Júní 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Látið hvalina vera
13.8.2018 | 10:17
Fyrir leikmann er óskiljanlegt hvers vegna verið sé að reyna að reka grindhvalavöðu út úr Kolgrafarfirði. Í fyrsta lagi eru hvalir viðkvæmar skepnur og svona aðfarir hræða þá fyrst og fremst. Í öðru lagi eru hvalir ekki vanir því að láta reka sig. Miklu skynsamlegar er að leyfa þeim að eiga sig, þeir finna ábyggilega leiðina út af sjálfsdáðum.
Enginn veit hvers vegna hvalirnir leita inn í firði og jafnvel upp í fjörur. Hugsanlega finna þeir lykt sem þeir renna á. Má vera að enn séu síldin að rotna sem strandaði í Kolgrafarfirði fyrir tveimur árum.
Mér fannst hrikalegt að sjá myndbandið sem birt var á mbl.is. Tveir björgunarsveitarbátar reyndu að hræða hvalina og reka út fyrir brúna. Þetta var ójafn leikur, skemmtun fyrir björgunarsveitarmenn en ábyggilega ferlega illt fyrir hvalina.
Best af öllu er að láta náttúruna hafa sinn gang. Maðurinn á ekki að reyna að stjórna henni, við þekkjum afleiðingarnar af slíkri afskiptasemi og þær eru ekki allar fagrar.
![]() |
Líklega komnir aftur inn fjörðinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 1649754
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Væri eitthvað betra ef að þeir myndu stranda allir þarna í fjörunni, drepast og úldna þarna?
Eru ekki allar líkur á að þeir strandi þarna
verði þeim ekki vísað aftur út á haf?
Ætli líkurnar séu ekki 50% á því að þeir strandi þarna og drepist
og 50% líkur á að þeir syndi aftur út á haf af sjálfsdáðun?
Jón Þórhallsson, 13.8.2018 kl. 10:42
Sigurður, - Ég geri ekki ráð fyrir því að björgunarmennirnir séu að skemmta sér við að bjarga hugsanlega lífi skepnanna. En svo er ekkert sniðugt heldur að gera sér upp hugsanir hvalanna. Gætu þeir ekki bara haft gaman af þessum æfingum..?? - Hver veit...? - Ekki við. - Mér persónulega finnst þetta hafa verið tilraun til að afstýra hvalatjóni. En þeir eru víst mættir í fjörðinn og þá skýrist þetta betur.
Már Elíson, 13.8.2018 kl. 11:36
Það er enginn að skemmta sér við þetta. Það er aðeins verið að reyna að hindra að hvalirnir strandi í fjörunni og fái þar kvalafullan dauðdaga og að hræin rotni þar í kjölfarið.
Þorsteinn Siglaugsson, 13.8.2018 kl. 20:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.