Spilltur stjórnmálamaður

Þeir eru óteljandi sem hafa farið mikinn vegna meintrar spillingar stjórnmálamanna, stjórnkerfis og fyrirtækja hér á landi. Einn þeirra sem hæst hefur heyrst í er Þráinn Bertilsson, þingmaður VG og áður Hreyfingarinnar og þar áður Borgarahreyfingarinnar.

Margt gott hefur komið frá Þráni en einnig hefur hann verið bölvaður strigakjaftur og verið óvæginn við þá sem eru á móti honum í stjórnmálum. 

Sagt er að ríkisstjórnin hangi á eins manns meirihluta eftir flótta nokkurra sósíalista úr VG. Ennfremur er því haldið fram að Þráin Bertilsson sé veki hlekkurinn.

Hann hyggst ekki styðja fjárlög ríkisstjórnarinnar verði ekki tryggð framlög til Kvikmyndaskóla Íslands. Þetta kallar Páll Vilhjálmsson, bloggari, pólitíska fjárkúgun. Hann hefur rétt fyrir sér. Það er hreint ótækt að þurfa að styðjast við mann sem er svona eins málefnis þingmaður. 

Með ákvörðun sinni kemst Þráin Bertilsson kemst næst því að vera spilltur stjórnmálamaður. Stjórnmálaflokkar þurfa að taka á svona málum og útrýma pólitískri fjárkúgun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óli minn

Ég væri afar fylgjandi því að Kvikmyndaskólinn fengi þá peninga sem hann þarf til að halda rekstrinum áfram en tel að Þráinn sé hér að skemma fyrir að úr því verði. Líkt og með hryðjuverkamenn og kúgara, þá má aldrei láta undan kröfum slíkra manna.

Óli minn, 10.8.2011 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband