Hálfnuð með verkefnin sín en hvað með raunveruleikann?
12.6.2009 | 13:53
Auðvitað ber að fagna því að ríkisstjórnin skuli vera hálfnuð með 100 daga áætlun sína. Það skiptir þó minnstu máli. Aðalatriðin eru einfaldlega þessi:
- Enn eru um 18.000 manns atvinnulausir
- Verðbólgan lækkar ekki
- Stýrivextir eru 13% en nálægt núlli í nágrannalöndunum
- Bankarnir eru lokaðir atvinnufyrirtækjum
- Gjaldþrot fyrirtækja vegna verkefnaskorts er gríðarlegt
- Gjaldþrotum einstaklinga hefur fjölgað afar mikið
- Fjárhagslegur vandi heimilanna er ofboðslegur
- Viðskipti við útlönd eru afar erfið vegna stöðu krónunnar
Og lái mér einhver þótt sá grunur læðist nú að manni að ríkisstjórnin sé barasta ekki að gera það sem hún á að gera. Eftir fimm mánuði mælist árangurinn í framlögðum skjölum en ekki fækkun á atvinnuleysisskrá, lækkun verðbólgu, styrkara atvinnulífi, traustum bönkum, færri heimilum í fjárhagsvanda, fækkun á gjaldþrotaúrskurðum og auðveldari viðskiptum við útlönd.
Nei, 21 verkefni af 48 kláruð!
Teikna mynd á gúmmískó, raða til á skrifborðinu, senda samúðarkveðjur til fjölskyldu sem missti íbúðina ... Jú, verkefnin geta verið mörg og mismunandi. Hver hefur auga með þessari ríkisstjórn og bendir henni á að hún sé hreinlega ekki að vinna í réttum málum eða vinna rétt?
Segir 21 verkefni af 48 afgreidd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.