Ef ekki löggan hverjir þá?

Ef það á ekki að stilla lögreglunni upp til varnar þinghúsinu hverja þá? Því miður er ekki um neina aðra að dreifa. Óski lögreglan eftir aðstoð okkar, almennra borgara, þá mun ég að minnsta kosti mæta.

Ég styð lögregluna í kröfum hennar fyrir mannsæmandi launum. Hef lýst því áður. Hins vegar verður lögreglan að standa sig í því starfi sem krafist er af henni.

Svo er það hitt að reiði fólks á ekki að beinast gegn lögreglu. Mótmæli eiga að vera ofbeldislaus, hversu oft þarf að segja þetta við skynsamt fólk. Ofbeldi eru af sér ofbeldi. Friðsöm mótmæli skila árangri. Berjumst friðsamlega gegn handónýtri ríkisstjórn. Okkur mun takast að koma henni frá. Látum ríkisstjórnina ekki ráða hvenær hún fer. Henni verður að steypa í haust.


mbl.is Skjöldur milli þings og þjóðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég skal taka að mér að skipuleggja varnir þinghússins fyrir eggjakasti.

Fyrsta tilskipun: reka brott frá því fólk sem laðar að sér eggakast.

Guðmundur Ásgeirsson, 2.10.2011 kl. 06:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband