Erfitt á að vera að breyta stjórnarkránni
20.7.2021 | 11:13
Við þinglok rifjuðu fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Flokks fólksins upp breytingartillögu, sem lögð var fram við stjórnarskrárfrumvarp Katrínar Jakobsdóttur í vetur. Hún felur í sér að til að breyta stjórnarskrá nægi að einfaldur meirihluti þings veiti samþykki sitt og í kjölfarið fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem hvorki verði gerð krafa um lágmarksþátttöku né lágmarksstuðning við breytinguna.
Svo skrifar Birgir Ármannsson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í fróðlegri grein í Morgunblaði dagsins. Í henni ræðir hann um stjórnarskrána okkar og vitnar til Kristrúnar Heimisdóttur og greinar hennar í Tímariti lögræðinga sem út kom fyrir skömmu.
Birgir bendir réttilega á að erfitt eigi að vera að breyta stjórnarskránni. Allir hugsandi menn vita að svo þarf að vera. Næg eru dæmin um vanhugsaðar lagasetningar og breytingar hér á landi og annars staðar.
Að sögn Birgis eru mjög ströng skilyrði fyrir stjórnarskrárbreytingum á Norðurlöndunum. Þangað vilja margir sækja dæmi þegar það hentar en ekki þegar talað er um stjórnarskrána.
Hér er stutt upptalning úr grein Birgis.
Danmörk:
- Samþykki tveggja þinga með kosningum á milli
- Þjóðaratkvæðagreiðsla
- Meirihluti þeirra sem atkvæði greiðir þarf að samþykkja
- Þátttakan sé að minnsta kosti 40% þeirra sem eru á kjörskrá
Noregur:
- Samþykki tveggja þinga með kosningum á milli
- Við endanlega afgreiðslu þarf samþykki 60% þingmanna að styðja breytingarnar
Finnland:
- Samþykki tveggja þinga með kosningum á milli
- Við endanlega afgreiðslu þarf 60% þingmanna að styðja breytingarnar
Svíþjóð:
- Samþykki tveggja þinga með kosningum á milli
- Hægt að óska eftir þjóðatkvæðagreiðslu eftir fyrra samþykkið, en niðurstaða hennar er þó ekki endanleg eða bindandi nema meirihluti leggist gegn breytingunni. Ef niðurstaðan er hins vegar jákvæð kemur málið aftur til kasta þingsins.
Ísland:
- Samþykki tveggja þinga með kosningum á milli
- Sé breytingin samþykkt óbreytt á nýju þingi öðlast hún gildi.
Af þessu má sjá að skilyrði fyrir stjórnarskrárbreytinum eru síst strangari hér á landi en á hinum Norðurlöndunum.
Vel má ímynda sér hvað gæti gerst ef auðvelt væri að breyta stjórnarskránni nú á þeim tímum þegar alls kyns pópúlistahreyfingar vaða upp, falsfréttir í samfélagsmiðlum og víðar og ekki síst snöggsoðnar breytingar sem við fyrstu sýn virðast sanngjarnar. Afleiðingarnar gætu orðið hroðalegar fyrir lýðræðið.
Breytum ekki stjórnarskránni nema að vel grunduð ráði. Látum ekki Pírata, Flokk fólksins eða Samfylkinga ráða ferðinni.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Heyr, heyr.
Sigurður Kristján Hjaltested, 20.7.2021 kl. 11:44
Við þetta má bæta að breytingarákvæði gildandi stjórnarskrár leyfir aðeins breytingar á henni eða viðauka við hana. Hins vegar er hvergi nein heimild til að afnema hana í heild og setja í staðinn eitthvað sem kalla mætti "nýja stjórnarskrá".
Svarið við spurningunni "hvar er nýja stjórnarskráin" er því einfaldlega: hvergi.
Guðmundur Ásgeirsson, 20.7.2021 kl. 16:50
Mjög merkileg og þörf ábending. Þetta nefndi líka Kristrún Heimisdóttir í grein sinni í Tímariti lögfræðinga og endurtók mjög skýrlega í Dagmálum Morgunblaðsins. Þetta má kalla mjög mikilvæga vörn.
S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 20.7.2021 kl. 16:57
Þetta er annar af tveimur varnöglum fyrir slíkri umbyltingu sem eru innbyggðir í stjórnarskránna. Hinn er í 47. gr.:
"Sérhver nýr þingmaður skal vinna drengskaparheit að stjórnarskránni, þegar er kosning hans hefur verið tekin gild."
Þingmenn geta ekki afnumið stjórnarskránna í heild, því þá yrðu þeir brotlegir við þetta heit og slík aðgerð væri lögleysa.
Guðmundur Ásgeirsson, 20.7.2021 kl. 17:17
Ég er svo sammála því, sem þú segir hér, Sigurður. Það á ekki að vera hægt að breyta stjórnarskrá ríkisins, - af því bara. Það gengur ekki. Menn verða að hafa ríka ástæðu til þess að breyta stjórnarskránni. Hins vegar hefði ég haldið, að það ætti að vera hægt að bæta við einhverjum greinum, sem æskilegt væri, að stæðu þar, en eru þar ekki, ef út í það er farið, en það þurfa að vera rík rök fyrir því, hvers vegna á að bæta þeim við, og sérstakar ástæður. Annað gengur ekki.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 20.7.2021 kl. 18:27
Guðbjörg.
Hvergi í stjórnarskránni kemur fram að "ríkar ástæður" þurfi til að breyta henni. Eina skilyrðið fyrir breytingum er meirihlutasamþykki tveggja þinga með kosningum á milli. Nema ef breyta á kirkjuskipan, þá þarf líka samþykki í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Guðmundur Ásgeirsson, 20.7.2021 kl. 23:27
Sammála þér Guðbjörg. Almennt þarf ríkar ástæður til að breyta stjórnarskránni jafnvel þó það standi ekki í henni eins og Guðmundur Ásgeirsson segir, enda byggist þannig orðalag á huglægu mati þeirra sem vilja eða vilja ekki breyta.
S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 21.7.2021 kl. 00:15
Ef það væri svona nauðsynlegt að banna heildarbreytingar á stjórnarskránni væri það auðvitað í núverandi stjórnarskrá.
Og vegna þess að þrisvar hefur stjórnarksránni verði breytt varðandi kjördæmi og kosningar, og í öll skiptin eftir mikinn ágreining, yrði að vera ákvæði um það, hve stórum hluta hennar mætti breytta, ef það ætti að takmarka það á annað borð.
En ekkert slíkt ákvæði er til, einfaldlega vegna þess að í landinu er þingræði, og auðvitað getur hvaða alþingi sem er lagt fram frumvarp um breytingar á stjórnarskránni og samþykkt þær eftir gildandi reglum,
Annars væri hér ekki þingræði.
Ómar Ragnarsson, 21.7.2021 kl. 16:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.