Þorskar á þurru landi

Þorskstofninn hefur ekkert aukist enda stendur hann hvorki í beinu né öfugu hlutfalli við efnahagsvanda þjóðarinnar.

Kröfur sem nú eru uppi um aukinn kvóta til þess að þorskinum fjölgi helst á þurru landi.


mbl.is Aukinn þorskkvóti ekki útilokaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þorskkvótinn hefur ekkert aukist!

Hvernig ber að skilja þetta í samhengi við að auka kvótann?

Árni Gunnarsson, 23.10.2008 kl. 17:49

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Afsakaðu Árni, vandræðaleg innsláttarvilla, á að vera stofn en ekki kvóti. Þakka þér fyrir að benda mér á þetta.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 23.10.2008 kl. 23:35

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sigurður: Hvort þorskstofninn hefu aukist eða rýrnað veit ekki nokkur maður. Þeir sem helst fylgjast með því eru sjómennirnir og þeim ber saman um að nú sé óvenju mikil þorskgegnd á miðunum allt í kringum landið. Hafró er stjórnað af sægreifunum svonefndu sem sjá sér hagi í að halda uppi spurn eftir kvóta svo þeir geti leigt hann á sem hæstu verði. Friðunin svonefnda hefur skilað þeim árangri að nú höfum við leyfi til að veiða u.þ.b. þriðjung þess afla sem við drógum á land við upphaf kvótasetningar fyrir 25 árum.

 Líklega hefur fiskveiðistjórnun okkar skaðað þessa þjóð um stærri upphæð en sem nemur kröfu Gordons Brown.

Árni Gunnarsson, 24.10.2008 kl. 09:59

4 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Árni! Þó illa ári í efnahag þóðarinnar þá réttlætir það ekki að gengið sé enn frekar á fiskistofnanna.

Fólk er yfirleitt þannig innréttað að það gerir oft meira úr því sem hagsmunir þeirra byggist á en dregur síður úr. Ekki vildi ég sjá fiskistofnana eyðilagða á sama hátt og hagsmunaaðilar gengu frá bankakerfi þjóðarinnar. Það varð okkur dýrmæt lexía.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 24.10.2008 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband