Æ, æ og æ ofan í æ ...
12.4.2018 | 12:56
Alþýðufylkingin stendur ekki undir nafni, sárafáir fylkja sér með henni, hvorki í Alþingiskosningum né sveitarstjórnarkosningum.
Besti árangur Alþýðufylkingarinnar var í sveitarstjórnarkosningum 2014 er hún fékk 0,4% atkvæða, 219 manns kusu hana. Engu að síður kusu 575 manns flokkinn í Alþingiskosningunum 2016 en hlutfallið var þó aðeins 0,3%
Síðast haust fékk flokkurinn aðeins 0,2% þó 375 manns hafi kosið hann.
Venjulegt fólk hefði auðvitað hætt þessari vitleysu en í Alþýðufylkingunni er ekkert venjulegt fólk heldur hörkuduglegt fólk sem tekur ekki mark á synjun, tekur ekki nærri sér þó þjóðin hafni henni æ ofan í æ.
Og æ, æ. Nú ætlar hann Þorvaldur trésmiður Þorvaldsson að bjóða sig enn einu sinni fram og núna í borgarstjórnarkosningunum í vor. Við liggur að maður vorkenni honum. Hann er eins og maðurinn sem sér ekki dyrnar og gengur á glerið aftur og aftur (æ ofan í æ).
Honum fer eins og karlinum sem réri bát sínum á skerið og orti rétt áður (skrifað eftir minni):
Ýtar sigla út með sjó
á unnarjónum káta.
Skipið er nýtt en skerið hró
og skal því undan láta.
Og svo hrópar þessi ágæti frambjóðandi eins og félagi Stalín forðum: Berjumst félagar, berjumst.
Ég spái Alþýðufylkingunni 0.05% atkvæða, það er ef skyldmenni frambjóðenda mæti kjörstað.
Þorvaldur leiðir Alþýðufylkinguna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:40 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.