Kannski á Davíð ekki sök á Skaftárhlaupinu
15.10.2008 | 13:22
Undanfarna daga og vikur þá hefur sá söngur verið afar hávær að lækka þurfi stýrivexti niður í 6%. Seðlabankinn virðist ekkert bifast þrátt fyrir öll lætin og lækkar aðeins um 3,5%.
Þeir hagfræðingar eru til sem telja þetta nóg að gert í bili og við sem ekkert kunnum í fræðunum rekum upp stór augu því einhvern veginn hélt hélt maður að eini hagfræðilegi álitsgjafinn sem mark væri takandi á væri Þorvaldur Gylfason eða Ágúst Ágúst Einarsson á Bifröst. Þeir halda því nefnilega fram að allt sé ónýtt, allt illa gert, allt vitlaust gert, framundan sé tómt svartnætti.
Svo kemur Gylfi Magnússon og varar við frekari lækkun stýrivaxta og vill fá að sjá hvernig gengið hagar sér á næstunni, segist ekki hafa búist meiri lækkun. Er ekki í lagi með manninn? Kann hann ekkert í sænsku hagfræðinni?
Kannski er þá einhver von með Seðlabankann, þvert á það sem fjölmiðlar hafa verið að tönglast á að undanförnu. Og hugsanlega á Davíð Oddson hvorki sök á heimskreppunni né hlaupinu í Skaftá ...
Mér þykir þetta stórmerkileg frétt.
![]() |
Seðlabankinn stígi varlega til jarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kerfið sem brást
14.10.2008 | 14:54
Ef einhver sök er þá þarf að svara fyrir hana. Hins vegar er ágætt að fara varlega í öll svona mál, láta ekki almannaróm villa sér sýn. Markmiðið verður að vera ljóst, sem sagt að finna það sem betur hefði mátt fara og gera ráðstafanir til að slíkt endurtaki sig ekki.
Hitt er verra ef ætlunin er að finna blóraböggla, berja á ríka liðinu og gera það að víti til varnaðar. Málið liggur mjög ljóst fyrir. Kerfið brást. Hafi Fjármálaeftirlitið gert athugasemdir við stofnun reikninga í útibúum erlendis hvað lá í orðum þess. Áttu bankarnir að hætta starfsemi sinni, loka fyrir nýja viðskiptavini? Eða voru þetta tilmæli ábendinga þess efnis að velta á reikningunum var orðin of há miðað við tryggingar íslenska ríkisins? Svona orðhengilsháttur leiðir ekki til neins. Annað hvort var farið eftir lögum eða ekki. Líkur benda til þess að bankarnir hafi farið eftir lögum en eftirlitsaðilarnir hafi brugðist.
Það er svo allrar athygli vert að skoða þá hörku sem eftirlitsaðilar meðhöndla einstaklinga meðan athygli þeirra er víðs fjarri þegar um stór fyrirtæki er að ræða. Ástæðan er líklega sú að það er auðveldar að tukta okkur litla fólkið til en þekkingu, vald og vilja skortir gagnvart þeim sem eiga meira undir sér. Og hverjir eru eftirlitsaðilar fyrir utan Fjármáleftirlitið. Þeir eru fjölmargir, Ríkisskattstjóri, skattstjórar, tollstjórar, sýslumenn og fleiri og fleiri og fleiri.
![]() |
Landsbankamenn svari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hinn mikli vandi Sjálfstæðisflokksins
14.10.2008 | 11:36
Sjálfstæðisflokkurinn á undir högg að sækja. Verulegrar óánægju gætir meðal stuðningsmanna hans og margir hafa horfið frá stuðningi sínum við flokkinn. Margt veldur. Atburðir síðustu tveggja vikna vega þungt en meira kemur til. Stærsti vandinn er sá að flokkurinn hefur látið undir höfuð leggjast að sinna kynningarmálum eins og vera skyldi.
Eftir afar gott gengi í tvennum kosningum voru andstæðingarnir ráðalausir, vissu lítt hvernig hægt væri að losa um þrásetu flokksins í ríkisstjórn. Á vegum Samfylkingarinnar var þá tekin sú ákvörðun að reyna nýja nálgun sem fólst í því að ráðst einfaldlega á garðinn þar sem hann er hæstur og berja þar linnulaust á. Með Borgarnesræðu formann Samfylkingarinnar hófust árásirnar á þáverandi formann Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddsson sem staðið hafa linnulítið síðan. Um var að ræða skipulega ófrægingarherferð. Kunnir PR menn í flokknum hönnuðu atburðarás, nokkurs konar herbalife-söluherferð, þ.e. sjálfbær aðferð sem smitar út frá sér og smá saman hefur áróðurinn náð að síast til andstæðinga Sjálfstæðisflokksins og er á góðri leið með að kljúfa hóp samherja.
Þetta dugði. Davíð Oddsson er orðinn einn af vondu gæjunum. Nú er svo komið að vonlítið er að breyta stöðunni, hann fær ekki að njóta sannmælis svo hatrammur er áróðurinn orðinn. Allt vont stafar má eiginlega rekja til Davíðs. Í hugum margra er hann orðinn holdgerfingur alls þess sem mistekist hefur. Eiginlega má kenna honum um heimskreppuna alla og hlaupið í Skaftá. .
Þegar menn bera ekki hönd fyrir höfuð sér og mæta áróðri andstæðinga er ekki nema von að illa fari. Davíð er horfinn úr stjórnmálastarfi Sjálfstæðisflokksins en í augum andstæðinganna er hann þar ennþá og stjórnar öllu að tjaldabaki. Því er ekki mótmælt. Jafnvel heyrast þær raddir meðal Sjálfstæðismanna að fórna eigi Davíð, hvernig svo sem það er hægt.
Staða Sjálfstæðisflokksins er orðin afar slæm. Hann er í raun klofinn í fjölmörgum málum. Nefna má Evrumálið, aðild að Evrópusambandinu, landbúnaðarmál og fleira. Við meðaljónarir í flokkum stöndum ráðalausir og horfum á málsmetandi Sjálfstæðismenn færa rök fyrir ESB aðild og aðra ekki síður trausta mótmæla því. Sumir vilja evru, aðrir ekki, til eru þeir sem krefjast innflutningsfrelsis á landbúnaðarvörum, aðrir ekki.
Þingmenn flokksins þegja yfirleitt þunnu hljóði. Sumir segja þagnarbindindið sé fyrirskipun stjórnar þingflokksins. Aðrir segja þingmenn einfaldlega ráðþrota, málþrota. Fjölmargir mætir þingmenn hafa brugðist vonum kjósenda sinna. Virðast í besta falli vera samviskusamnir kontóristar í sölum Alþingis. Sama má segja með suma ráðherra sem virðast einfaldlega vera í gíslingu ráðuneyta sinna. Staðan er að minnsta kosti sú að þeir þegja þunnu hljóði og jafnt um stjórnmál sem hugsanleg afrek þeirra innan ráðuneyta. Þeir einu sem upp standa lenda í fárviðri ófrægingarherferða. Skiptir engu máli hversu frjóir og góðir þeir eru í starfi sínu, þeir fá sömu meðhöndlun og Davíð.
Hvað má verða til að breyta hinni ömurlegu stöðu Sjálfstæðisflokksins? Nýtt fólk, nýjar baráttuaðferðir, skara í glæður hugsjónanna ... Framar öllu efla alla kynningu. Skipa mönnum að tala.
Það hefur lengi verið regla innan Sjálfstæðisflokksins að efna ekki til óvinafagnaðar með opinberri gagnrýni á flokkinn og forystuna. Þetta er góð regla, en hún gildir ekki þegar vandamálin blasa við og lítið sem ekkert er gert til mótvægis. Að minnsta kosti er sá vinur sem til vamms segir.
Forsendurnar hafa ekki breyst
13.10.2008 | 18:06
Sjávarútvegsráðherra hefur lýst þeirri skoðun sinni að ekki eigi að auka við þorskveiðikvótann þrátt fyrir efnahaghremmingarnar. Hann hefur rétt fyrir sér enda ljóst að gengi fiskistofnanna ræðst ekki af gengi krónunnar.
Sama gildir með umhverfismat vegna álvers á Bakka. Forsendur ákvörðunar um umhverfismatið breytast ekki þrátt fyrir að efnahagsaðstæður séu aðrar núna en fyrir mánuði.
Menn verða einfaldlega að gera sér grein fyrir þeirri hættu sem getur skapast ef farið er að hringla með þessi mál. Auk þess hljóta stjórnvaldsákvarðanir að stand nema því aðeins og þær séu illa grundaðar.
Það er svo allt annað mál og ekki síður alvarlegt ef ráðherra hefur ekki haldbær rök fyrir ákvörðunum sínum. Mér sýnist þó að bæði sjávarútvegsráðherra og umhverfisráðherra standi sig alveg prýðilega í stykkinu.
![]() |
Allt í fína á Bakka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Enginn hlustar, enginn les ...
13.10.2008 | 15:14
Vinur minn einn hélt því fram að Davíð hefði orðið til þess að Kaupþing féll. Hann hafði rangt fyrir sér eins og í svo mörgu öðru þegar kemur að stjórnmálum.
Menn göspruðu um það sem Davíð átti að hafa sagt en engum datt í hug að skoða það sem hann sagði. Menn kjafta sig bara áfram án tillits til staðreynda og trúa öllu sem sagt er í bloggi. Menn trú því að Davíð sé vondur af því að fjöldi manna hefur sagt það nógu oft og nógu lengi. Enginn hlustar lengur, enginn les.
Nú er kjörtíð fyrir Gróu á Leiti. Við eigum að lesa okkur til áður en við fullyrðum. Það er grundvallaratriði. Hvað sagði svo Davíð sem varð þess valdandi að Kaupþing féll? Kannski er hann alsaklaus af því.
![]() |
Hvað sagði Davíð? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Dilkakjötið á 699 kr/kg
13.10.2008 | 13:33
Það skyldi þó ekki vera að íslenskur landbúnaður muni bjarga þjóðinni enn einu sinni. Í langan tíma hafa fjölmargir krafist þesss að innflutningur erlendra landbúnaðarafurða verði gefinn frjáls. Sem betur fer hefur það ekki verið gert ennþá enda hafði það gert því sem næst útaf við landbúnaðinn.
Staðreyndin er einfaldlega sú að við þurfum á innlendum landbúnaði að halda. Hvert einasta ríki verður að geta treyst því að geta brauðfætt landsmenn sína. Þetta á jafnvel enn frekar við um eyland eins og Ísland. Menn trúðu því ekki að til þess geti komið að innflutningur á matvælum geti stöðvast. Margir hlógu hrossahlátri og sögðu að ekkert gæti komið í veg fyrir innflutning. Aldrei neinar styrjaldir, aldrei sjúkdómar í gróðri, alltaf verða til skip, alltaf verða til umframafurðir hjá öðrum. En hvað hefur gerst? Núna vantar einfaldlega gjaldeyri til að kaupa inn matvæli. Greinilega liggur fæðuöryggi okkar í landbúnaðinum.
Ég treysti á íslenskan landbúnað. Er á leiðinni í Sölufélag Austur-Húnvetninga, sem er sláturhúsið á Blönduósi, og ætla að kaupa þar ýmislegt. Þar kostar dilkakjötið í heilum skrokki 699 kr/kg, frosið lambalæri 1.100 og af veturgömlu er kílóverðið enn lægra. Og hjörtun sem er herramannsmatur kostar 190 kr/kg hjá SAH.
Svo ætla ég að fara til Móa og athuga hvort ég fái ekki frosna kjúklinga á góðu verði.
Nei, ég er ekki að hamstra, en allur er varinn góður ...
![]() |
Íslendingar birgja sig upp af mat |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fellur á Silfur Egils
12.10.2008 | 14:20
Silfur Egils er stundum afar áhugaverður þáttur. Í hann koma margir góðir menn og segja ýmislegt spakt. Vandi þáttarins er hins vegar stjórnandinn. Hann virðist vera mjög óskipulagður, grípur oft frammí fyrir viðmælendum sínum og slítur stundum í sundur áhugaverðar pælingar með óáhugaverðum innskotum sínum.
Oft koma í þáttinn til hans frábærir gestir eins og til dæmis Jón Ásgeir Jóhannesson sem taldi ekki eftir sér að mæta til Egils í dag. Hann hefur áreiðanlega séð eftir því og mun eflaust hugsa sér tvisvar um áður en hann mætir aftur.
Yfirleitt er það kostur ef blaðamenn, fréttamenn eða þáttastjórnendur halda hlutleysi sínu gagnvart viðmælendum sínum. Það er kostur og er til styktrar. Egill tók í þættinum klára afstöðu gegn Jóni Ásgeiri. Tilfinningarnar báru hann ofurliði og hann lét sé sæma að vaða úr einu í annað og kasta fram margvíslegum og ógrunduðum ákærum en Jón Áseir fékk fá tækifæri til að tjá sig.
Í stað þess hefði Egill átt að undirbúa þáttinn. Lista upp spurningar í ákveðinni röð og halda sig við þær. Einnig hefði hann átt að hafa skynsemi til að hlusta á það sem Jón Ásgeir segði en ekki láta upplögð tækifæri framhjá sér fara og spyrja nánar.
Það sem hefði getað orðið gott viðtal fór í dag í súginn vegna þess að stjórnandinn missti stjórn á sér, hann ætlaði sér einfaldlega að taka Jón Ásgeir af lífi fyrir meintar sakir. Fyrir mitt leyti varð ég fyrir vonbrigðum með þáttinn eins og svo oft áður.
Nallinn verður sunginn
10.10.2008 | 10:56
Nornaveiðarnar eru byrjaðar. Nú vilja menn hengja einhvern í hæsta gálga og sökudólgurinn er auðvitað Davíð Odsson. Maðurinn sem olli heimskreppunni, heimilaði sukk útrásarvíkinganna, vondi kallinn sem stóð fyrir einkavæðingu bankanna og gott ef það er ekki honum að kenna að Ingibjörg og Ólafur Ragnar lögðust inn á sjúkrahús. Já hengjum hann í hæsta tré. Og í visir.is stendur:
... Nallinn verður sunginn og gjallarhorn verður til staðar fyrir þá sem taka vilja til máls. ...
Gera má fastlega ráð fyrir að aðstandendur fundarins sé ósköp venjulegt alþýðufólk sem leggi rök sín málefnalega fyrir fundargesti.
Nú hefðum við þurft fjölmiðlalögin
10.10.2008 | 09:59
Mogginn hefur alla tíð verið yfirburðarblað. Stundað áreiðanlega og góða fréttamennsku undir stjórn afar góðra ritstjóra og blaðamennirnir hafa margir hverjir verið hinir bestu á landinu.
Hins vegar hvarflar hugurinn aftur til þeirra daga er ætlunin var að setja lög um eignarhald á fjölmiðlum. Finnst fólki það réttlætanlegt að ein útgáfa hafi með höndum langstærsta hluta dagblaða og tvö fyrirtæki skipti næstum til helminga á milli síni markaði fyrir útvarp og sjónvarp? Það var röng ákvörðun af forseta Íslands að leggjast gegn fjölmiðlalögunum, það sannast núna.
Það getur varla verið hollt fyrir þjóðfélagið aðilar skipti markaðnum á milli sín. Það er ekki gert með vilja neytenda enda stendur þetta áreiðanlega þvert í hausnum á fleirum en mér. Skyldi ekki vera kominn grundvöllur fyrir nýju dagblaði?
![]() |
Fréttablaðið og Árvakur saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Allir búnir að fá hundleið á þessari þjóð
10.10.2008 | 08:34
Fjölmiðlar hafa talið okkur trú um að Íslendingar væru eiginlega guðs útvalda þjóð, flottir, gáfaðir, allt sem þeir gera erlendis væri alveg hreint stórkostlegt.
Fyrir mörgum árum átti ég ákaflega skemmtilegt samtal við þingmann eins af frændþjóðum vorum á Norðurlöndunum. Hann sagði mér aðra sögu. Íslensk stjornvöld og íslenskir þingmenn væru sívælandi og sífrandi um smæl landsins og hversu aðrir væru vondir við þá. Þess vegna, sagði þessi þingmaður, þyrfti sífellt að taka tillit til sérstöðu Íslands og landið fengi alls kyns undanþágur sem öðrum stæðu ekki til boða. Ekki kann ég að meta sannleiksgildi þessara orða. Hitt vita allir núna að heimurinn er harður og þar verða menn og þjóðir að standa sig.
Gæti ekki verið að þessi mistök sem sagt er að Bandaríkjamenn og Evrópuríki hafi gert í fjármálakreppunni eigi rót sína að rekja í hreinum leiða, hundleiða á þessari litlu og freku þjóð. Þjóð sem hagar sér þannig að halda mætti að í 50 milljónir manna tilheyrðu henni en ekki 300 þúsund.
Nú, þegar búið er að gera okkur að vanskilamönnum í hinum stóra heimi er ástæða til að fara með veggjum, einbeina sér að innri málefnum þjóðarinnar, byggja upp frá grunni því svo virðist sem allt fjármálakerfi þjóðarinnar er hrunið. Geyma utanríkismálin til betri tíma þegar sjálfstraustið verði svo mikið að við getum hagað okkur eins og milljónaþjóðirnar.
Og eflaust er það rétt mat hjá Bandaríkjamönnum og Evrópuríkjum að raunveruleg hætta sé á því að Ísland verði um of háð rússneska birninum. Kannski hafa Rússar einhver not fyrir okkur. Vildi ekki Sírínovsky, sællar minningar, gera landið að fanganýlendu og brúka Síberíu undir einhverja gagnlega starfsemi?
![]() |
Mestu mistökin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvar eru peningarnir?
9.10.2008 | 22:43
Hvar eru þessir peningar sem Bretar lánuðu bankanum? Ef ég greiði ekki af láninu mínu þá spyr bankinn ekki hvers vegna, honum dettur það ekki í hug. Hann hefur einfaldlega í hótunum við mig, krefst þess að ég borgi.
Það er auðvitað barbarismi á hæsta stigi ef banki á ekki peninga til að endurgreiða viðskiptavinum sínum. Maður hefði nú haldið að bankar gættu annarra peninga fram í rauðan dauðann. Síst af öllum hefði manni dottið í hug að innlánin færu í einhverja vafasamar tilfæringar í því skyni að hámarka ávöxtunina.
Fjöldi fólks skilur ekki hvernig komið er fyrir íslensku bönkunum. Menn geta endalaust kennt ríkisstjórninni um að hafa ekki sett lög og reglur sem takmarki ábyrgð hér innanlands, Seðlabankanum fyrir að hafa ekki verið nægilega vakandi eða stjórnendum bankanna fyrir að hafa ekki stjórnað þeim á heiðarlegan hátt. Endanleg ábyrgð hvílir hins vegar á eigendunum. Hvað í andskotanum voru þeir að gera?
Það þýðir hins vegar ekkert að kenna breskum stjórnvöldum um stöðuna, að þeir hafi verið of fljótir á sér, notað einhver hryðjuverkalög. Bankar eiga að hafa vaðið fyrir neðan sig, eignfjárstaðan á að vera svo sterk að þeir geti endurgreitt viðskiptavinum sínum. Til þess höfðu þeir peninga.
![]() |
Bretar settu 1% í Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hver gæti verið staðan án íslensks landbúnaðar?
9.10.2008 | 17:29
Margir hafa krafist þess að innflutningur matvæla verði gefinn frjáls. Nú eru hins vegar sú staða uppi að þó að innflutningur á landbúnaðarafurðum hafi verið frjáls þá gæti erlenda framboðið verið svo lítið að það dugi ekki fyrir eftirspurn hér innanlands.
Ekki gátu menn séð fyrir þessa efnahagskreppu sem nú er að fara illa með þjóðina og hugsið ykkur þá stöðu sem uppi væri núna ef ekki væri matvælaframleiðsla í landinu sem getur ráðið við að fæða þjóðina til lengri eða skemmri tíma.
Ég er varkár, kannski íhaldssamur, og þó ég sé hlyntur frelsi leyfi ég mér að staldra við og íhuga ýmis álitamál. Skoðum nokkur sem benda til þess að ekki skyldi gefa innflutning landbúnaðarafurða alveg frjálsan:
- Framleiðsla er dýrari hér á landi vegna náttúrulegra aðstæðna, uppskerur miklu færri en erlendis.
- Framleiðsla hér á landi er lífrænni" en víðast hvar annars staðar. Til dæmis má ekki nota fúkkalyf í fóður og hormónanotkun er bönnuð, varnir gegn skordýrum verða að vera náttúrlegar osfrv.
- Vegna sjúkdómsvarna er innflutningur á erlendum dýrastofnum er miklum takmörkunum háður og þar með verður öll ræktun erfiðari.
- Svokallað matvælaöryggi" landsins byggist á því ef einhver ógn steðjar að annars staðar þá ætti þjóðin að geta brauðfætt sig. Nefna má styrjaldir, náttúruhamfarir af einhverju tagi, hrun í viðskiptum milli landa og fleira.
- Landbúnaður er alls staðar niðurgreiddur og víðast deila menn um réttlæti slíkra styrkja. Verði slíkir styrkir lækkaðir eða aflagðir hækkar verðið að sjálfsögðu.
Mönnum verður eðlilega hverft við svona upplýsingar og þeir sem hæst hrópa um landbúnaðinn draga djúpt andann nokkrum sinnum og fara að hugsa.
Ég hef marga spurt hvort þeir séu þeirrar skoðunar að þessi fimm atriði hafi verið fundin upp til þess eins að hækka vöruverð hér á landi. Nei, að sjálfsögðu ekki.
Svo stendur alltaf einhver upp og heldur því blákalt fram að ekki sé hægt að stunda landbúnað hér á landi og best sé að leggja hann af nema sem frístundabúskap. Aldrei verði slíkar aðstæður í heiminum að við getum ekki flutt inn landbúnaðarafurðir, þetta sé allt tómt kjaftæði. Svona er ekki hægt að rökræða.
Ég hef lengi verið hugsi yfir þessum fimm atriðum og hef ekki enn komist að niðurstöðu.
Menn hafa margir haldið því fram að engin hætta sé á að framboð matvæla frá öðrum löndum geti stöðvast. Atburðir síðustu daga sýna svo ekki verður um villst að sú skoðun er alröng. (Sjá nánar þessa greinina Matvælaöryggi er lífsnauðsynlegt á slóðinni http://sigsig.blog.is/blog/sigsig/?offset=10)
![]() |
Krefjast staðgreiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er kreppan virkilega alþjóðleg?
9.10.2008 | 13:52
Nei, hvur fjandinn. Kreppan er þegar öllu er á botninn hvolft alþjóðleg. Af fjölda bloggsíðna mætti halda að hún sé Davíð Oddssyni að kenna.
Menn þurfa hér á landi að halda stillingu sinni og gleyma sér ekki í nornaveiðum. Ýmislegt bendir til þess að fjölmargir ætli nú aldeilis að slá sér upp og finna blórabögglanna og helst taka þá af lífi án dóms og laga.
Nornaveiðar og múgæsing hefur aldrei leitt neitt gott af sér, mannkynssagan sannar það. Mestu er um vert að halda stillingu sinni og beita gagnrýnni hugsun á allt sem valdið getur upphlaupi og óeirðum.
![]() |
Bandarískir bankar hugsanlega þjóðnýttir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Banki sem gerði meiri kröfur til annarra
8.10.2008 | 15:32
Ýmsir eiga harma að hefna gagnvart Landsbankanum sem oft sýndi viðskiptavinum sínum litla linkinda í erfiðleikum þeirra. Bankinn lagði sig í líma við að muna allt, gleyma engu og snýtti aumum sparifjáreigendum hvenær sem hann gat. Landsbankinn var engin félagsmálastofnun eins og stjórnendur þeirra sögðu oft.
Nú er hann kominn að fótum fram. Fáir gleðjast, flestir undrast hvernig komið er fyrir bankanum sem virðist ekki eiga fyrir skuldum. Góðar líkur séu á að Landsbankinn í Bretlandi muni standa undir stærstum hluta innistæðnanna, segir í yfirlýsingu forsætisráðherra.
Sé svo hefur bankinn hagað sér þveröfugt við það sem hann prédikaði yfir viðskiptavinum sínum. Það eitt kemur gríðarlega á óvart að Landsbankinn skuli hafa gert meiri kröfur til viðskiptavina sinna en sjálfs sín.
Verst er þó hversu illa Landsbankinn og raunar hinir bankarnir líka hafa leikið orðspor landsins í Bretlandi. Næst verst er sú staðreynd að Landsbankinn taldi okkur trú um að staða hans væri miklu betri en hún hefur reynst vera.
![]() |
Eignir standi undir Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað í fjandanum á þetta að þýða?
8.10.2008 | 09:02
Almenningur er auðvitað fúll yfir hinni alþjóðlegu fjármálakreppu sem riðið hefur yfir heiminn en það er óhætt að segja að flestir séu ævareiðir yfir hrikalegri stöðu íslensku bankanna.
Einhvern veginn hefur maður staðið í þeirri trú að bankarnir hafi staðið mjög vel. Allar athugasemdir frá erlendum fjármálamönnum hafa í íslenskum fjölmiðlum verið afgreiddar sem öfund og rógur. Og ekki hafa fjölmiðlar dregið úr fréttaflutningi af hinum sigursælu og snjöllu íslensku bankamönnum.
Nú stendur hins vegar forsætisráðherra Stóra-Bretlands upp og segir að Bretar sem eigi sparifé sitt á reikningum Landsbankans eigi að fá það með skilum jafnvel þó íslensk stjórnvöld þurfi að blæða.
Hinir glæstu íslensku útrásavíkingar virðast ekki hafa staðið undir gylliboðum sínum. Fólk er einfaldlega ofsareitt, svekkt vegna ofurlauna, vonsvikið vegna svika og grautfúlt vegna þess að orstír lands og þjóðar hefur beðið gríðarlega hnekki og spyr hvað í fjandanum þetta allt saman eigi að þýða.
Undrar þá einhvern að þeirri skoðun vaxi nú fylgi að ríkisrekstur banka tryggi einfaldlega velferð almennings.
![]() |
Brown hótar aðgerðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Örfá „tilmæli“ Rússa
7.10.2008 | 09:28
Rússar hafa engin skilyrði sett fyrir láninu, aðeins sett fram nokkur tilmæli:
- Rússneskur áheyranarfulltrúi mun sitja fundi ríkisstjórnar
- Allir ráðherrar íslensku ríkisstjórnarinnar fá rússneska aðstoðarmenn
- Rússneskir áheyrnarfulltrúar munu setjast í allar sveitarstjórnir landsins
- Embætti ríkislögreglustjóra verður flutt til Moskvu
- Dönskukennslu verði hætti í skólum og rússneska kennd í staðinn
- Rússnesk sérnöfn verði viðurkennd sem íslensk nöfn
- Gengi krónunnar verði bundið við rúbluna
- Opnað verði fyrir erlenda endurfjármögnun íslenskra útgerða
- Embætti forseta Íslands verður flutt til Moskvu
- Alþingi verði Dúmunni til ráðgjafar í þeim málum sem varða Ísland
Þetta er svo sem ekkert tiltökumál. Aðalatriðið er að horfa til framtíðar, sýna æðruleysi og trúa og treysta á það afl sem býr í föðurlandinu, framtíðin er björt.
Sagt er að málverkið af Bjarna Benediktssyni í Höfða hafi fallið í gólfið í morgun og ramminn brostið ...
![]() |
Seðlabankinn fær lán frá Rússlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Korputorg er ekki Krepputorg
6.10.2008 | 23:32
Hún ku víst vera ansi flott verslanamiðstöðin sem fengið hefur nafnið Korputorg. Nafnið ætti líka að venjast vel. Frændi minn einn spurði mig hins vegar hvort ég hefði litið inn í Krepputorg? Fattaði ekki alveg strax hvað hann átti við en skildi svo seint og um síðir. Þar ríkir þó engin kreppa, alltaf fullt hús ef marka má fjölmiðlafregnir.
Ómar vinur minn glotti líklega út í annað þegar hann skrifaði um mikilvægi réttrar tímasetningar og birti svo mynd af auglýsingu frá Krepputorgi ... (úbs) Korputorgi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fjölmiðlar hamast enda ekkert PR
6.10.2008 | 14:41
Auðvitað vantar þjóðina svör. Væntanlega er verið að vinna að þeim. Á meðan hamast fjölmiðlar eins og vitlausir væru og undan þeim ganga alls kyns upplýsingar, sumar réttar, aðrar rangar og enn aðrar tóm endemis þvæla. Sumt sjá flestir í gegnum en annað þarf sérþekkingu til að skilja.
Hvað á að gera meðan sögsagnirnar grassera? Auðvitað þurfa stjórnvöld að sinna almannatengslum, senda út upplýsingar, gæta þess að fjölmiðlar fari ekki offari með það litla sem þó er vitað. Einnig þurfa stjornvöld að samhæfa upplýsingamiðlun. Það er ekki nógu gott að Þorgerður segi eitt, Björgvin annað og Geir það þriðja.
Það er ekki heldur nógu gott að formenn stjórnarandstöðuflokkanna komi út og gefi sögusögnum undir fótinn, segi ástandi miklu verra en þeir héldu.
Það er ekki heldur jákvætt þegar ASÍ sendir stjórnvöldum tóninn vegna þess að ekkert hefur verið haft samband við þá í hálfan sólarhring.
Það er ekki heldur gott þegar fjármálastofnanir vinna ekki heimavinnuna sína og leyfa sögusögnum að komast á kreik t.d. að Landsbankinn í Bretlandi geti ekki borgað sparifjáreigendum.
Það er alls ekki traustvekjandi þegar upplýsingafulltrúi Glitnis í Noregi stendur á gati í sjónvarpsviðtali og gengur síðan út.
Að lokum er það alls ekki viðunandi hversu langan tíma þetta allt virðist ætla að taka, en það flokkast einfaldlega sem slæmt PR.
![]() |
Lífeyrissjóðir vilja svör |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Rakalaus gagnrýni á Davíð!
4.10.2008 | 17:11
Herferðin gegn Davíð Oddsyni virðist engan endi ætla að taka. Fjöldi fólks telur sig þess umkominn að gagnrýna hann, ekki með rökum heldur með alls kyns upphrópunum. Enginn virðist geta rökstutt þessar ávirðingar.
Meðan Davíð var formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra mátti mómælendakórinn jarma eins og hann vildi því Davíð naut stuðnings flokksins og stórs hluta kjósenda. Eftir að Davíð varð seðlabankastjóri þá verður skynsamt fólk að gera greinarmun á honum og Seðlabankanum. Hann er einfaldlega einn af mörgum stjórnendum þar á bæ og varla mögulegt að hann fái þar öllu ráðið. Hins vegar er allt í lagi að gagnrýna bankann svo fremi sem það er gert með rökum.
Þeir sem ekki geta rætt um Davíð án þess að missa stjórn á skapi sínu eiga einfaldlega ekki að taka til máls. Þeir sem ekki fært rök fyrir sínu máli eiga að þegja ... eða ganga í flokk með ungum jafnaðarmönnum.
![]() |
Krefjast þess að Davíð víki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Glitnir fór að ráðum almannatengils
2.10.2008 | 11:21
Hvað gera þeir sem eiga undir högg að sækja? Jú, þeir kalla til almannaráðgjafa sem gefur þeim línuna, hvernig eigi að lágmarka skaðann. Almannatengsl eru í raun ekkert annað en markaðssetning á skoðunum, viðhorfum eða stefnu. Að þeim er unnið á margvíslegan hátt og það veltur að öllu leyti á eðli máls.
Ljóst er að stjórnendur Glitnis hafa átt undir högg að sækja gagnvart stjórnvöldum og virðast vera að missa bankann úr höndum sér til Seðlabankans. Hvernig má það vera? spyrja allir, ekki síst hluthafar Glitnis. Hvernig gat stjórn og stjórnendur glutrað niður stöðu fyrirtækisins sem þó virðis ekki tæknilega gjaldþrota heldur þjáist af lausafjárskorti.
Í bankann var kallaður almannatengslaráðgjafi og hann virðist hafa veitt þó ráð sem duga. Þar sem ég hef nokkuð komið nálægt almannatengslum og lesið mér pínulítið til í þeim fræðum þá tel ég mig geta fullyrt nokkurn veginn hvaða ráð almannatengslaráðgjafinn veitti.
Ráðgjafinn sagði:
1. Myndið ykkur eina skoðun og standið saman sem einn maður um hana.
2. Gefið út fréttatilkynningu um stöðu mála byggða á sjónarhorni ykkar.
3. Farið í fjölmiðla, viðtöl og umræðuþætti og rökræðið.
4. Haldið alltaf ró ykkar, endurtakið alltaf nokkur rök og látið ekki dreifa umræðunni um annað
Svo virðist sem breyting hafi orðið á skoðunum fjölmargra um Glitnismálið frá því síðasta mánudag. Margir segjast hafa skipt um skoðun, verið fyrst sammála stjórnvöldum en núna hlustað á rök Glitnismanna og breytt um skoðun. Aðrir segjast núna vera orðnir beggja blands, ekki geta áttað sig á því hvernig málin standa eða hver hafi rétt fyrir sér.
Hvernig sem á málin er litið þá hafa Glitnismenn unnið verulega á. Fjöldi manns virðist telja að ríkið hafi klekkt á bankanum, fengið hann fyrir lítið og staðan sé núna námkvæmlega hins sama og hafi stjórnvöld tekið til þess ráðs að veita neyðarlán.
Fátt fer nú fyrir rökum ríkisstjórnar og Seðlabanka. Kannski er ástæðan sú að stjórnvöld notast ekki við ráðgjafa í almannatengslum, þau eru betri í flestu öðru en að gera staðreyndir máls skiljanlegar fyrir okkur, óbreyttum almúganum.
Því miður er sá tími liðinn að einstaklingar, stjórnvöld eða fyrirtæki geti bara sagt það sem þau meina og ætlast svo til að allir skilji. Hlutverk almannatengla er meðal annars í því fólgið að gera flókna hluti skiljanlega, draga fram aðalatriði og svo ekki síst að koma þeim á framfæri við fjölmiðla.
Við sáum það svart á hvítu á Stöð2 í gærkvöldi er þau Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu og Sigurður Guðjónsson, lögmaður og stjórnarmaður í Glitni, vógust með rökum um yfirtöku ríkisins á bankanum.
Mættust þarna stálin stinn og var ljóst að Sigurður lögmaður mátti hafa sig allan við að svara hinum beinskeitta blaðamanni. Hann hélt þó ró sinni og gerði það sem rétt var, svaraði yfirleitt í einföldu máli en lét ekki Agnesi leiða sig til slátrunar.
Vandinn við sjónarmið þeirra Glitnismanna er nú einfaldlega sá að þeir hafa ekki talað einum rómi. Forstjóri bankans hefur virst vera sáttur við aðgerðir Seðlabankans en stjórnarmenn eru ósáttir. Það er líka aðeins ósannfærandi hversu seint þeir tóku við sér.
Staðreyndin er sú að þegar fyrirtæki á undir högg að sækja þá þarf að bregðast mjög fljótt við. Raunar strax. Skaðinn er skeður þegar ávirðingarnar birtast einar í fjölmiðlum. Skárra er þó að sjónarmið beggja birtist.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)