Upphlaupsmenn og kjaftaskar á jóladag

Jólakort 2020ccÞað er svo margt gott á jarðríki. Verst er samt mannfólkið. Ekki allt, bara sumt. Raunar frekar fáir. Örfáir. Og eins og frúin sagði; vont fólk er ekkert verra en annað fólk. Nærstaddir hváðu en hún skýrði þetta ekki nánar.

Æsingurinn í þjóðfélaginu er dálítið mikill. Auðvitað var það afar vanhugsað hjá fjármálaráðherranum og frú hans að gæta ekki að sér og forða sér úr margmenninu í Ásmundarsal. Efast samt um að ég hefði hlaupið út enda er ég ekki með þeim skörpustu.

Hann á að segja af sér, hrópa æstir pólitískir andstæðingar Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra. Við, samherjar hans, segjum ekki margt honum til hnjóðs nema það eitt að hann hefði átt að ... Hefði átt! Þetta orðalag er þrungið fullvissu og bendir til að sá sem þannig talar sé miklu klárari en aðrir, greindari og upplýstari. 

Nú er svo orðið sem mælt er að skamma stund verður hönd höggi fegin.

Svo sagði Síðu-Hallur við brennu-Flosa í Njálssögu.

Hefur það jafnan verið svo að upphlaupsmenn og kjaftaskar hafa aldrei haft neinn árangur af kjaftagangi sínum en verið sáttir við sjálfa sig eina örskotsstund. Sést það mætavel í athugasemdadálkum fjölmiðla og víðar. 

Í Landakotskirkju var messa á aðfangadagskvöld. Má vera að hana hafi sótt fleiri en eitthundrað manns og gættu því miður fæstir að sóttvörnum. Kjaftaskarnir í athugsemdadálkunum láta ekki sitt eftir liggja og fordæma kaþólsku kirkjuna og bannfæra alla sem að henni standa sem og kirkjugesti og líklega alla afkomendur þeirra. Sjá visir.is

Einn athugasemdaskrifari segir svo skýrlega: 

Bergur Ketilsson: Messugestir á lista sem notaður ætti til að velja frá ef við lendum í þröngri stöðu á sjúkrahúsunum, já og Bjarna líka á listann

Annar skarpgreindur segir: 

Sigþór Guðjónsson: Vantar prestinum þarna meira að gera .....fleiri jarðafarir kanski ???

Og einn reynir að koma af stað sögusögnum:

Magnús Skarphéðinsson: Var Þorgerður Katrín þingmaður þarna?

Og þarna er skammt í öfgarnar:

Friðjón Árnason: Auðvitað á að loka kirkjunni og innsigla hana þar sem það verða pottþétt fleiri fjöldasamkomur þar nú um hátíðirnar. Barnaníðingakirkjan fer sínu fram í þessu sem öðrum lögbrotum og níðingsverkum eins og alltaf áður.

Held að þeir sem skrifa í athugasemdadálka fjölmiðla veitti ekki af því að hugsa áður en það talar. Flestir hafa eiginlega skömm á þessu skrifum og er óskiljanlegt að nokkur fjölmiðill skuli halda úti vettvangi fyrir svona óþverra. Hefur eitthvað málefnalegt birst í athugasemdadálkunum? Afar sjaldan. Enginn tekur mark á þeim sem þarna skrifa. Þeir sem tala af hófsemd og virðingu hafa áhrif.

Stjórnmálamenn reyna yfirleitt að eigna sér hneykslismálin. Aðalatriðið í þeirra augum er að komast í fréttir fjölmiðla. Þess vegna skrifa þeir á Fésbókina og eru ekki að skafa utan af því. Margir þeirra lifa á slíku. Píratinn alræmdi Jón Þór Ólafsson segist ætla að leggja fram tillögu um vantraust á fjármálaráðherra. Hér má lesa um Jón Þór og hér og hér. Hann lagðist gegn hækkun kjararáðs á launum alþingismanna og ætlaði að kæra ákvörðunina. Það gerði hann ekki en, gerði í raun ekkert þrátt fyrir stór orð um hið gagnstæða. Hirti bara launahækkunina eins og aðrir þingmenn, fitnaði á henni og lifir nú sællífi. 

Ég gæti að mínum sóttvörnum. Það er þeirra mál sem ekki gæta að sínum. Mitt verkefni er ekki að fordæma þá sem gæta sín ekki. Ekki einu sinni þá sem blaðra sem mest, nema auðvitað Jón Þór Ólafsson, alþingismann. En öllum skal samt óskað gleðilegra jóla.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband