Hver er sök Landsvirkjunnar?

Það er eins og þetta sé háalvarlegt svikamál. Lítið sveitarfélag þarf að breyta aðalskipulagi hjá sér og sá aðili sem valdur er að stærstum hluta breytinganna greiðir kostnaðinn. Og hvað með það?

Umhverfisráðherra gerir sig nú gildan og heimtar upplýsingar. Gæti verið að ekki sé nógu mikið að gera á þeim bæ eða saknar ráðherrann athygli fjölmiðla.

Samgönguráðuneytið er búið að skera úr í þessu máli. Ætti einhver einhver annar hlut að máli en Landsvirkjum væru samgönguráðherra og umhverfisráðherra í mikilli samkeppni um að fá að lýsa því yfir að breyta þyrfti lögum litla sveitarfélaginu í vil.

En munum að Landsvirkjun er „ljóti kallinn“ og nú þarf að rannsaka „sök“ þess. 


mbl.is Óskar eftir frekari upplýsingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Þetta kallast mútur á mannamáli Sigurður

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 4.9.2009 kl. 19:44

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þú virðist nokkuð viss ...

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 4.9.2009 kl. 19:46

3 Smámynd: Rauða Ljónið

Málið er einfalt ríkisstjórnin vill athygli og vinsældir þó svo að hún hafi vitað af þessu samkomulagi árum saman.

Hann er sollið lasinn þessi Jóhannes B.

Rauða Ljónið, 4.9.2009 kl. 19:53

4 identicon

Sökin liggur í lögbroti, Sigurður. Róbert Spano er mikill lögspekingur. (og söngvari ef það er issjú)

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 20:34

5 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Nú stendur Landsvirkjun illa, dæm fyrir lögbrot af ...

Hvar kemur Spano inn í málið, fóstri.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 4.9.2009 kl. 21:14

6 Smámynd: Ingimundur Bergmann

Sökin í þessu máli er ekki önnur en sú að í stað þess að verða rukkuð þá borgaði Landsvirkjun útlagðan kostnað samkvæmt samningi. Ja, hvílíkt hneyksli og skömm. Það er vont en það venst, og þó!

Ingimundur Bergmann, 4.9.2009 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband