En ef bankarnir greiði fyrir Icesave ...

Látum bankanna greiða hina meintu skuld sem kennd er við Icesave. Ætli það myndi nú ekki heyrast annað hljóð úr horni Íslandsbanka ef það yrði raunin. Í sannleika sagt er þetta miklu betri lausn en sú að leggja Icesave byrðarnar sem skatt ofan á þrautpíndann almenning sem ekkert hefur til saka unnið.

Er þetta annars ekki kunnuglegt orðalag að samþykktin „muni marka tímamót í endurreisn íslensks efnahagslífs eftir hrun.“? Var þetta ekki annars sagt þegar þröngva átti síðasta Icesave samningi upp á þjóðina?


mbl.is Segir samþykkt Icesave muni marka tímamót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvers vegna ætti nokkur að taka mark á þessum greiningadeildum?  Var ekki komið á hreint að þær eru PR deildir, auglýsingastofur bankanna?

Annars er ég sammála, ef icesave fer í gegn, þá markar það tímamót.  Á sama hátt og aðrar hamfarir geta markað tímamót.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 15.2.2011 kl. 12:03

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hugmyndin hljómar voða vel. Hættan er hinsvegar sú að ef bankarnir verði skattlagðir fyrir þessu muni þeir einfaldlega finna leið til að velta þeim kostnaði yfir á viðskiptavinina: íslenska skattgreiðendur.

Guðmundur Ásgeirsson, 15.2.2011 kl. 15:23

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Auðvitað er þetta rétt hjá þér, Guðmundur. Hins vegar er ég afskaplega óánægður með ánægju Íslandsbanka með að almenningur þurfi að blæða vegna gjaldþrots fjármálastofnunar. Heldurðu að ánægja Íslandsbanka myndi ekki fljótt hjaðna ef bankastofnanir þyrftu að borga fyrir Icesave?

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 15.2.2011 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband