Þjóðin ber ekki ábyrgð á Icesave og greiðir því ekkert
24.4.2015 | 08:57
Fengin var endanleg staðfesting fyrir EFTA-dómstólnum í lok janúar 2013 á því að íslenzkir skattgreiðendur bæru ekki ábyrgð á skuldbindingum Tryggingasjóðs innistæðueigenda og fjárfesta (TIF) vegna Icesave-reikninga Landsbanka Íslands. Þar með var hafnað kröfum brezkra og hollenzkra stjórnvalda um að ríkissjóði Íslands bæri að standa undir skuldbindingum tryggingasjóðsins með íslenzku skattfé. Svokallað Icesave-mál snerist um þetta.
Hjörtur Guðmundsson, blaðamaður Morgunblaðsins, ritar góðan Pistil í blað dagsins. Eins og ofangreind klausa bendir til fjallar hann um lyktir Icesave málsins, og gerir það á einfaldan og skilmerkilegan máta.
Þörf var á því að rifja málið upp vegna þess að enn viðast svo margir slæmir á sál og geði eftir hrakfarir ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri græna vegna málsins.
Eftir að dómur EFTA-dómstólsins lá fyrir var brezkum og hollenzkum stjórnvöldum nauðugur einn kostur. Það er að beina kröfum sínum að TIF í stað íslenzkra skattgreiðenda.
Tryggingasjóðurinn er sjálfseignarstofnun sem sett var á laggirnar á sínum tíma í samræmi við tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar vegna aðildar Íslands að EES-samningnum en aðild að sjóðnum eiga fjármálastofnanir sem reka starfsemi hér á landi. Tryggingajóðurinn er með öðrum orðum ekki á vegum íslenzka ríkisins og íslenzkir skattgreiðendur bera enga ábyrgð á skuldbindingum hans.
Hvað þýðir þetta, það er að hollensk og bresk stjórnvöld þurftu að höfða mál á hendur TIF en ekki íslenska ríkinu? Jú, einfaldlega það að ábyrgðina vegna Iceave var ekki hægt að leggja á herðar íslenskra skattgreiðenda, þjóðarinnar. Í því sambandi skiptir þjóðina litlu máli hvort Icesave sé lokið eða ekki. Markmiðið náðist, eða eins og Hjörtur orðar það:
Staðreyndin er hins vegar sú að þeir sem börðust gegn Icesave-samningunum lögðu einmitt áherzlu á að kröfum vegna skuldbindinga TIF bæri að beina að sjóðnum sjálfum en ekki að íslenzkum skattgreiðendum.
Það er nákvæmlega það sem brezk og hollenzk stjórnvöld eru að gera nú. Andstæðingar samninganna bentu sömuleiðis á að fara yrði með slíkar kröfur fyrir íslenzka dómstóla. Sömuleiðis nákvæmlega það sem er að gerast nú. Stuðningsmenn samninganna héldu öðru fram.
Geðstirðir vinstri menn sem enn eru með böggum hildar vegna þess að þjóðin reis upp á móti ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og flengdi hana, hafa upp á síðkastið haldið því fram að Icesave væri ekki lokið, enn væru Íslendingar að greiða skuldina. Auðvitað er þetta tómt bull fyrirsagnahausa, þeirra sem ekki fylgjast með. Þessir nefna til sögunnar skuldabréfið sem nýi Landsbankinn er að greiða af og draga af því þá kolröngu ályktun, viljandi eða óviljandi, að íslenskir skattgreiðendur séu þar að greiða.
Hjörtur segir í lok pistilsins og í þessum orðum hans felst kjarni málsins:
Með baráttunni gegn Icesave-samningunum var því forðað að skuldbindingum TIF væri komið yfir á íslenzka skattgreiðendur. Skuldabréfið á milli nýja og gamla Landsbankans hefði ekki horfið við það að samþykkja Icesave-samningana. Hins vegar hefði þá vissulega ekkert orðið af dómsmáli brezkra og hollenzkra stjórnvalda fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Slík málshöfðun hefði enda verið óþörf ef tekizt hefði að koma Icesave-klafanum um háls íslenskra skattgreiðenda.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:02 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.