Viðbrögð við framandi og andstyggilegum lífsviðhorfum
23.7.2013 | 09:50
Hér á landi eru margar góðar netsíður og blogg og á meðal þeirra er Lemúrinn. Á honum er oft að finna margar forvitnilegar greinar og ekki síður myndir frá gömlum tíma.
Fyrir stuttu birtist þar grein undir fyrirsögninn Bertrand Russel neitaði að rökræða við enska fasistann Sir Oswald Mosley og er höfundur samantektarinnar Sveinbjörn Þórðarson.
Þegar ég las greinina varð ég hugsi ekki síst eftir að hafa lesið bréf heimspekingsins Bertrand Russels til Osvalds Mosley.
Hvernig talar nútímamaðurinn við þann sem er pólitískur andstæðingur? Hann liggur sjaldnast á skoðunum sínum og lætur venjulegast allt vaða.
Við getum litið á fjölmargar bloggsíður, innlendar og erlendar, og ekki síður athugasemdir sem birtar eru með fréttum og greinum í vefritum, bloggsíðum og fréttakerfum dagblaða. Þar veður oft uppi ókurteisi og ruddaskapur enda búa fáir yfir stillingu og gáfum að geta rökrætt og tjáð sig af hógværð um það sem þeir jafnvel fyrirlíta.
Þetta gat Bertrand Russel. Í ofangreindri grein er birt þýðing á bréfi hans til Mosleys þar sem hann hafnar því að rökræða við þann síðarnefnda. Hér er þýðing bréfsins eins og það er birt í grein Sveinbjörns Þórðarsonar og mynd af bréfinu er hér til hliðar.
Kæri Sir Oswald,
Takk fyrir bréf þitt og meðfylgjandi skjöl. Ég hef nú hugleitt nýleg bréfaskipti okkar. Það er ávallt erfitt að ákveða hvernig maður á að bregðast við fólki sem býr yfir lífsskoðunum sem eru manni framandi og í raun andstyggilegar. Það er ekki það að mér sárni yfir almennum ummælum þínum, heldur hafa allir mínir kraftar farið í virka baráttu gegn þeim grimmilegu fordómum, ofbeldisáráttu og hrottalegu ofsóknum sem einkenna fasismann í orði og á borði.
Ég finn mig knúinn til þess að segja að tilfinningaheimarnir sem við þrífumst í séu svo rækilega aðskildir og gjörsamlega andsnúnir hverjum öðrum, að ekkert gagnlegt eða heiðarlegt gæti nokkurn tímann komið af samskiptum okkar á milli.
Ég myndi vilja að þú gerðir þér grein fyrir kraftinum að baki þessari sannfæringu minni. Ég segi þetta ekki til þess að vera dónalegur, heldur sökum alls sem mér er kært í mannlegri reynslu og afrekum.
Bestu kveðjur,
Bertrand Russell
Auðvitað hefði þýðingin mátt vera betri, hún nær varla tilfinningalegum þunga bréfritarans, en það er nú aukaatriði hér. Þýðingin nær hugsuninni. Bertrand Russel ritar bréfið á afskaplega hógværan máta en lesandinn fer ekki í neinar grafgötur um skoðanir hans. Það hefur eiginlega verið hrikalegt kjaftshögg fyrir Mosley að fá svona trakteringu.
Nútímamaðurinn hefði eflaust ritað svona bréf á allt annan máta og látið stundarhitann stjórna málfari og ávarpi og skreytt bréfið með einhverjum viðbjóði og ruddaskap.
Í sannleika sagt er í bréfinu fólginn lærdómur fyrir þann sem ann hógværð og kurteisi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.8.2022 kl. 20:30 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.