Rekstur bankanna hærri en Landsspítalans

Stundum verður maður hreint gapandi hissa á staðreyndum úr þjóðfélaginu.

Árið 2009 var rekstrarkostnaður  stóru bankanna þriggja 24.7% hærri en Landsspítalans.  

Ári seinna eða 2010 var þetta hlutfall komið upp í 51.5%.  Ansi umhugsunarvert. 

Á milli áranna 2009 og 2010 lækkuðu heildar rekstrargjöld Landspítalans úr 38.8 ma niður í 36.5 ma eða um 6.1%.

Á sama tíma hækkaði rekstrarkostnaður bankanna þriggja um 14.2% eða úr 48.4 ma í 55.3 ma.

Hvernig getur það gerst að rekstur þriggja banka sé dýrari en rekstur Landsspítalans, þjóðarspítalans? eða öllu heldur, hvernir stendur á því að bankakerfið þenst út á meðan rekstur langflestra annarra fyrirtækja og stofnana dregst saman?

Ofangrein tilvitnun er út bloggi Andra Geirs Arinbjarnarsonar, http://blog.eyjan.is/andrigeir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Ingólfsson

Nafni, þetta er þörf ábending. Nú hafa bankarnir lítið aflögu til að lána atvinnulífinu til uppbyggingar og einstaklingum til húsnæðiskaupa vegna þessa háa rekstrarkostnaðar. Auk þess sem lánalínur þeirra til útlanda eru óvirkar. Á hrunárunum voru þeir of uppteknir að lána eigendum sínum í ýmiskonar brask að lítið var afgangs til hinna.

Sigurður Ingólfsson, 9.5.2011 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband