað er eiginlega svo slæmt við þessi orð forsetans. Þau eru einfaldlega rétt, skiptir engu hver starfi hans er eða hver laun hans eru.
Formaður flokksins míns fellur hér í þá gryfju að snúa í fljótfærni út úr orðum forsetans á þann veg sem ekki er hægt að verja. Orð hans eru með miklum ólíkindum og jafnvel ég verð að setja þau í samhengi við kröfur sem fengu ekki brautargengi við afgreiðslu fjárlaga næsta árs. Hér er að sjálfsögðu átt við kröfu um að að bætur aldraðra og öryrkja væru afturvirkar á sama hátt og laun ráðherra og þingmanna samkvæmt leiðréttingu kjaradóms.
Flestir gera þá kröfu til formanns Sjálfstæðisflokksins að hann stundi ekki þá umræðuhefð sem einkennt hefur vinstri menn framar öðrum. Ég hef áður skrifað hér um þá áráttu margra að stunda persónulegar árásir og illdeilur í stað málefnalegra rökræðna. Eftir hrunið vildu margir breyta þessari margumræddu hefð og ekki síst voru vinstri menn háværir um þessi efni.
Þingmenn og aðrir forystumenn vinstri flokka gleymdu samt hratt og markvisst öllum heitstrengingum og hafa sokkið æ dýpra í hyldýpi skítlegs orðalags en nokkur dæmi eru um á síðustu áratugum.
Telji formaður Sjálfstæðisflokksins að hann megi vegna orða forsetans atyrða hann fyrir ofangreindar skoðanir þá er illt í efni. Þetta endar aldrei vel nema annar hvort sitji á strák sínum. Við slíkar aðstæður varð til málshátturinn Sá vægir sem vitið hefur meira. Hann er einfaldlega hvatning til að enginn fari í tilgangslaust orðaskak, það skilar aldrei neinu.
Og núna fyrir örstutti segir á visir.is að Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsstjarna, skipti sér að málum með eftirfarandi orðum:
Kommon- hann er að benda á að þetta hangir allt saman. ÓRG ætti amk að þurrka kavíarinn úr munnvikunum.
Hvernig getur sjónvarpsmaður látið svona út úr sér. Þó hann beri ekki virðingu fyrir forsetaembættinu né þeim sem gegnir starfanum ætti Gísli Marteinn að bera þá virðingu fyrir sjálfum sér og reyna ekki að vera fyndinn eins og óuppdreginn götustrákur.
Ég er einfaldlega sammála forsetanum og held þó engar stórveislur þar sem veisluborðin svigna hvað þá að ég smjatti á kavíar.
Ný Þjóðmál komin út með fjölbreyttu efni
23.12.2015 | 12:20
Guðirnir Frjáls Verslun og Frjálsir Fjármagnsflutningar byggja heimsveldi sitt á því að hægt sé að flytja allt um heim allan á tiltölulega auðveldan og ódýran hátt. Það er enn hægt. Í leiðinni er dreift sjúkdómum og meinsemdum, en þó einsleitni á öllum sviðum. Störf eru flutt þangað sem vinnuaflið er ódýrast. Stjórnendurnir eru ósnertanlegir og njóta annarra kjara en verkalýðurinn. Gróðinn á lögheimili í skattaskjólum. Þetta er hin nýja nýlendustefna fjármagnsins.
Þannig ritar Tómas Ingi Olrich, fyrrum þingmaður, menntamálaráðherra og sendiherra, í stórmerkilegri og vel skrifaðri grein undir fyrirsögninni Fullveldi smáríkja á öld mandarínanna (feitletrun er undirritaðs). Hún er í nýjasta hefti Þjóðmála sem kom út í síðustu viku. Fullyrða má að það er óvenjulegt að einn af fyrrum forystumönnum Sjálfstæðisflokksins sé svo gagnrýninn á alþjóðavæðinguna.
Nú ber til tíðinda að útgefandi og ritstjóri Þjóðmála er Óli Björn Kárason, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Jakob F. Ásgeirsson er hættur sem útgefandi ritsins en hann stofnaði það fyrir um ellefu árum varð það á hans vegum afar fjölbreytilegt og áhugavert rit um stjórnmál hér á landi og erlendis.
Nýja ritið er fullt af fróðlegum greinum eftir skarpa og vel skrifandi áhugamenn um íslensk stjórnmál og samfélag; Björn Bjarnason, Gísla Hauksson, Friðrik Friðriksson, Skafta Harðarson, Jóhann J. Ólafsson, Tómas Inga Olrich, Hannes H. Gissurarson og Sigurð Má Jónsson.
Höfundur þessara lína fékk að auki að birta grein eftir sig í ritinu. Greinin ber nafnið Þversögnin og fjallar um umhverfismál og náttúruvernd hér á landi. Í henni er fjallað á nokkuð gagnrýnan hátt um málin og vakin athygli á þeirri staðreynd að þrátt fyrir nokkuð skýr lög og reglur um umhverfismál er illa gengið um náttúruna.
Um leið hefur orðið grundvallarbreyting á viðhorfum almennings til útiveru og ferðalaga. Eðlilegt er að í ljósi þess sé spurt hvort hnignandi fylgi Sjálfstæðisflokksins í skoðanakönnunum geti tengst því að ekki aðeins vinstri menn vilji vernda náttúru landsins. Getur verið að flokkurinn hlusti ekki á fólkið sem ann náttúru Íslands?
Ekki er ráðlegt að rekja efni greinarinnar frekar en þess engu að síður ber að geta þess að nú er þörf á því að Sjálfstæðisflokkurinn taki sig á í náttúruvernd og umhverfismálum. Honum dugar ekki lengur að benda til fortíðar og vitna til löngu látinna forystumanna flokksins sem létu sér náttúruvernd og umhverfismál skipta. Nú er knýjandi nauðsyn á að flokkurinn líti til framtíðar. Stuðningur við hann byggir ekki síst á stefnu hans í þessum málum, ekki stefnuleysi.
Þjóðmál kostar aðeins 1.500 krónur í lausasölu. Áskrift kostar 5.000 krónur, askrift@thjodmal.is.