Össur og frjálshyggjumaðurinn Obama

Áhugavert að sjá Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, fyrrverandi formann Samfylkingarinnar sækja í félagsskap forseta Bandaríkjana og fá mynd tekna af sér með manninum.

Fyrir þá sem ekki þekkja til var Össur á leiðtogafundi Nató. Og fyrir þá sem vita enn minna þá gekk Össur margar Keflavíkurgöngur til að mótmæla veru Íslands í Nató. Hann tók þátt í fjölda mótmæla gegn Nató og fann okkur sem studdum Nató á þessum árum allt til foráttu.

Síðan hefur mikið gerst. Össur gerðist krati, hætti að vera Fylkingarkommi og sósíalisti. Munnsöfnuðurinn lagaðist og hann fór að hafa áhuga á lífinu. Núna dáir hann forseta Bandaríkjanna sem hefur þá pólitísku skoðun sem er sem endurspeglun af stefnu Sjálfstæðisflokksins. Raunar má segja að bandaríski Demókrataflokkurinn sé nokkuð til hægri við Sjálfstæðisflokkinn.

Batnandi mönnum er best að lifa. 


mbl.is Áhugi á samstarfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallur Magnússon

Ekki gleyma því að Obama er Framsóknarmaður - þannig að kannske gengur Össur bráðum í Framsóknarflokkinn!

Hallur Magnússon, 5.4.2009 kl. 19:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband