Enn og aftur fara Rússar illa með Svía

Skömmu áður en Sovétríkin hrundu belgdu þau sig út og þóttust umtalsvert meiri en þau í raun voru. Kafbátar þeirra iðkuðu feluleik í sænska skerjagarðinum sér til skemmtunar.

Fjöldi tilvika eru skráð á árunum 1962 til 1988. Allt var þetta taugatrekkjandi en árangurslaust leitarstarf bræðra vorra í sænska flotanum. Raunar var það svo í lokin að þetta voru sagðir smákafbátar, gott ef ekki fjarstýrðir. Svona skýringar áttu að hjálpa til við að útskýra árangursleysið. Auðvitað harðneituðu Sovétmenn tilvist kafbáta í sænska skerjagarðinum en brostu áreiðanlega út undan skegginu.

Það var ekki fyrr en 27. október 1981 að kafbátur sigldi upp á sker við Karlskrona að sænski flotinn fékk smávægilega uppreisn æru. Glottu þá sænsk stjórnvöld en Sovétmenn áttu afar illt með að neita glæpnum.

Það sem hins vegar vakti sífellt meiri athygli eftir því sem meintum kafbátum fjölgaði í sænska skerjagarðinum var hversu erfiðlega sænska flotanum tókst að hafa upp á þeim. Raunar var það svo að aldrei tókst þeim að elta uppi einn einasta kafbát. Strand rússneska kafbátsins var ekki sænskum að þakka.

Eftir að Sovétríkin hrundu hefur greinilega ekki mikið gerst. Þrátt fyrir alla sína tækni er Svíum gjörsamlega ómögulegt að finna rússneska kafbáta innan eigin lögsögu og eru þó nokkur tilvik skráð um eltingarleiki. Og enn og aftur valsa Rússarnir út og inn um sænska skerjagarðinn og sænski flotinn lítur út eins og skátar í skemmtiferð í árabátum.

Tvennt er nú til ráða hjá sænskum. Annað hvort efla þeir varnir sínar eða þeir taki með viðhöfn á móti Rússunum eins og hverjum öðrum ferðamönnum. Víst má vera að hið síðarnefnda gæti styrkt sænska ferðaþjónustu umtalsvert. Á meðan breiðist sama meinfýsna glottið út á andliti Kremlverja eins og gerðist þegar þeir voru kenndir við Sovétið.


mbl.is Rússneskt skip á leið til Svíþjóðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þetta er svona ég las um að menn islanskir sem voru í Moskvu að þeir hittu á krá nokkar eldri kafbátsforingja sem voru að skemta sér þar,þar sem íslandingarnir fóru að singja komu Rússarnir og tóku þátt og söðust kunna fullt af Íslenskum lögum þegar kafbátar þeirra lágu undan Keflalavik og þeim leiddist og hlustu sífalt á Utvap keflavik og lærðu llögun utanað,og fagnaður varð mikill!!!!!!

Haraldur Haraldsson, 20.10.2014 kl. 00:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband