Gott hjá Einari Má

Þetta er vel orðað og skilmerkilega hjá Einari Má Guðmundssyni og vel til fundið að vitna á þennan hátt í forsetann.

Þetta er það sem þjóðin bíður eftir, að fá að taka ákvörðunina sjálf. Forsætisráðherra telur ranglega að ekki megi bera mál sem tengjast fjárskuldbindingum undir dóm þjóðarinnar. Og ranglega heldur hún því fram að þetta tíðkist ekki í nágrannalöndunum.

Forseti Íslands hlýtur að taka mark á góðu og velviljuðu fólki. Hann verður að synja Icesave samningnum staðfestingar. 


mbl.is Skorar á forsetann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sjálfstæðisfélag í Kópavogi hafði greinilega svipaðan hátt á meðal annars eins og sjá má á áfriti bréfsins sem þeir sendu forsetanum  og er í viðhengi fréttarinnar :

http://mbl.is/frettir/innlent/2011/02/17/sjalfstaedismenn_i_kopavogi_skora_a_forsetann/

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 18.2.2011 kl. 15:25

2 Smámynd: GAZZI11

Það er líka galið að ætlast til þess að 300.000 manna þjóðfélag geti staðið undir þessu ..

GAZZI11, 18.2.2011 kl. 15:26

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Við verðum að verjast þessu alþingi er búið að segja sitt í málunum og því getum við ekki treyst þeim til að halda utanum okkar mál þar eru allt of margir innginglaðir í spillinguna svo það sé hægt!

Sigurður Haraldsson, 18.2.2011 kl. 15:38

4 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Flott orð, nafni minn; „innginglaðir“.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 18.2.2011 kl. 15:39

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Forsætisráðherra og hennar ríkisstjórn hafa stundað hræðsluáróður allar götur. þessari spillingu verður að linna.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.2.2011 kl. 17:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband