Vangaveltur
17.3.2017 | 22:00
Segja má að þetta sé að minnsta kosti ástæða til örstuttra vangaveltna:
Húsnæði: Í Reykjavík er mikill húsnæðisskortur og þar af leiðandi hækkar fasteignaverð sem og leiguverð íbúða.
- Enginn gagnrýnir borgarstjórnarmeirihlutann fyrir að bjóða ekki upp á lóðir í samræmi við eftirspurnina.
- Borgarstjóri kennir ríkinu um lóðaskortinn og lætur sem hann komi borginni ekkert við.
Verðbólga: Verðbólga það sem af er þessu ári hefur mælst um 1,9%, ástæðan er að mestu leyti hækkun fasteignaverðs.
- Svo lengi sem elstu menn muna hefur forysta launþegahreyfingarinnar barist gegn verðbólgunni og krafist meiri kaupmáttar.
- Nú er aðalvandinn að mati ASÍ að verðbóla gæti aukist, kannski, ef til vill, hugsanlega ...
Kaupmáttur launa: Á síðustu tveimur árum hefur kaupmáttur launa aukist um 50%.
- Fjölmargir telja að það geti ekki gengið lengur að fólk hafi góð laun og kaupmáttur þeirra sé mikill.
Ríkisútgjöld: Mikið er varað við auknum ríkisútgjöldum.
- Hins vegar þarf að auka fjárveitingar í heilbrigðiskerfið, samgöngumál, lögregluna, dómstóla, skólamál og álíka.
- Aukning ríkisútgjalda í allt hitt er efnahagslega hættulegt.
Krónan: Hvar eru nú þeir sem sögðu að krónan væri handónýtur gjaldmiðill:
- Gengislækkun er sterk vísbending um ónýta krónu.
- Styrking krónunnar er vísbending um að krónan er ónýt.
- En það er allt annað með hina mikilfenglegu Evru ... Úbbs!
Gengi krónunnar: Hann er vandrataður meðalvegurinn:
- Hækki verð erlendra gjaldmiðla (gengisfelling) græðir sjávarútvegurinn, ferðaþjónustan, iðnaðurinn og aðrar útflutningsgreinar.
- Lækki verð erlendra gjaldmiðla (gengisstyrking) lækka innfluttar vörur, t.d. matur, bílar, eldsneyti og fleira.
Vextir: Furður íslenskra banka:
- Verðtryggð íbúðalán eru um 5%
- Óverðtryggð íbúðalán eru um 7%
- Í Noregi íbúðalán um 3,5% ... og norskir bankar lifa'ða af
Stjórnarandsstaðan: Um afnám gjaldeyrishafta og bráðnun snjóhengjunnar:
- Man nokkur hvað hún sagði?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.