Hraðferðin í ESB var byggð á rugli

ESB dellan

Stundum segja stjórnmálmenn of mikið. Ákefðin ber æði oft skynsemina ofurliði. Björn Bjarnason, fyrrum þingmaður og ráðherra, bendir á þessa staðreynd á Evrópuvaktinni í dag og segir að ekkert hefur verið að marka spádóma stjórnmálamanna um inngönguna í ESB. Þeir urðu bara svo hringlandi æstir og glaðir og töldu Evrópusambandið vilja fá Ísland inn sem fyrst. En þeir reiknuðu ekki með andstöðunni hér innanlands.

Aðlögunarviðræður hafa verið í gangi frá því árið 2009 og allan þann tíma, og raunar svo lengi sem elstu menn muna, hefur þjóðin verið andsnúninn inngöngu í Evrópusambandi. Skoðanakannanir hafa aldrei sýnt fram á neitt annað.

Samþykktin um aðlögunarviðræðurnar voru fengnar með svikum. Það átti að kíkja í einhvern pakka sem enginn veit hver afhendir enda er nú verið að aðlaga íslenskt stjórnkerfi, lög og reglur að því sem gerist í ESB.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég hef samt aldrei skilið það hversvegna þingið kærði ekki meðferð á ESB umsóknarferlinu þar sem málið fékk ekki eðlilega meðferð sem stjórnarerindið og fór ekki fyrir stjórnarráðsfund samkvæmt lögum og stjórnarskrá. Ég hef reynt að fá upplýsingar um þennan stjórnarráðsfund en þær liggja ekki á lausu.

Valdimar Samúelsson, 26.10.2012 kl. 20:46

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þú átt við ríkisstjórnarfund eða ríkissráðsfund. Veit ekki hvort þetta skiptir nokkru máli.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 26.10.2012 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband