Fréttin er án efa röng

Fréttin er vafalaust röng. Vélsleðamennirnir sem eru á leið í Fimmvörðuskála eru ekki þeir sem fundur fólkið í Baldvinsskála. Leiðin yfir Mýrdalsjökul liggur ekki framhjá Baldvinsskála eins og fram kemur.

Að öllum líkindum hafa björgunarsveitarmenn ekið á bílum upp á Hálsinn frá Skógum. Vegurinn endar við nýja Baldvinsskála. Þaðan er ófært á vélsleðum upp að Fimmvörðuhálsi vegna snjóleysis, bratta og gilja. Því myndu vélsleðamenn þurfa að fara nær sömu leið til baka og taka stóran krók til að komast í námunda við Fimmvörðuskála og raunar varla komast upp á vélsleðum upp á hrygginn þar sem skálinn stendur.

Ég er nær viss um að fleiri ferðamenn eru í Fimmvörðuskála en sá ítalski. Skil ekkert í þessu ferðalagi björgunarsveitamanna að „bjarga“ ferðamanni sem hefst við í hlýjum skála, hefur nóg vatn og nóg að borða. Sama er með fólkið í Baldvinsskála. Skálinn er hlýr og góður.


mbl.is Fundu fleira ferðafólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sigurður. Takk fyrir athygliverðan pistil. Það er þakkarvert og mikilvægt að hafa fólk eins og þig á réttlátu gagnrýni-vaktinni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.6.2013 kl. 18:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband