Snoppurfríð Hollívúddleikkona í hlutverki Agnesar

FrettHvernig skyldi það vera í útlandinu, geta aðeins snoppufríðar stúlkur leikið aðalhlutverk í kvikmyndum? Ég spyr vegna lítillar fréttar á blaðsíðu 38 í Morgunblaðinu. Þar er tilgreind einhver leikkona frá Hollívúdd sem sögð er koma til greina í hlutverk Agnesar Magnúsdóttur.

Agnes er þekktust í Íslandssögunni fyrir að hafa ásamt Friðriki Sigurðssyni verið þau síðustu sem tekin voru af lífi vegna glæps.

Ef til vill féll Natan fyrir fegurð Agnesar en í lýsingum á henni kemur fram að hún hafi verið gáfuð og hæfileikarík enda ráðskona hans. Natan var hins vegar ekki við eina fjölina felldur í kvennamálum.

Saga þessa fólks er margbrotin og held ég að óþarfi sé að gera Agnesi að fegurðardís, leggja meiri áherslu á hæfileika hennar og gáfur sem eflaust höfðu laðað margan manninn að henni. Natan hafði án efa lofað henni gulli og grænum skógum en sveik allt. Biturð og reiði í ástarmálum hafa oft haft slæmar afleiðingar, þó sjaldan eins og í þessari sögu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hvurslags fordómar eru þetta? Má hún ekki vera bæði falleg og gáfuð?

Annars finnst mér þetta litlu máli skipta.

Oft skrifar þú nú um merkilegri mál en þetta.

Sæmundur Bjarnason, 9.10.2013 kl. 10:50

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þakka innlitið, Sæmundur. Þetta er bara skrifað frá hjartanu, án nokkurra meðvitaðra fordóma. Já, ég er sammála þér. Þetta heldur að minnsta kosti ekki vöku fyrir mér. En sagan er stórmerkileg.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 9.10.2013 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband