Þjóðaratkvæði um Icesave

Icesave-samningurinn verður að fara undir þjóðaratkvæði, það er rétt hjá Birni. Almenningur er afar tortrygginn út í stjórnmálamenn og stór hluti þjóðarinnar skilur hreinlega ekki hvers vegna hann eigi að greiða vanskilaskuldir óreiðumanna í útlöndum. Nógir eru erfiðleikar þjóðarinnar samt.

Þessi er í raun skoðun sem á sér vaxtandi fylgi í Evrópu, lánadrottnar gjaldþrota banka geta ekki gert kröfu til þess að skattfé þjóða greiði upp í vanskilin. Annað hvort eru þessi fyrirtæki einkarekin eða ekki. Að öðrum kosti eigum við von á því að jafnvel erlendur díler sem missir íslenskt burðardýr í tollinum í fjarlægu landi krefjist þess að ríkisvaldið bæti sér skaðann ... Eða hvað? 


mbl.is Björn vill þjóðaratkvæði um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég er alvega 100% sammála þér þetta er neflilega ekki eins auðvellt og þetta fólk sem stiður samninginn heldur enda eru þeirra laun mikiu hærri en mín ég og mínir nástöddu missum öll okkarheimili eins en ég afla fjár af er fornmuna einkasafn og það mun ekki duga mér ef þeir samþikja þetta enda ef hort er til bara fórum við sem erum alslaus og höfum alltaf staðið í skilum með allt vorum við að bruðla með peningana ég gerði það allavega ekki lifi ekki einu sinni með nútíma allt sem ég á er sumt yfir 250 ára aldur enda rek ég fonmuna safn en ég verð að búa á því vagna þess ég á einga peninga til að búa í öðru húsi og hafa fyrir tækið sér  takk fyrir ég vina þetta fari í okkur þjóðina og verði fellt

Ragnar Þór Ragnarsson (IP-tala skráð) 3.2.2011 kl. 13:45

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ef við töpum dómsmálinu verða afleiðingar miklu verri. Svo betur fer er meirihluti þjóðarinnar ekki svona áhættusöm að vilja hafna þessum samningi.

Einnig er mjög einkennilegt þessi skynndilega lýðræðisást hjá Sjálfstæðisflokknum.... ekki spurði hann þjóðin um EES, kvótakerfið, einkavæðing bankana, 300milljarða sem fór í seðlabankann og 200milljarðar sem fór í peningamrkaðssjóðina.

Sleggjan og Hvellurinn, 3.2.2011 kl. 13:55

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Lýðræðisást Sjálfstæðiflokksins er grundvöllur tilveru hans, að öðrum kosti væri hann ekki til. Það má síðan deila um það hvort við eigum ekki að nýta okkur þjóðaratkvæðagreiðslur miklu oftar.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 3.2.2011 kl. 13:58

4 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Ég er sammála. Þetta verður að fara í þjóðaratkvæði. Við eigum heimtingu á því almenningur!!

Eyjólfur G Svavarsson, 3.2.2011 kl. 14:00

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Já það er gott að vita það. Ég er ánægður með þetta nýja viðhorf sjálfstæðisflokksins.

Þeir beita sér þá næst að fá kvótakerfið í þjóðaratkvæðsigreiðslu

Sleggjan og Hvellurinn, 3.2.2011 kl. 16:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband