Fær ráðherrann ekki tímamóta upplýsingar?

Í efnahags- og viðskiptaráðuneyti Íslands eru tuttugu og þrír starfsmenn, þar af einn ráðherra og fimm sem titlaðir eru lögfræðingar. Er það virkilega svo að þegar lögræðingarnir fá tímamótaplagg frá Seðlabanka Íslands að þeir láti ekki ráðherrann heyra af því?

Boðleiðir í litlu ráðuneyti geta ekki verið svo langar að stórmerkilega upplýsingar rati ekki til yfirmannsins. Til hvers er það verið að vinna í deildum ef ekki til að einfalda vinnuna og auðvelda töku ákvarðana?

Að sjálfsögðu hlýtur Gylfi Magnússon að fara með rétt mál. Ráðherra lýgur ekki, svo einfalt er það. Hins vegar þarf ráðherrann að skoða vandlega skipulag ráðuneytisins. Ráðherrann fær greinilega ekki þær upplýsingar sem hann þarf á að halda. Þar af leiðandi getur hann ekki upplýst þingið, umræðan fer á villigötur og stjórnkerfið virkar ónýtt. Á þessu ber ráðherrann ábyrgð.


mbl.is Ranglega vitnað í ræðu ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skúli Sigurðsson

Mér finnst þessi blessaður maður ekki vera starfi sínu vaxin og ætti hann að segja sig frá ráðherrastólnum strax . Gylfi hefur ekki haft nein tök á því sem honum var ætlað í upphafi síns ferlis sem ráðherra - Gylfi bullar og bullar og kemst upp með það eins og aðrir sem eru þessari ríkistjórn. Þessi almúga ríkistjórn hefur gleymt fólkinu í landinu.

Skúli Sigurðsson, 10.8.2010 kl. 21:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband