Morgunblaðið gagnrýnir sæstrengsverkefnið

Ákafi fyrirtækisins við að vinna við svokallað „sæstrengsverkefni“ er eiginlega enn skrítnari, þótt þar fylgi hvorki hávaðamengun né fugladráp. Það mál er kynnt í óskiljanlegum sefjunarstíl, sem er þessu mikla fyrirtæki ekki sæmandi.

Leiðarahöfundur Morgunblaðsins fer mikinn í dag og leyfir sér að gagnrýna Landsvirkjun. Ofangreind orð eru úr þessum leiðara og eru stórmerkileg því lengi hefur fyrirtækið fengið að valsa um og vinka „sæstrengnum“ framan í landsmenn rétt eins og hann væri galdragulrót sem hægri menn hafa margir hverjir kokgleypt.

Vandinn er bara sá að engin orka er í fyrirsjáanleg í sæstrenginn nema með ótrúlegum breytingum á landslagi og meðfylgjandi náttúruskaða.

Sefjunarstíll má hiklaust kalla þessa sæstrengspólitík Landsvirkjunar. Við skulum varast að leggja trúnað á það sem þetta fyrirtæki segir um málið, mikið vantar upp á að þar séu öll kurl komin til grafar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Það er með öllu óskiljanlegt að Landsvirkjun, eða aðrir "sæstrengssinar", skuli vera að eyða púðri í umræðu um raforkusæstreng til útlanda. Svo fjarlægur er þessi möguleiki, að varla tekur því að ræða hann. Það er engin orka afgangs, svo einfalt er það.

Halldór Egill Guðnason, 17.10.2014 kl. 13:02

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Í landi sem helst má ekki virkja og reisa línumöstur þarf að reisa kjarnorkuver ef selja á raforku um kapal til Skotlands. 

Hrólfur Þ Hraundal, 17.10.2014 kl. 17:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband