Er Morinsheiði á Fimmvörðuhálsi?
20.7.2019 | 19:50
Ný þyrla Landhelgisgæslu Íslands, TF-GRÓ, fór í sitt fyrsta útkall í dag er hún sótti slasaðan göngumann á Fimmvörðuháls. [...]
Áður hafði borist tilkynning frá Landsbjörg um að björgunarsveitir á Suðurlandi væru farnar af stað til þess að sækja manninn þar sem hann var staddur ofarlega á Morinsheiði.
Þetta segir á mbl.is. Á visir.is segir:
Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út í dag þegar hún sótti mann á Fimmvörðuháls sem var slasaður á fæti.
Maðurinn var staddur ofarlega á Morinsheiði við Heljarkamb ásamt samferðafólki.
Á dv.is segir:
Rétt upp úr klukkan þrjú í dag voru björgunarsveitir á Suðurlandi kallaðar út vegna göngumanns á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls, en maðurinn er slasaður á fæti. Hann er staddur ofarlega á Morinsheiði við Heljarkamb og hjá honum er samferðafólk.
Takið eftir orðalaginu. Án efa má rekja það til Landsbjargar en fjölmiðlarnir birta fréttatilkynninguna athugasemdalaust.
Hér kemur spurning dagsins: Er Morinsheiði á Fimmvörðuhálsi?
Svör skal skal senda ritstjórum fjölmiðlanna sem hér hefur verið vitnað til sem og til formanns Landsbjargar. Þeir munu veita verðlaun við hæfi sem líklega er landakort.
Myndin er tekin í norðurhlíðum Bröttufannarfells. Stóra sléttan fyrir miðri mynd er Morinsheiði. Útigönguhöfði er lengst til vinstri og Hrunagil er hægra megin við heiðina.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.