Látið hvalina vera

Fyrir leikmann er óskiljanlegt hvers vegna verið sé að reyna að reka grindhvalavöðu út úr Kolgrafarfirði. Í fyrsta lagi eru hvalir viðkvæmar skepnur og svona aðfarir hræða þá fyrst og fremst. Í öðru lagi eru hvalir ekki vanir því að láta reka sig. Miklu skynsamlegar er að leyfa þeim að eiga sig, þeir finna ábyggilega leiðina út af sjálfsdáðum.

Enginn veit hvers vegna hvalirnir leita inn í firði og jafnvel upp í fjörur. Hugsanlega finna þeir lykt sem þeir renna á. Má vera að enn séu síldin að rotna sem strandaði í Kolgrafarfirði fyrir tveimur árum.

Mér fannst hrikalegt að sjá myndbandið sem birt var á mbl.is. Tveir björgunarsveitarbátar reyndu að hræða hvalina og reka út fyrir brúna. Þetta var ójafn leikur, skemmtun fyrir björgunarsveitarmenn en ábyggilega ferlega illt fyrir hvalina.

Best af öllu er að láta náttúruna hafa sinn gang. Maðurinn á ekki að reyna að stjórna henni, við þekkjum afleiðingarnar af slíkri afskiptasemi og þær eru ekki allar fagrar.


mbl.is Líklega komnir aftur inn fjörðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Væri eitthvað betra ef að þeir myndu stranda allir þarna í fjörunni, drepast og úldna þarna?

Eru ekki allar líkur á að þeir strandi þarna

verði þeim ekki vísað aftur út á haf?

Ætli líkurnar séu ekki 50% á því að þeir strandi þarna og drepist

og 50% líkur á að þeir syndi aftur út á haf af sjálfsdáðun?

Jón Þórhallsson, 13.8.2018 kl. 10:42

2 Smámynd: Már Elíson

Sigurður, - Ég geri ekki ráð fyrir því að björgunarmennirnir séu að skemmta sér við að bjarga hugsanlega lífi skepnanna. En svo er ekkert sniðugt heldur að gera sér upp hugsanir hvalanna. Gætu þeir ekki bara haft gaman af þessum æfingum..??  - Hver veit...? - Ekki við. - Mér persónulega finnst þetta hafa verið tilraun til að afstýra hvalatjóni. En þeir eru víst mættir í fjörðinn og þá skýrist þetta betur.

Már Elíson, 13.8.2018 kl. 11:36

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er enginn að skemmta sér við þetta. Það er aðeins verið að reyna að hindra að hvalirnir strandi í fjörunni og fái þar kvalafullan dauðdaga og að hræin rotni þar í kjölfarið.

Þorsteinn Siglaugsson, 13.8.2018 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband