Smíđi fornminja, sálfrćđi VG og ESB fléttan

Allt tal um ađ hér hafi veriđ unnin sú vinna sem valdiđ geti sárindum í stjórnarsamstarfi er međ miklum ólíkindum og fer raunar ekki milli mála ađ hér eru spunameistarar ESB-fléttunnar ađ verki.

Ţetta segir Ađalsteinn Árni Baldursson, formađur Framsýnar - stéttarfélags í grein í Mogganum í morgun. Hann er einn fjórmenninganna sem í starfshópi um gerđ tillagna í fiskveiđistjórnun á vegum sjávarútvegsráđherra. Ţađ eru einmitt hugmyndir ţessa starfshóps sem notađar hafa veriđ sem yfirskin til ađ reka Jón Bjarnason úr ríkisstjórninni.

Ađasteinn fer vítt yfir og sparar ríkisstjórninni ekki kveđjurnar. Hann segir:

Ţau einu fyrirmćli sem viđ fengum var ađ vinna sem best úr ţeim tćplega 40 umsögnum sem bárust Alţingi um máliđ og flestar reyndust neikvćđar í garđ ţess frumvarps sem legiđ hafđi fyrir. Hér höfđum viđ ađ veganesti skýrslu sáttanefndarinnar og stefnu ríkisstjórnarinnar. Viđ einsettum okkur ađ feta einstigi, fara millileiđ án ţess ađ viđ hefđum mikla von um ađ hćgt vćri ađ sćtta ólík sjónarmiđ. En ţetta var reynt og svo er annarra ađ dćma um hvernig til hefur tekist. Ráđherra tók ekki ţátt í stefnumótun hópsins eins og áđur sagđi enda ekki erindi okkar ađ leggja fram sérstakar tillögur hans heldur faglega nálgun á viđfangsefninu. 

Heimska og heimóttarskapur

Vinstri grćnir eru annars sérstakt sálfrćđilegt rannsóknarefni, ţeir bentu á Kárahnjúka ţegar vernda átti Eyjabakka, ţeir bentu á gufuaflsvirkjanir ţegar vernda átti Kárahnjúka, ţeir bentu á ferđaţjónustu, ţegar vernda átti gufuna, ţeir bentu á skoska jarđfrćđinema í Vatnajökulsţjóđgarđi ţegar banna átti hestamenn, ţeir benda á hvađ ţegar stoppa á uppbyggingu í ferđaţjónustu?

Sigurđi Ragnarssyni, framkvćmdastjóra á Egilsstöđum, er mikiđ niđri fyrir í grein sem hann skrifar í Moggann í morgun um synjun innanríkisráđherra á landakaupum Kínamannsins. Greinin er vel skrifuđ og skemmtileg. Hann segir ţetta í lokin:

Ađ lokum, ef einhverjum hefur dottiđ í hug ađ ţetta sé skrifađ í mikilli gremju og reiđi ţá hefur hann algjörlega rétt fyrir sér.

 Spurt um Ţorláksbúđ í Skálholti

Ótiltekinn hópur manna hefur tekiđ sig til og hafiđ smíđi fornminja í hlađinu á Skálholti. Ţar virđist ekkert til sparađ.

Ţađ vekur auđvitađ athygli ţví á sama tíma berst önnur og vitiborin starfsemi í Skálholti í bökkum, ţannig ađ erfiđleikar eru á ađ taka á móti fólki til kirkju og tónleika, ađ ekki sé talađ um ferđamenn vegna skorts á ađstöđu fyrir snyrtingu.

Ţannig skrifar Vilhjálmur Bjarnason, lektor viđ HÍ, í grein í Mogganum í morgun. Hann leggur fram tuttugu og sjö spurningar sem hann vill fá svör viđ frá ţeim sem höndla um Ţorláksbúđ, beint og óbeint. Hann vill til dćmis fá ađ vita hvađa sofnuđur Ţorláksbúđafélagiđ er, hver beri ábyrgđ á verkinu fjárhagslega, kostnađ, bókhald, endurskođun, ađkomu sveitarfélagsins, húsafirđinarnefndar og loks kemur spurning númer tuttugu og sjö:

Og svo ađ lokum: Annast Árni Johnsen alţingismađur, fyrrverandi formađur byggingarnefndar Ţjóđleikhússins, fjárreiđur Ţorláksbúđarnefndar, eđa hefur einhver afskipti af ţeim?

Allar ofangreinar greinar eru á blađsíđu 27 í Mogganum og engin ástćđa til ađ láta ţćr framhjá sér fara. Ţćr eru vel skrifađar og upplýsingagildi ţeirra er mikiđ hvort sem lesendur séu sammála efni ţeirra eđa ekki.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband