Er eitthvað bogið við stjórnun Seðlabankans?

Seðlabanki Íslands virðist hafa fyrirgert trausti almennings með því að láta ekki kanna til hlítar hvort gengistryggðu lánin hafi verið lögleg. Þegar allt er í óefni komið fer með bankann eins og margar aðrar stofnanir og fyrirtæki, þau flæmast undan umræðunni, afsaka ekkert, undaþiggja sig frá vandamálinu og kenna öðrum um.

Staðreyndin er einfaldlega sú að bankanum bar að kanna hvort gengislánin væru lögleg. Þegar minnsti vafi kom upp bar bankanum að kryfja málið. Til þess er lögfræðideildin. Hún útdeilir ekki verkefnum til fjögurra lögfræðistofa rétt eins og um fótbolta leik sé að ræða. 

„Niðurstaðan er 3:0 og gengistryggðu lánin eru lögleg.“

Ef þetta eru vinnbrögðin þá er eitthvað að stjórnunarháttum í bankanum. 

Er í raun enginn til í Seðlabankanum með bein í nefinu? Stendur upp og segir gerum allt til að reka þenan banka eins og lög gera ráð fyrir. 

 


mbl.is Seðlabankinn ekki dómstóll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Skyldi það geta verið að seðlabankastjórinn fyrrverandi (sem ég man aldrei hvað heitir) og lögfræðingur í tilbót hafi ekki haft grun um þessi lög frá 2001?

Árni Gunnarsson, 6.8.2010 kl. 21:00

2 Smámynd: GunniS

þetta er tilefni til að leggja niður selðabankann og taka up dollar. getum sparað mikið með að sparka þessu handónýta liði.

GunniS, 6.8.2010 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband