Gagnslítil afsökun eftir alvarlegar ávirðingar

Björn Valur Gíslason fer oft mikinn. Margir kalla hann strigakjaft. Held að það sé ofmælt en hann er fylginn sér. 

Margir eru hraðskrifandi á heimasíður sínar og blogg, skrifa stundum eins og þeir tala. Það er ekki skynsamlegt. Björn ætti að venja sig á að „salta“ sum skrif sín og geyma til dæmis yfir nótt og lesa síðan yfir. Það er góð regla. Það er hins vegar ekki gott að láta allan andskotann flakka og láta síðan nægja að biðjast afsökunar. Með því er sú gjörð gengisfelld og missir marks.

Ávirðingar Björns á Kristján eru afar alvarlegar, raunar er varla hægt að segja neitt verra um Alþingismann en að hann gangi erinda annarra og fái laun fyrir. Afsökunarbeiðni dugar þar lítt þegar óhróðurinn er kominn út um allar jarðir.

 


mbl.is Biður Kristján Þór afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Sigurðsson

Þetta blogg Björns Vals var sent seint um nótt. Segir það ekki allt sem segja þarf um svona myrkraverk Keilukjaftsinns.

Ómar Sigurðsson, 22.12.2010 kl. 11:51

2 Smámynd: Gunnar Waage

Björn Valur er sá allra ruglaðasti, ég man í svip ekki eftir öðrum eins bullukolli á bloggi eins honum.

Hann setur þvílíka dellu á prent hvað eftir annað.

Gunnar Waage, 23.12.2010 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband