Flett ofan af viðkunnalegri mynd

Jens Stoltenberg lék vel í þessari stuttmynd sem átti að sýna hann í léttu ljósi. Hann er vissulega geðugur maður eins og hann á kyn til. Hins vegar brá manni dálítið við þá frétt að þetta hafi meira eða minna verið samið fyrirfram. Næst kemur líklega í ljós að farþegarnir hafi farið eftir handriti. Það væri verra.

En svona gerist þegar stjórnmálamenn eru að reyna að létta sér lífið og fara skemmri leiðina. Hefði þarna verið á ferð formaður Hægri flokksins og unnið samkvæmt fyrirframgerðu handriti hefðu fjölmiðlar hér á landi og í Noregi misst gjörsamlega stjórn á sér. 

Og að hugsa sér. Forsætisráðherra Noregs hefur ekki ekið bíl í mörg ár ... Líklegast hefur hann alltaf verið með bílstjóra. 


mbl.is Farþegar Stoltenbergs fengu greitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Gíslason

Þetta verður minnst sem einhver versta markaðskynning sem gerð hefur verið. Hver kýs svona mann sem þarf að greiða fólki til að fara í leigubílinn? En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hver þetta er.

Ómar Gíslason, 13.8.2013 kl. 23:47

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Held að þetta sé rétt hjá þér. En ef þetta hefði gerst hérna heima þá hefðu kverúlantar kært forsætisráðherrann fyrir að aka án þess að vera með leyfi.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 14.8.2013 kl. 10:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband