Sigríður Ingibjörg og ósamstöðuliðið

Af hverju er Sigríður Ingibjörg ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, ekki í framboði sem formaður flokks síns? Hún smellpassar inn í embættið.

Þingmaðurinn gerir enga aðra athugasemd við orð forsetans um „samstöðu allra flokka með víðsýni og sáttavilja að leiðarljósi“ en eftirfarandi: „Þetta kemur ekki á óvart, enda hefur forsetinn ekki staðið með í þessu máli hingað til“.

Sem sagt orð forsetans eru fín og góð en gallinn er bara sá að Sigríði Ingibjörgu, þingmanni, finnst forsetinn ekki vera með henni í ósamstöðuliðinu.

Mikið óskaplega hlýtur að vera gaman í pólitík þegar við horfið er þetta: Ég ein veit og allir aðrir eru fúlir á móti.

Var ekki einhver að tala um að þetta væri sú pólitík sem við hefðum átt að skilja eftir árið 2008? 


mbl.is Segir orð forsetans ekki koma á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Gleðilegt ár Sigurður og hafðu þökk fyrir góðar blogggreinar á gamla árinu.

Vonandi tekst þér líka vel upp á nýja árinu.

Já þetta er orðið ansi þreytandi þetta "syndrome" Samfylkingarfólks "Vér einir vitum" og stendur alvöru þjóðmála umræðum fyrir þrifum bæði í stjórnarskrármálinu og ekki hvað síst í ESB málinu, þar sem höfðinu er bar stungið í sandinn !

Gunnlaugur I., 1.1.2013 kl. 18:37

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Gleðilegt ár, Gunnlaugur. Vona að þú haldir sjálfur áfram að skrifa á nýja árinu. Alltaf er þörf á heilbrigðum skoðunum í umræðunni.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 1.1.2013 kl. 18:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband