Svartur þangað til næst snjóar

dsc_0928.jpg

Ekki þykir það fréttnæmt á Íslandi að aska falli á jökla. Við það verða þeir svartir og þannig verður þangað til næst snjóar. Þetta er eins og að fá flensuna, hún bráir af manni um síðir.

Snjólínan á jöklum færist ofar á sumrin. Þar fyrir neðan bráðnar vetrarsnjórinn og undirliggjandi ísinn kemur í ljós, oft skítugur og grár.

Fáir eru þeim hæfileikum gæddir að geta spáð fyrir um veðrið langt fram í tímann. Ég tel samt fullkomlega öruggt að í vetur komandi muni snjóa á Mýrdalsjökli. Þori jafnvel að éta fjallahúfuna mína upp á það. Þar með er ekki öruggt að askan verði þar með ósýnileg um eilífan aldur. Líklegra er að jökullinn verði köflóttur um tíma, vegna þess að veðráttan er mismunandi.

Í sumar gekk ég á Drangajökul. Á honum er engin aska og mikið óskaplega er gaman að koma á „skerin“ í þeim jökli, Hljóðabungu, Reyðarbungu og Hrolleifsborg. Myndin er af ferðafélögunum við Hrolleifsborg.


mbl.is Mýrdalsjökull enn biksvartur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er dálítið sérstakt að fljúga yfir kolsvartan Eyjafjallajökul eins og sést á þessu myndbandi http://www.helicopter.is/eyjafjallajokull/

Artio Films, 10.8.2010 kl. 09:52

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Bestu þakkir fyrir þetta. Frábærar myndir ekki síst niður Gígjökul.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 10.8.2010 kl. 10:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband