Jólakveđjur á Ţoddláki ... svo jólalegt

kallariÍ morgun gekk ég út á svalir, eins og ég geri jafnan árla á Ţorláksmessu, dró nokkrum sinnum djúpt andann og hrópađi síđan af öllum kröftum:

Sendi ćttingjum og vinum bestu óskir um gleđileg jól og heillaríkt nýtt ár. Ţakka allt á árinu sem er ađ líđa.

Svo beiđ ég í dálitla stund ţangađ til svörin bárust:

Já, sömuleiđis, gleđileg jól, kallađi einhver.

Haltu kjafti, helv... ţitt. Fólk er ađ reyna ađ sofa hérna, öskrađi rámur kall.

Ha ..., kaseiru? hrópađi skrćk kona.

Hundur gelti, annar tók umsvifalaust undir og köttur mjálmađi. Nagladekk skröltu á íslausu malbiki.

Ég gekk inn í stofu, nennti ekki ađ hlusta á hundgá, jafnvel ţótt fyrr eđa síđar myndi hundur sonar míns, hann Fróđi (sko hundurinn heitir Fróđi ekki sonurinn) hugsanlega gelta, mér eđa einhverjum öđrum til ánćgju.

Engu ađ síđur velti ég ţví samt fyrir mér hvort ekki vćri skynsamlegra ađ senda jólakort eđa tölvupóst. Ţetta hef ég hins vegar gert á Ţorláksmessu frá ţví ég var barn og međ ţví sparađ mér ótrúlegar fjárhćđir í kaupum á jólakortum og frímerkjum.

Nú kann ábyggilega einhver ađ misskilja mig og halda ađ ég sé ađ gagnrýna ţann hálfra aldar gamla siđ ađ senda jólakveđjur á gufunni Ríkisútvarpsins.

Nei, nei, nei ... Ţví er nú víđsfjarri, en úr ţví ađ veriđ er ađ brydda upp á ţessu, man ég aldrei eftir ađ hafa heyrt jólakveđju til mín eđa einhvers sem ég ţekki og aldrei hef ég kannast viđ nöfn ţeirra sem senda kveđjur. Sendendur eru alltaf einhverjir sem enginn ţekkir, til dćmis „Stína, Barđi, börnin“ og fleiri sem ég man ekki hvađ heita enda 3.322 kveđjur ţetta áriđ.

Sko, ég held ţví síst af öllu fram ađ kveđjurnar séu bara feik eins og kókakólakallinn í rauđu fötunum međ bómullarskeggiđ (er ţó ekki alveg viss). Á samfélagsmiđlum er ţví haldiđ fram ađ kveđjurnar séu ađ mestu leyti uppdiktađar innan Ríkisútvarpsins. Mörgum finnst grunsamlegt hversu ţćr eru allar líkar. Í öllum koma fyrir fyrir orđin óskir, jól, gleđilegt, ţakkaár, nýttlíđa og svo kryddađ međ innihaldsríkum samtekningum og forsetningum af ýmsu tagi. Nokkuđ til í ţessu.

Nú má vel vera ađ enginn sendi mér jólakveđju í útvarpinu, sem í sjálfu sér er dálítiđ sorglegt. Hitt kann ţó ađ vera jafn líklegt ađ útilokađ sé ađ hlusta međ einbeittri athygli á yfir ţrjú ţúsund ţrjúhundruđ tuttugu og tvćr jólakveđjur lesnar í belg og biđu í tvo daga samfleytt og ná ađ grípa ţá réttu. Ađferđafrćđin er doldiđ kjánaleg, svona markađslega séđ. 

Ţar af leiđir ađ svo margir nenna ekki lengur ađ hlusta á jólakveđjurnar sem er synd, illa fariđ međ góđa sorg sem óhjákvćmilega til verđur ţegar ekki nćst ađ grípa ţá kveđju sem mađur vonar ađ séu sér sendar.

Hitt er ku vera dagsatt ađ Ríkisútvarpiđ grćđi milljónir króna á tiltćkinu. Í anda samkeppni og ţjóđţrifa mun ég nú um áramótin bjóđa landsmönnum ađ hrópa aftur nýárskveđjur af svölunum heima. Svo vel hefur tekist til á undanförnum árum ađ ţetta er ađ verđa siđur. Spyrjiđ bara ţá sem sendu og fengu kveđjur. Allir sammála (vinsamlegast ekki spyrja nágrannana, plís). 

Verđiđ er miklu betra en hjá Ríkisútvarpinu, heilum 17,5% lćgra. Og ţađ sem meira er, komist kveđja sannanlega ekki til skila fćr kaupandinn 33,9% endurgreiđslu. Samkeppnisađilinn getur sko ekki toppađ ţetta.

Fyrst veriđ er ađ misskilja viljandi tilganginn međ ţessum skrifum mínum vil ég nefna ţá stađreynd í fullkominni vináttu, kurteisi og virđingu fyrir hefđum fólks ađ ţađ er ábyggilega ódýrara og markvissara ađ hrópa kveđjur af svölunum en ađ borga Ríkisútvarpinu fyrir ađ lesa ţćr út í rafrćna tómiđ sem er umhverfislega stórhćttulegt og um síđir kann ţađ ađ yfirfyllast. Hvađ ţá? Jú, yfirborđ sjávar hćkkar um fimm sentimetra á nćstu ţrem árum.

Ţá hrekkur ţetta eflaust upp úr lesandanum:

En ţađ er svo gasalega jólalegt ađ hlusta á jólakveđjulesturinn á gufunni.

Já, ţví skal ég nú trúa. Ţađ er líka obbbbb-oooođs-leeeeeg-aaaa-a jólalegt ađ tala til ţjóđarinnar úti á svölum á Ţorláksmessumorgni. 

(Vilji svo til ađ einhver glöggur lesandi telji sig hafa lesiđ ofangreindan pistil á Ţorláksmessu á síđasta ári skal tekiđ fram ađ höfundur fer jafnan út á svalir ţennan dag)

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband