Flaug Ólína heim á kústi ...?

NornLas þetta á amx.is og hló alveg rosalega ...

Smáfuglarnir eru enn gáttaðir á Kastljóssþætti þeim þar sem Ólína Þorvarðardóttir gerði lítið úr vísindunum í tilraun sinni til að koma skottulæknum og fölsurum á fjárlög. Hvernig getur manneskja haldið öðru eins fram árið 2012?

Í því ljósi spyrja smáfuglarnir hvort Ólína hafi farið heim úr Efstaleiti á bíl, þar sem áratuga þróun í vísindum tryggir öryggan sprengihreyfil sem kveikir í eldfimu eldsneyti þúsund sinnum á mínútu nokkra sentímetra frá fótum Ólínu sem veldur sprengingum sem knýja bílinn áfram, eða hvort hún hafi flogið heim á kústi? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég myndi ekki gera grín af Ólínu. Er sjúkranugg lækning sem lærðir læknar framkvæma. Nei Geta læknar gert við bakverki nei. Sjúkranuddarar gera það með sönnu nema allt sé ónýtt. Ýmis efni lækna s.s. vítamín og steinefni. Læknar benda aldrei á þau.

Valdimar Samúelsson, 7.12.2012 kl. 18:57

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Eftir Kastljósþáttinn skammaðist ég mín fyrir að hafa með atkvæði mínu óbeint stuðlað að þingsetu þessarar konu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.12.2012 kl. 19:30

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Hún hefur eflaust sína kosti. Þeir sáust bara ekki í nefndum sjónvarpsþætti, Axel.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 7.12.2012 kl. 19:48

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ólína á ekki að vera í samfylkingunni hún gæti notið sín annarstaðar þar sem skoðanafrelsi er.

Valdimar Samúelsson, 7.12.2012 kl. 20:29

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Nornir eru ljóslega ekki en ekki alveg útdauðar, eins og sést á glæringum undna þeim frænkum  Silfurskottu og kúnstugu Rauðku.  En það sem veldur áhyggjum er að það eru víst fáir að menntasig í galdrakústasmíði nú um mundir.  Enda hallar orðið verulega á merinni eftir fjögura ára valda tíð þeirra.

 

Hrólfur Þ Hraundal, 7.12.2012 kl. 20:52

6 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Strákar, þetta er bara spaug, dálítið persónulegt en samt bara grín ...

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 7.12.2012 kl. 20:58

7 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Nei ágætur Sigurður Sigurðarson þetta er ekkert grín, enda leyfist engum að gera spaug með afkomu  þjóðar í þrengingum á meðan þær standa yfir.   Valdimar getur verið hrifin af þvaður rauðkunni, en oft hef ég séð frá honum gáfulegra mál.  Nornir eru til.

   

 

Hrólfur Þ Hraundal, 7.12.2012 kl. 21:32

8 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Valdimar: Sjúkranudd er löggilt starf innan heilbrigðisgeirans og krefst háskólanáms.

Það flokkast því seint undir kukl.

Svo benda læknar víst á vítamín og steinefni.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 8.12.2012 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband