Leg þingmanns, kjálki karla og virðisaukaskattur
21.11.2015 | 10:44
Margt er mannanna meinið og mörg eru útgjöld fólks. Síst af öllu skal gert lítið úr þörf kvenna á hreinlætisvörum. Hins vegar má gera athugasemdir við markaðssetningu á skoðunum Heiðu Kristínar Helgadóttur, þingmanns Bjartar framtíðar, sem svo grípandi nefnir það að verið sé að skattleggja á henni legið. Dömubindi og túrtappar bera virðisaukaskatt rétt eins og allflest annað. Dálítið snjallt að vekja svona athygli á hagmunamáli sínu.
Þessi skoðun er engan vegin ný. Minna má að sósíaldemókratar í Svíþjóð kröfðust á áttunda áratugnum að dömubindi ættu að vera ókeypis í verslunum landsins. Ekki náðist samstaða um það heldur lognaðist málið út af.
Hér á landi hefur þeirri skoðun vaxið ásmegin að fatnaður fyrir börn ætti að vera í lægra skattþrepi virðisaukaskatt eða vera undanþegin honum. Margvísleg rök standa til þess sérstaklega þau að skattur á selda vöru þykir allt of hár.
Karlmenn geta ómögulega lagst gegn skattlagningu á legi Heiðu Kristínar Helgadóttur, þingmanns Bjartrar framtíðar. Slíkt væri hin mesta ómennska auk þess sem fæstir myndu vilja rökæða við þingmanninn um legið hennar. Aftur á móti væri það ágætis búbót fyrir flest heimili ef legskatturinn væri aflagður.
Einnig væri það guðsþakkarvert fyrir oss karlmenn ef skattur á kjálka vora og efri vör yrði aflagður. Nógu andskoti dýr eru tól til þessara hluta og tengdar vörur. Góður maður skaut því að ritara að árlegur kostnaður hans vegna raksturs sé 57.500 krónur. Nú er afar misjafnt hversu skeggvöxtur er hraður og einnig hversu hraustleg skeggrótin er. Sumir þurfa að raka sig daglega meðan öðrum dugar að þrisvar í viku eða svo. Svo leggja margir upp úr nokkurra daga skeggvexti og þeirri prýði sem slíkt þykir og gjörir marga unglegri en raun er á. Og loks vilja margir leyfa skeggi sínu að vaxa að vild en aðrir snyrta það á ýmsan hátt. Svo eru þeir til sem nota rafmagnsrakvélar, þær eru engu að síður nokkuð dýrar.
Niðurstaðan af ofangreindu er síst af öllu sú að gera lítið úr legi þingmanns Bjartrar framtíðar eða annarra kvenna og þaðan af síður kostnaði vegna þess (óskiljanlegt að ritari telji sig hér knúinn að gera einhvern fyrirvara á skrifum sínum).
Hið stóra mál sem flesta skiptir öllu er að skattheimta ríkisins á seldum vörum í þjóðfélaginu sé hófleg, hvort heldur um sé að ræða dömubindi, rakblöð, barnaföt eða annað. Það stuðlar að betra þjóðfélagi að eyðslufé fólks nýtist sem best til þeirra hluta sem það vill kaupa í stað þess að allt að fjórðungur af verði hverrar vörur sé sjálfvirkt ríkiseign.
Ráð er að þingmaður Bjartrar framtíðar liti til þessa í stað þess að einblína á leg sitt.
65.500 í skatt fyrir að vera á túr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:03 | Facebook
Athugasemdir
Með sömu rökum ættu öll lyf að vera undanþegin virðisaukaskatti. Af hverju er verið að skattleggja heilsu fólks, hvað þá lyf sem heldur fólki á lífi?
Erlingur Alfreð Jónsson, 21.11.2015 kl. 11:42
Það er full ástæða til að óska Bjartri framtíð og landinu öllu til hamingju með málefnalega umræðu um leg á þingi. Þessi skelleggi þingmaður sem kemur sem nýr ferskur andvari á Alþingi eykur manni von í brjósti að verið sé að vinna að ýmsum þjóðþrifamálum með hag almennings í huga. Ég við spái umræðu um skattlagningu kvenmannsbrjóstum næst enda ósanngjarnt að karlar sleppi við að greiða vsk af brjóstahöldurum. Áfram Heiða!
Guðmundur St Ragnarsson, 21.11.2015 kl. 11:48
Hag að bæta verður bið
bóta og elliþeganna
Ef að Bjarni bætir við
bótum vegna leganna
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 21.11.2015 kl. 16:32
Það er náttúrlega höfuðatriði varðandi virðisaukaskatt að fækka flokkunum og stefna ákveðið að því að allar vörur beri sömu vks-prósentu. Mismunandi vsk-prósentur eru ein helzta leið skattsvikara til þess að maka krókinn á kostnað okkar hinna.
Skúli Víkingsson, 21.11.2015 kl. 18:48
Skúli, þetta er auðvitað kjarni málsins. Auðvitað á að vera eitt „hóflegt“ virðisaukaskattstig þannig að fólk greiði skattinn með glöðu geði. Og þannig á það að vera með alla skattheimtu svo fyrirhöfnin við undanskot svari ekki fyrirhöfninni.
Og undanþágur eig ekki að vera neinar enda rétt sem Elingur segir hér að ofan, hvers vegna ættu ekki öll lyf að vera undanþegin.
Þegar sanngirnistengd hagsmunagæsla tekur völdin í kollum þingmanna er ekki von á góðu.
Góð vísa, Jóhannes.
Tek undir kaldhæðni Guðmundar. Áfram Heiða.
S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 21.11.2015 kl. 18:58
Ef vesalings konan hefði vit til að nota leg sitt svo sem náttúran bíður, þá þyrfti hún ekki svo mikið af ónáttúrulegum túrtöppum.
Hrólfur Þ Hraundal, 22.11.2015 kl. 07:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.