Athugasemdir við málfar í fjölmiðlum
16.7.2017 | 18:27
1.
Vafamál: Væntir samdráttar hjá bílaleigum. Fyrirsögn í viðskiptablaði Morgunblaðsins 6. júlí 2017.
Athugasemd: Sé sögnin að vænta komin af nafnorðinu von hefði mátt sleppa þessari fyrirsögn vegna þess að viðmælandinn er ekki að vonast eftir samdrætti, hann frekar óttast hann. Hins vegar eru til margar útgáfu af þessu orði: Ólétt kona væntir sín, við væntum mikils af kvennalandsliðinu, ég vænti þess að vinna í happdrætti, ég vonast ekki til að bíllinn bili, er frekar hræddur um það.
Tillaga: Býst við samdrætti hjá bílaleigum.
2.
Vafamál: Hættur við endurreisn alþjóðahagkerfisins. Fyrirsögn í viðskiptablaði Morgunblaðsins 6. júlí 2017.
Athugasemd: Fyrirsögnina má hæglega misskilja enda ekki ljóst hvort fyrsta orðið sé sögn eða nafnorð. Svo bætist næsta orð við. Sé einhver hættur við, heldur hann ekki áfram. Sé fyrsta orðið nafnorð þá er merking fyrirsagnarinnar sú sem höfundurinn hennar á við. Bent er á þetta til að sýna fjölbreytni íslenskunnar og hversu miklu skiptir að velja rétt orð til að fyrirbyggja misskilning.
Tillaga: Þetta er fín fyrirsögn þrátt fyrir annmarka hennar.
3.
Vafamál: Björgunarsveitir á Ítalíu hafa fundið lík átta einstaklinga sem var saknað eftir að fjölbýlishús hrundi til jarðar skammt frá borginni Napólí í gær. mbl.is
Athugasemd: Hús hrynja lóðrétt niður, til jarðar, að hluta eða öllu leyti. Óþarfi að bæta þessu við til jarðar. Þar að auki fundust lík átta manna. Menn eru einstaklingar, hvort heldur að það séu konur eða karlar.
Tillaga: Björgunarsveitir hafa fundið lík átta manna sem saknað var eftir að fjölbýlishús hrundi skammt frá borginni Napólí í gær.
4.
Vafamál: Í júní voru framboðnar gistinætur Icelandair Hotels rúmlega 40 þúsund samanborið við rúmlega 36 þúsund í júní á síðasta ári. Morgunblaðið 8. júlí 2017, bls 20.
Athugasemd: Illskiljanleg málsgrein, of löng og tilgerðarleg. Hvað eru framboðnar gistinætur? Ef átt er við gistinætur í boði af hverju er það ekki sagt?
Tillaga: Í júní voru í boði 40 þúsund gistinætur hjá Icelandair Hotels en 36 þúsund í fyrra.
5.
Vafamál: Ekki fleiri arnarnarpör lengi. Fyrirsögn í Morgunblaðinu 12. júlí 2017, bls 4.
Athugasemd: Lengi er atviksorð og getur illa staðið aftast í málsgrein, hún verður hálfkjánaleg fyrir vikið. Átt er við að arnarpör hafi sjaldan verið fleiri en nú.
Tillaga: Sjaldan fleiri arnarpör eða arnarpör hafa sjaldan verið fleiri.
6.
Vafamál: Bankarnir stíga á bremsuna í lánveitingum til hótelverkefna. Fyrirsögn á visir.is.
Athugasemd: Fyrirsögnin er óþarflega löng. Átt er við að dregið hafi úr áhuga banka að lána til bygginga á hótelum. Óskiljanlegt hvers vegna byggingar á hótelum eru kölluð hótelverkefni.
Tillaga: Bankarnir lána minna til bygginga hótela, eða bankarnir draga úr lánum til hótelbygginga.
7.
Vafamál: Forsætisráðherrann er staddur í París til að taka þátt í minningarathöfn um fórnarlömb fjöldahandtöku sem nasistar framkvæmdu í Frakklandi árið 1942. Frétt á mbl.is.
Athugasemd: Þetta er afleitt orðalag, að framkvæma fjöldahandtöku. Minningarathöfnin var um þá sem nasistar handtóku. Af hverju er það þá ekki sagt beinum orðum í stað þess að flækja setninguna í ljótu nafnorðastagli?
Tillaga: um þá sem nasistar handtóku í Frakklandi árið 1942.
8.
Vafamál: Það er mjög blómleg afgönsk pressa, sem var ekki til undir talíbönum. Það er fullt af sjálfstæðum fjölmiðlum þarna og mikill metnaður í því. Það er mjög jákvæð og góð þróun í lýðræðisátt enda fjölmiðlar ein af grunnstoðunum. Viðtal við Unu Sighvatsdóttur í Fréttablaðinu.
Athugasemd: Viðtalið er langt og blaðamaðurinn virðist ekki alveg ráða við það, kastar stundum til höndunum. Þegar viðmælandi talar rangt mál, á blaðamaðurinn að laga það, ekki gera honum þann óleik að skrifa hugsunarlaust upp eftir honum. Sama er um annað í viðtali, blaðamanni ber að gera það læsilegra. Persónufornafnið það er ofnotað og verður við það merkingasnauður leppur, barnalegur og leiðinlegur. Í slíkum tilfellum kallast persónufornafnið aukafrumlag sem flestir reyna að forðast.
Tillaga: Hér hefði blaðamaðurinn átt að nota hugmyndaflugið og skrifa framhjá aukafrumlaginu.
9.
Vafamál: Bátur til sölu ásamt kerru sem er í smíðum, verð Smáauglýsing í Fréttablaðinu 16. júní 2017.
Athugasemd: Allt bendir til að kerran sé í smíðum en samkvæmt myndinni er virðist báturinn vera í smíðum. Mikilvægt er að sem, tilvísunarfornafnið, vísi alltaf til þess sem verið er að útskýra.
Tillaga: Bátur í smíðum til sölu Eða: Bátur til sölu, kerra í smíðum fylgir
10.
Vafamál: Rafdrifnir upphitaðir útispeglar, 2x afturhurðir að aftan. Auglýsing um Ford Transit bíla í Fréttablaðinu 16. júní 2017.
Athugasemd: Flestir skilja samstundis að afturhurð er aftan á Ford Transit, séu þar dyr. Hurð notuð til að loka dyrum. Flókið er að hafa hurðir að aftan án dyra. Um leið er sárt að ganga um hurðir. Aldrei er talað um gleðinnar hurðir heldur um gleðinnar dyr..
Tillaga: tvær hurðir á afturdyrum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.7.2017 kl. 00:35 | Facebook
Athugasemdir
Góð grein og þörf er á fleirum slíkum.
Jóhannes (IP-tala skráð) 16.7.2017 kl. 23:26
Góð grein Sigurður - Ekki vanörf á að taka á þessum málum, og það í sífellu.
Már Elíson, 17.7.2017 kl. 07:45
Sammála. Verra var það þó, þegar einn af dagskrárgerðarmönnum Rúv var að segja frá afmæli Snorrastyttunnar í Reykholti og hátíðarhöldum í því tilefni, og sagði þá, að árið 1947 hefði krónprins Noregs, sem er núverandi konungur, mætt til að afhjúpa styttuna. Þessi Rúvmaður vissi greinilega ekki, hver var krónprins Noregs árið 1947, sem sagt Ólafur, afi núverandi konungs. Ég ætlaði varla að trúa mínum eigin eyrum, þegar ég heyrði þessa vitleysu í Rúv. Það er greinilegt, að sumir virðast ekki kunna söguna nógu vel. Haldið það sé nú!
Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 17.7.2017 kl. 12:03
Gudbjorg her ferd thu med rangt mal. Olafur sem var kronprins 1947 var fadir nuverandi konungs EKKI afi.
Dettur helst i hug ad thu sert ad rugla her saman vid Sviakonung en nuverandi Sviakonungur tok vid af afa sinum Gustav Adolf 1973. Nuverandi konungur Carl Gustav sem tok vid af afa sinum 1973 var naestur rikiserfdum thar sem ad fadir hans forst i flugslysi 1947.
Egill Thorfinnsson (IP-tala skráð) 17.7.2017 kl. 14:31
Já, ég ætlaði að fara að bæta því við, að það hafi orðið hugsanavilla þarna, sem alltaf getur gerst. Ég veit það mætavel, að Haraldur núverandi konungur er Ólafsson. Ég athugaði þetta bara ekki nógu vel, áður en ég lét það fara. Engu að síður stendur það, sem ég sagði, að þeir hjá útvarpinu hefðu nú átt að vita það, að Haraldur gat varla verið í Reykholti árið 1947 að afhjúpa minnismerki um Snorra, þar sem hann var bara pínulítill peyji þá, nema hann hafi verið þar með Ólafi. Það er aftur annað mál. Rétt skal líka rétt vera, enda hugsaði ég það líka, að mér hefði orðið á í messunni þarna, og ætlaði eins og ég sagði, að leiðrétta hugsanavilluna. Biðst ég velvirðingar á þessu.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 17.7.2017 kl. 16:10
Kæri Sigurður
Gott að fá þig í þetta verkefni, að leiðrétta málfar blaða og útvaps.
Þegar Eiður Guðnason féll frá taldi ég litlar líkur á að nokkur myndi koma í hans stað.
Ég er sammálaþér um allt nema dæmi númer 3, um menn og konur.Það er rétt hjá þér að stundum er orðið maður notað um bæði kyn (maðurinn er kominn af öpum) en ég tel rangt að segja að hús hafi hrunið og tíu menn farist, ef konur hafa verið meðal hinna látnu. Þar vil ég láta nota orðið "manns", það táknar af báðum kynjum.Enginn myndi segja að slys hafi orðið og fjórir menn, allt konur, hafi dáið.
Hvað segja aðrir im þetta?
Geir Magnusson (IP-tala skráð) 18.7.2017 kl. 00:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.