Þykistuleikurinn gegn Rússum

Þjóðverjar eru búnir að reikna út að verði lokað fyrir orkuna frá Rússlandi myndi skella á efnahagskreppa. Kórónuveiran hefði lokað þjónustugeiranum, en þessi kreppa myndi bitna á hjarta þýsks iðnaðar og leiða til þess að landsframleiðsla myndi dragast saman um allt að þrjá af hundraði [3%]. Þá yrði dýrara að útvega orkuna. Það myndi hafa áhrif á verðlag og jafnvel draga úr samkeppnishæfni þýskrar framleiðslu.

Þessi athyglisverðu orð eru í leiðara Morgunblaðsins 26. mars 2022. Þýsk stjórnvöld gráta af því að það er of dýrt að refsa Rússum fyrir stríðsreksturinn í Úkraínu. Úr þessu má lesa að efnahagslegar refsiaðgerðir mega ekki vera of dýrar fyrir þá sem beita þeim og þetta virðist vera útbreitt skoðun í Evrópu. Friðelskandi fólk vill auðvitað ekki borga of mikið fyrir friðinn en krefjast hans engu að síður.

Þvílík della. Það verður dýrt að stöðva Rússa, fylgi hugur máli, sem vissulega má draga í efa. Svona er allt sýndarmennska, innihaldslaust mal og tal sem engu skiptir.

Og þú, lesandi góður. Ertu með í baráttunni fyrir friði ef efnahagslegar refsiaðgerðir gegn Rússum muni kosta þig sem nemur 20% af tekjum þínum eða kaupmætti?

Nei, auðvitað ekki. Þú ert engu skárri en aðrir í Evrópu í þykistuleiknum gegn Rússum. 

Hingað til hafa Rússar aðeins hrist sig vegna refsiaðgerðanna en halda svo áfram að drepa fólk í Úkraínu og sprengja borgir og bæi í tætlur. Á meðan berast óstaðfestar fréttir sem eiga að gera okkur, almenning, ánægða með refsiaðgerðirnar. Her Rússa er í vandræðum, Pútín er veikur og rússnesku almenningur muni bylta stjórninni í Kreml. Svona sögur bera öll einkenni falsfrétta.

En, en, en ... það er búið að taka flugvélar, hús og snekkjur af rússnesku auðmönnunum, ólígörkunum, kannt þú að segja. Þetta skiptir engu máli. 

Rússar hafa ekki lent í miklu vanda vegna refsiaðgerðanna. Kínverjar hjálpa þeim. Jafnvel íslensk fyrirtæki sem seldu til Rússlands senda nú vörur þangað í gegnum Kína. Allt lekur í gegn rétt eins og gasið og olían til Þýskalands, hveitið og byggið til Frakklands, og SWIFT er bara orðin tóm því auðvitað þarf að borga fyrir lekann frá Rússlandi.

Dettur einhverjum í hug að baráttan gegn stríðsrekstri Rússa muni ekki verða Evrópu dýr sé tilgangurinn raunverulega sá að stöðva stríðsvél innrásarliðsins.

Efnahagslega refsiaðgerðir eiga að vera þannig að almenningur í Rússlandi þjáist og helst rísi upp gegn stjórnvöldum. Til þess er leikurinn gerður.

Aldrei hafa efnahagslegar refsiaðgerðir verið nógu harðar og verða það ekki nema því aðeins að almenningur hérna megin finni fyrir þeim. Öllum samskiptum við Rússa þarf að hætta og það mun óhjákvæmilega leiða til tímabundinna óþæginda hérna megin járntjaldsins nýja.

Þjóðverjar eru eins og allar aðrar þjóðir. Gráta tapað fé. Evrópuþjóðunum finnst betra að láta Úkraínumenn þjást en verðbólgan vaxi, vextir hækki, samkeppnishæfnin minnki, ferðaþjónustan staðni, atvinnuleysi aukist, hagvöxtur hrynji, með öðrum orðum; að allt stefni í kalda kol.

Ágæti lesandi. Þú ert eflaust á móti stríði, manndrápum og eyðingu borga og bæja svo framarlega sem baráttan kosti þig ekki nema örfáar krónur sem þú veiðir sjálfur upp úr buddunni. 

Við fordæmum Pútín og rússnesk stjórnvöld og teljum okkur til góða fólksins en erum ekki tilbúin til að borga fyrir friðinn. Hann er síst af öllu ókeypis.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Orð í tíma töluð, það verður ekki endurtekið of oft að til að efnahagsþvinganir virki, verða þær sársaukafullar fyrir okkur sjálf.

Ég hef nú þegar kynnst hálfgerðri orkukreppu hér á Skáni. Húshitunarkostnaður rauk upp úr öllu valdi, 4.000 sænskar krónur í kringum 60.000 íslenskar fyrir desember.

Þetta var vel áður en Rússar réðust inn í Úkraínu, en mér er sagt að Rússar hafi gert sitt til að valda hækkandi orkuverði með því að snarminnka framboð á náttúrugasi.

Þannig að ég er til í að minnka lífsgæði mín um 20%, þau eru hvort eð er ekki svo góð að það munar lítið um 20% minnkun.laughing Ef það verður til að koma Rússum á hnén.

Theódór Norðkvist, 26.3.2022 kl. 13:41

2 Smámynd: Hörður Þormar

Ef refsiaðgerðirnar verða til þess að Rússar finni vel fyrir því að umheiminum  standi ekki á sama um þessar "sérstöku hernaðaraðgerðir" Pútíns og að þeir íhugi vandlega afleiðingar þeirra, þá eru þær réttlætanlegar. En auðvitað verða þær að bíta á öllum.

Hörður Þormar, 26.3.2022 kl. 16:54

3 Smámynd: Loncexter

Sríð eru alltaf heimskuleg, en heimskan er alltaf verri hjá þeim stjórnmálamönnum sem setja á viðskiptaþvinganir á kostnað sinna skattborgara. (sem virðist vera raunin á íslandi)

Loncexter, 27.3.2022 kl. 09:38

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Athafnir Rússneska hersins í Úkraínu eru innanríkismálefni þeirra og koma okkur ekkert við.

Guðjón E. Hreinberg, 27.3.2022 kl. 21:39

5 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Vandamálið er að Bandaríkjamenn sjá ekki sömu afleiðingar og Evrópuríkin.

Evrópa (EU) eru ekki bara bandamenn USA heldur "undirmenn" þeirra. Það þarf því að spyrja Bandaríkjamenn hvort við eigum að borga 20-50% lífskjaraskerðingu til að refsa Rússum. Þjóðverjar hafa hingað til gert það sem þeim er sagt að gera og á því verður engin breyting. Það yrfði í Washington litið á það sem uppreisn og yrði ekki liðið. 

Rússar hafa sagt fram að þessu að Evrópa skifti þá ekki máli. aðeins Bandaríkjastjórn. Það virkar hrokafullt en er sennilega raunsætt mat. 

Gísli Ingvarsson, 28.3.2022 kl. 09:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband