Eru hin kristnu gildi ekki algild?

ISISÁ Íslandi er trúfrelsi. Maður spyr ekki um trú þeirra sem hingað leita, ekkert frekar en maður spyr ekki um trú neins áður en honum eða henni er bjargað. (Fyrir kristna: Samverjinn spurði ekki um trú þess sem lá særður við veginn heldur gengur strax í það að hlúa að honum). Eina sem farið er fram á er að viðkomandi hlíti íslenskum lögum þar með þeim Mannréttindasáttmálum sem í gildi eru. Síðar er með ýmsum hætti farið fram á að sá aðkomni aðlagist íslensku samfélagi, og lifi í sátt við þá sem fyrir eru. Þeir sem fyrir eru gera samskonar kröfur til sjálfs sín.

Þannig ritar Baldur Kristjánsson, prestur, á bloggsíðu sína þann 5. september 2015. Mér þykir þetta vel ritað og er sammála.

Nú berast ótrúlegar frétt af vanda sem flóttamenn frá Sýrlandi og fleiri löndum hafa skapað í Evrópu. Auðvitað er það hræðilegt að fólk skuli þurfa að flýja frá heimilum sínum og til annarra landa af því að lífi þeirra er ógnað. Sögur af mannvonsku þeirra sem hafa verið kenndir við Isis eða ríki íslam eru átakanlegar, óhugnaðurinn er engu líkur. Þessi lýður eirir engu, hvorki fólki, byggingum né landi. Allt skal lagt í rúst, öllu umturnað. Mannvonskan er yfirgengileg og allt í trúarlegum tilgangi.

Hundruðir þúsunda hafa flúið til Evrópu, milljónir til næstu ríkja, Íraks, Líbanon, Jórdaníu, Tyrklands og víðar.

Séra Baldur bendir á nokkuð athyglisvert atriði í pistli sínum. Hann segir:

Við, hver sem við erum, eigum ekkert með það að tengja saman trú og réttindi. Enginn á að gjalda trúar sinnar eða græða á henni hvort sem um er að ræða landvistarleyfi eða önnur réttindi, að ekki sé talað um björgun.

Í sannleika sagt er það þetta sem kristin gildi ganga út á. Þau hafa orðið að menningu sem við höfum tekið á móti, skiptir engu við erum kristinnar trúar eða ekki. Okkur ber skylda til að aðstoða aðra í neyð þeirra rétt eins og sagan um miskunsama Samverjann kennir. Eða eru undantekningar frá hinum kristnu gildumsem gleymst hefur að segja frá?

Staðreyndin er þessi: Fólk er almennt gott og leitast eftir því að vernda sig og fjölskylduna og sinna frumþörfunum. Vont fólk er í miklum minnihluta en með ofbeldi ræður það alltof miklu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Íslam bíður uppá að hinir verri ráði meiru þeir skárri. Sé það rétt að Íslamismi sé trú, þá er kommúnismi og fasismi líka trú.

Hrólfur Þ Hraundal, 7.9.2015 kl. 17:28

2 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Er ekki búið að afkristna þjóðina? Eða stefnt að því í barnaskólum?

Eyjólfur G Svavarsson, 7.9.2015 kl. 18:22

3 Smámynd: Loncexter

Hverjar eru líkurnar á því að flóttamenn taki almennt upp kristni þegar hingað er komið ?

Og hvernig verður samfélagið eftir 20 ár, ef 30.000 einstaklingar iðka hér islam ?

Og hvernig er islamskur kærleikur ?

Fólk á að hugsa áður en það framkvæmir. Þá sérstaklega stjórnmálafólk.

Loncexter, 7.9.2015 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband