Jan. 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Morgunblaðið gagnrýnir sæstrengsverkefnið
17.10.2014 | 09:00
Ákafi fyrirtækisins við að vinna við svokallað sæstrengsverkefni er eiginlega enn skrítnari, þótt þar fylgi hvorki hávaðamengun né fugladráp. Það mál er kynnt í óskiljanlegum sefjunarstíl, sem er þessu mikla fyrirtæki ekki sæmandi.
Leiðarahöfundur Morgunblaðsins fer mikinn í dag og leyfir sér að gagnrýna Landsvirkjun. Ofangreind orð eru úr þessum leiðara og eru stórmerkileg því lengi hefur fyrirtækið fengið að valsa um og vinka sæstrengnum framan í landsmenn rétt eins og hann væri galdragulrót sem hægri menn hafa margir hverjir kokgleypt.
Vandinn er bara sá að engin orka er í fyrirsjáanleg í sæstrenginn nema með ótrúlegum breytingum á landslagi og meðfylgjandi náttúruskaða.
Sefjunarstíll má hiklaust kalla þessa sæstrengspólitík Landsvirkjunar. Við skulum varast að leggja trúnað á það sem þetta fyrirtæki segir um málið, mikið vantar upp á að þar séu öll kurl komin til grafar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.1.): 22
- Sl. sólarhring: 28
- Sl. viku: 125
- Frá upphafi: 1647010
Annað
- Innlit í dag: 17
- Innlit sl. viku: 103
- Gestir í dag: 17
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er með öllu óskiljanlegt að Landsvirkjun, eða aðrir "sæstrengssinar", skuli vera að eyða púðri í umræðu um raforkusæstreng til útlanda. Svo fjarlægur er þessi möguleiki, að varla tekur því að ræða hann. Það er engin orka afgangs, svo einfalt er það.
Halldór Egill Guðnason, 17.10.2014 kl. 13:02
Í landi sem helst má ekki virkja og reisa línumöstur þarf að reisa kjarnorkuver ef selja á raforku um kapal til Skotlands.
Hrólfur Þ Hraundal, 17.10.2014 kl. 17:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.