Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Á þetta fólk að ritskoða efni fjölmiðla?

„Mótmælendur“ telja sig þess umkomna að geta stöðvað starfsemi fjölmiðils að því að hann er að senda út sjónvarpsþátt sem þeir telja „froðukenndan skemmtiþátt“.

Já góðan daginn. Forræðishyggja þessa fólks er slík að það telur í lagi að koma í veg fyrir útsendingu vegna þess að ég og aðrir áhorfendur hafi einfaldlega ekkert gagn af þættinum.

Bestu þakkir fyrir hugulsemina. Hins vegar er ég í miklu betra standi til að velja mér sjónvarpsefni en þetta fólk og ég frábið mér alla forsjá í þessum efnum. Að mínu mati á þetta fólk ekkert með að ritskoða efni fjölmiðla?

Svo er það hinn alvarlegi hluti mótmælanna, undirtónninn, sem æ betur er að koma í ljós. „Mótmælendur“ eru ekki endilega að mæla gegn meintri spillingu, skorti á lýðræði og kröfu um meiri upplýsingu. Þeir eru með áróðri sínum að þröngva eigin pólitík upp á landsmenn. Við eigum að trúa því að hér séu á ferð heiðarlegir krossfarar en þess í stað er um að ræða lið sem vinnu gegn lýðræðinu og vill stjórna skoðanamyndun almennings.

Svo slæmt sem bankahrunið og alþjóðleg efnahagskreppa er fyrir þjóðina þá er enn verra þegar upp úr skúmaskotum birtist fólk sem í verki stundar skoðanakúgun og þessir örfáu einstaklingar nýta sér bylgju almennra mótmæl en verða svo beint og óbeint til að draga úr slagkrafti þeirra með öfgum sínum.


mbl.is Bjóðast til að greiða skaða Stöðvar 2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir meira um ræðumanninn en ráðherrann

Lítur út fyrir að þrátt fyrir góða vináttu kjósi Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir að snúa út úr orðum utanríkisráðherra og stinga hana í bakið. Ef til vill segir þessi atburður miklu meira um ræðumanninn en ráðherrann. Nema einhver kjósi að snúa málum á þann veg að ráðherrann hafi viljað þagga niður í ræðumanninum. Trúi því hver sem vill.
mbl.is Ingibjörg Sólrún kom boðum til Sigurbjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða getur réttlætt árásir á lýðræðislega starfsemi?

Þeir sem reyna að hindra störf Alþingis geta ómögulega verið lýðræðissinnar. Þeir munu að öllum líkindum beita öllum ráðum til að koma í veg fyrir að þeir sem þeim eru ekki þóknanlegir geti nýtt sér lýðræðislegan rétt sinn til að taka þátt í starfsemi stjórnmálaflokks.

Hér vakna margar spurningar.

Getur verið að þessir „mótmælendur“ muni reyna með öllum ráðum að koma í veg fyrir að fólk komist inn á landsfund Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöllinni í lok mánaðarins eða trufla starfsemi hans?

Eru ekki mótmælin þá farin að snúast upp í andhverfu sína þegar markmið þeirrra er að hindra lýðræðislega starfsemi í landinu? Er einhver málstaður þess virði? Er eitthvað til sem getur réttlætt árásir á lýðræðislega starfsemi?


mbl.is Tveir mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

324 milljarða hagnaður ríkissjóðs á tíu árum

Miðað við stöðu mála gæti það virst talsverð bjartsýni að afgangur verði næst af rekstri ríkisins árið 2013. Og fjögur ár eru langur tími í stjórnmálum.

Frá því 1998 hefur ríkissjóður verið rekinn með 324 milljarða hagnaði. Stór hluti af þessum tekjum hefur eflaust komið frá bankastarfsemi, þ.e. starfsemi einkabankanna gömlu. Svo svakalegar skattekjur munu eflaust ekki skila sér að óbreyttu í ríkissjóð. Hins vegar er ljóst að gríðarlegur halli á ríkissjóði ætti ekki að vera það vandamál sem margir óttast svo framarlega sem hann skili sér í uppbyggingu hér innanlands - verðmætasköpun.

Svo má alveg minna á að bankakreppan er ekki séríslenskt fyrirbrigði, hún á rætur sínar í alþjóðlegri bankakreppu sem virðist nú vera orðin að mikilli efnahagslægð eða kreppu. Í umræðu dagsins virðist sem að þetta sé ekki öllum ljóst.


mbl.is Ríkissjóður í jafnvægi 2013
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki brugðist

Mér finnst nú alveg sjálfsagt að gera greinarmun á Sjálfstæðisstefnunni og því fólki sem hefur valist til að koma henni í framkvæmd. Einhvern veginn held ég að Guðmundur sé að fjalla um fólk en ekki stefnu. Okkur gefst vonandi tækifæri til að skipta um hluta af þingmönnum í næsta prófkjöri.

Sjálfstæðisflokkurinn er einn og hinn sami í landsmálum og sveitarstjórnum. Í honum eru um fjörtíu þúsund manns og þar er mikið mannval og okkur ætti varla að verða skotaskuld úr því að endurnýja forystusveitina enda á einginn einn fortakslaust rétt á sæti á framboðslistum.

Þetta lýðræði er kannski ferlega þungt í vöfum og erfitt, en það er það besta sem er í boði. Sjálfstæðisflokkurinn er lýðræðislegur flokkur og við veljum okkur forystumenn á lýðræðislegan hátt. Sitjum svo uppi með ef þeir standa sig ekki.

Annað hvort berjumst við fyrir hugsjónum okkar innan flokksins eða hættum í honum. Millivegurinn er enginn. Hafi einhver brugðist þá er það ekki Sjálfstæðisflokkurinn, miklu frekar hafa þingmenn hans og ráðherrar brugðist væntingum okkar.


mbl.is Hagsmunaárekstur félags og flokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Langar og leiðinlegar þulur í stað skýringamynda

Færð

Skrýtið hvað blaðamenn eru fíknir í að skrifa í stað þess að nota myndir, teikningar eða töflur til skýringar. Hér hefur blaðamaðurinn horft á kort Vegagerðarinnar um veður og færð og skrifað niður það sem þar kemur fram. Hefði nú ekki verið nær að birta kortið, eitt eða fleiri.

Því miður er þetta ekki einsdæmi. Fjölmargir blaðamenn geta ekki komið frá sér upplýsingum nema í löngum þulum en slíkt er lítið skemmtilegt til aflestrar.

Fjölmiðlafólk þarf að venja sig við að líta á málin frá sjónarhorni neytandans. Hvað kemur lesandanum best? Ég fæ til dæmis sáralítið út úr þessum texta í greininni:

Á Norðurlandi er snjóþekja, hálka, hálkublettir, skafrenningur og éljagangur.

 Hins vegar fæ ég miklu meiri upplýsingar úr meðfylgjandi korti frá Vegagerðinni.Það er auðvitað bara bull að alhæfa svona um heilan landshluta.

Veður

Ég get svo sum ekkert fullyrt um veðrið annars staðar á Norðurlandi en hér á Skagaströnd hefur verið hríð frá því snemma í morgun en ekki éljagangur. Trúlega er flughált víðast um Húnavatnssýslur. Og miðað við meðfylgjandi veðurspámynd fyrir klukkan 18 í dag frá Veðurstofunni þá virðist veðrið vera eins á Norðurlandi vestra, en samkvæmt sömu spá fyrir Norðurland eystra þá er veðurhæðin miklu minni þeim megin. Það er því rangt sem fram kemur í fréttinni að veðrið fari versnandi á Norðurlandi

Ekki veit ég hvað átt er við með orðinu „snjóþekja“. Vissulega er snjór á vegum en hann treðst niður og það veltu á hitastigi hvernig hann verður, verði að ís, krapa, eða kannski hreinsist úr hjólförum. Þetta orð er hins vegar mjög vinsælt meðal fjölmiðlamanna en frekar gagnslítið fyrir ökumenn.


mbl.is Veður fer versnandi á Norðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þurfum fleiri eins og Björn Bjarnason

Ég hef enga trú á að þessi frétt sé rétt. Björn Bjarnason hefur verið afar öflugur ráðherra og er yfirburðar stjórnmálamaður. Þekking hans er gríðarlega mikil og hann er heiðarlegur og einlægur í verkum sínum.

Persónulega þekki ég Björn ekkert er ekki einu sinni málkunnugur honum. Hins vegar hef ég verið samferða honum í Sjálfstæðisflokknum frá því ég gekk í hann sextán ára að aldri. Á frægu þingi ungra Sjálfstæðismanna á Egilsstöðum kaus ég Friðrik Sófusson sem formann enda vissi ég vala nokkur deili á Birni. Það hefur þó breyst í gegnum árin og eftir að hann gaf kost á sér í stjórnmál hef ég verið harður stuðningsmaður hans í flestum prófkjörum.

Greinilegt er að andstæðingar Björns hafa lagt hann í einelti. Hann hefur verið sakaður um slæmar embættisfærslur, ráðningar hans í embætti hafa verið umdeildar og andstæðingar hans hafa gert að því skóna að annarlegar hvatir liggi að baki öllum hans ákvörðunum.

Auðvitað mega menn halda því fram sem þeir vilja en þegar öll kurl hafa komið til grafar getur enginn sýnt með rökum fram á að ásakanir þeirra séu réttar. Hins vegar eru gaspra ýmsir mikið og étur þar hver vitleysuna upp eftir öðrum þangað til hún er orðin að stórasannleik.

Annað mál er að oft eru uppi tvennar eða fleiri skoðanir á því sem stjórnmálamenn og ráðherrar gera. Við slíku er ekkert að segja. Skynsamlegt er að rökræða um gerðir annarra og er það háttur góðra stjórnmálamanna. Slíkt gerir Björn jafnan og kveinka sér andstæðingar hans undan föstum skotum.

Áróður andstæðinga Sjálfstæðisflokksins hefur undanfarin ár einkum beinst gegn Davíð Oddssyni og Birni Bjarnasyni. Ástæðan er einföld út frá áróðurstækni en hún hljóðar svona: Takist að gera sterkustu andstæðinganna tortryggilega þá tætist fylgið af flokki þeirra.

Út frá þessu var gengið fyrir mörgum árum, líklega fyrir Borgarnesræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og enn þann dag í dag glymur áróðurinn gegn Birni og hefur jafnvel náð inn í raðir Sjálfstæðismanna. Það breytir því þó ekki að þeir sem þekkja til starfa Björns eru nær einum rómi um ágæti mannsins og þess sem hann hefur áorkað t.d. í dómsmálaráðuneytinu. Þær breytingar sem gerðar hafa verið á dómskerfinu og lögregluumdæmum landsins voru ekki þess valdandi að fólk risi upp þúsundum saman og héldi mótmælafundi. Nei, breytingarnar gengu því sem næst snurðulaust fyrir sig jafnvel þótt margir væru á móti þeim en þá á málefnalegum forsendum.

Við megum ekki við því að missa Björn Bjarnason en hins vegar þurfum fleiri stjórnmálamenn eins og hann. Ég fullyrði að Björn á sér gríðarlega mikið fylgi innan Sjálfstæðisflokksins og fæstir munu verða sáttir ákveði hann að draga sig í hlé.


mbl.is Fullyrt að Björn hætti eftir landsfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Staðreyndalaust svartsýnisraus sem kallast frétt

Frekari upplýsingar vantar í þessa frétt svo hún standi undir nafni. Mikilsverðast er að fram komi hversu margir starfsmenn eru hjá þessum 3.500 fyrirtækjum. Í öðru lagi fjölda starfsmanna miðað við atvinnugreinar. Í þriðja lagi þarf að koma fram hver velta þessara fyrirtækja er og hvernig hún skiptist á milli atvinnugreina.

Allt of mikið er um ófullburða fréttir, sem segja í raun og veru sáralítið.Gæti til dæmis verið að stór hluti af þessum 3.500 fyrirtækjum séu án starfsmanna, þá nokkur konar eignarhaldsfélög eða félög sem ætlað er að standa í braski og taka skellinn fyrir eigendur sína? Hversu mörg þessara fyrirtækja eru eins manns einkahlutafélög, þ.e. félög eru nokkurs konar verktakar, t.d. einn eigandi og eignin sé eitt tæki eins og vörubíll, grafa eða þessháttar.

Allar frekari upplýsingar eru til að varpa ljósi á frétt sem varla er fugl né fiskur í því formi sem hún er birt. Það er hins vegar ábyrgðarhluti að kasta fram í fyrirsögn að þetta mörg fyrirtæki séu að fara í þrot. Nóg er af svartsýnisrausi íslenskra fjölmiðla nú þegar en fátt eitt gert til að sýna þá uppbyggingu sem sannarlega er í gangi.


mbl.is 3.500 fyrirtæki í þrot?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dirgurbarkaleg ummæli hálaunamanns

Hugmyndin er ábyggilega góð. Hver ætlar að vera fyrstur? Hver ætlar að hætta að borga skattana sína, afborgarnirnar af húsnæðisláninu, bílaláninu og námsláninu? Ég er ansi hræddur um að gamanið fer að kárna þegar húsnæðið er hirt af manni, bíllinn líka og maður verði loks gjaldþrota og á götunni. Þess vegna er þetta arfaslakt ráð hjá bæjarstjóranum og honum til skammar.

Margir tala svona digurbarkalega eins og bæjarstjórinn en það er ábyrgðarhluti. Húsnæðisvandinn er ekkert gamanmál, og ekki heldur gjaldþrotið. Miklu betra er að semja og reynda halda í sitt, að minnsta kosti meðan einhverja vinnu er að fá. Ólafur H. Sigurðsson bæjarstjóri býr án efa í eigin húsnæði á Seyðisfirði, með 800 þúsund krónur í mánaðarlaun, tryggða vinnu að minnsta kosti til næstu kosninga, með bílapeninga og dagpeninga og fleira og fleira. Hann er ekki góður ráðgjafi í fjármálum almennings ef hann getur ekki komið með betri lausnir en þær að hætta að greiða. Með því að fara að ráðum bæjarstjórans er stefnt á kaf í ófærur.

Það sem er miklu betra er að setja þrýsting á stjórnvöld um að þau komi með lausn á vandanum. Hún kann að vera sú að myntkörfulánin verði einfaldlega gerð upp og þau stillt eins og gengið var einhvern tímann á síðasta ári. Síðan verði lánin endurnýjuð miðað við aðrar aðrar viðmiðanir.

Þetta er eiginlega eins og pennastrikið fræga sem Albert Guðmundsson talaði um í gamla daga. Guð veit að hafi einhvern tímann verið þörf fyrir pennastrik þá er það núna.


mbl.is Ekki borga skuldir bankahrunsins segir bæjarstjórinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegir krakkar í VG

Alltaf skemmtilegir krakkarnir í VG. Einatt uppáfinningasamir og fjörugir. Dreg það ekki í ef að starfsfólki bankans þykir reglulegagaman að fá þá í heimsókn.

Og þetta með grímurnar. Einstaklega áhrifarík aðferð til að hverfa inn í hjörðina, verða að andlitslausum hópi. Þetta gefur kjarklitlu krökkunum hugrekki, þeir geta sleppt fram af sér beislinu í skemmtun sinni.

Tek það skýrt fram að þessir skemmtilegu krakkar eiga stuðning minn allan. Burt með alla þessa stjórnendur sem voru á kafi í spillingunni og sérgæðunum.


mbl.is Elín borin út úr bankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband