Hlýr vetur að baki

vetrarsulur2011-12_1144398

Sumum hefur fundist þessi vetur harla erfiður og kaldur. Má vera að svo sé miðað við þá sem að undan hafa gengið. Hins vegar held ég að við Íslendingar séum orðnir of góðu vanir og viljum eiginlega hafa sumarhita að vetrarlagi. Ég geri hins vegar kröfu um kaldan vetur og mikla snjóa.

Sá ágæti bloggari Emil Hannes Valgeirsson skrifaði skemmtilegt blogg í gær um vetrarhita og birtir þar þetta súlurit yfir hitastig vetrarins frá því í nóvember og út mars.

Af myndinni má ráða að allt þetta væl um kaldan vetur fær eiginlega ekki staðist. Yfirgnæfandi fjöldi vetrardaga var hlýr og bara nokkrir kaldir, þá helst þarna yfir mánaðarmótin nóvember-desember. Niðurstaðan er því sú að þetta hefur hingað til verið fínn vetur, en honum er allst ekki lokið. Apríl getur verið grimmastur mánaða, eins og fram kemur í bloggi Sigurðar Þórs Guðjónssonar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband