Kassinn hafnaði 10.000 króna seðlinum

Ég fór í verslun, þurfti ýmsar nauðsynjar og annan varning. Þegar ég taldi mig vera búinn að fá hæfilega mikið fór ég að kassa til að greiða.

Þar tók ég upp veskið, leit á debetkortið og kreditkortið, hugsaði mig tvisvar um, dró síðan upp tíu þúsund króna seðillinn og rétti afgreiðslustúlkunni hann.

Hún sló eitthvað á kassann svo leit hún á mig afskaplega undrandi á svip og sagði:

„Því miður, þessum seðli er hafnað. Hér stendur að ekki sé næg innistæða fyrir honum. Því miður, þú verður bara að greiða með korti.“

Og svo reif hún tíuþúsund króna seðilinn og kastaði honum í ruslið. 

Ég gapti ... og gapi enn. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Már Elíson

Góður....!....og góður að eiga 10.000.- seðil á þessum tímum þegar allt er borgað út rafrænt....!

Már Elíson, 26.10.2013 kl. 20:18

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

;-)

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 26.10.2013 kl. 20:26

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Skáldið hafnaði líka "myndbirtingar-upphefðinni" hans Más. Hvað ætli slitastjórnirnar séu að hugsa?

Eða dóms-stólaklíkan EES/ESB-stýrða? Óreglulega og "fjór-frjálsa"?

Ég vorkenni Angelu Merkel.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 26.10.2013 kl. 20:46

4 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Ég vona að þú hafir fengið seðilinn aftur. Þar sem þú getur fengið nýjan samkvæmt lögum séu meira en 2/3 hlutar seðilsins heilir.

http://www.sedlabanki.is/greidslumidlun/eftirprentanir-og-innlausn/innlausn-skemmdra-sedla/

 Hvað þessa verslun varðar. Þá verður þú að segja þeim að þetta sé nýjasti peningaseðilinn á Íslandi og hann sé í fullu gildi samkvæmt lögum.

Jón Frímann Jónsson, 27.10.2013 kl. 04:42

5 Smámynd: Sigurður Alfreð Herlufsen

Er þetta sönn saga?

Ef svo er þá hefur verið brotið á þér og vonandi hefurðu tekið slitrin af seðlinum til að fá nýjan í staðin.

Fórstu ekki til verslunarstjórans og kærðir athæfið?

Þetta virðist vera málum blandið og þú þarft að skíra þetta betur út, að nýr peningaseðill sé rifinn af afgreiðslumanneskju er algjörlega galið!

Sigurður Alfreð Herlufsen, 27.10.2013 kl. 10:14

6 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Nei, þetta er auðvitað haugalygi. Skáldleg samlíking við kortabissnissinn: „Ekki heimilað“ eða „Vákort, takið stax úr umferð“ eða eitthvað svoleiðis. Skrambi hvað maður er lélegur í skáldlegum tilburðum. Verð endilega að reyna að hætta þessu.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 27.10.2013 kl. 10:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband