Þingmaður í röngum flokki

Fjöldi dæma er um að stjórnsýslan undir vinstra fargi hafi ekki náð að starfa eðlilega. Mál hafa tafist og ágreiningur milli ráðherra hefur orsakað mikinn vanda og því er ekki furða þótt erlendir fjárfestar hafi ekki áhuga á að lenda í dægurþrasi íslenskra ráðherra. 

Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur reynst vera skynsamur maður og tekið undir málflutning stjórnarandstöðunnar oft á tíðum. Því vaknar sú spurning hvort ekki geti verið að hann sé hreinlega í röngum stjórnmálaflokki og ætti heima í Sjálfstæðisflokknum. Hann virðist gera sér grein fyrir því að byggja þurfi upp öflugt atvinnulíf til að vinna bug á efnahagsvandanum.


mbl.is Fyrirtæki hætta við verkefni í Verne Holding
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Sigurgeirsson

Það er ekki og á ekki að vera sjálfgefið að þingmenn vinstri flokkanna séu asnar.  Sem betur fer er líka talsvert af hugsandi fólki í stjórnarflokkunum.

Kjartan Sigurgeirsson, 7.9.2010 kl. 14:45

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þakka þér fyrir ábendinguna, Kjartan. Þetta hafði sosum hvarflað að mér.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 7.9.2010 kl. 14:52

3 Smámynd: Durtur

Ég þakka Kjartani líka fyrir ábendinguna; ég var að hugsa það sama og Sigurður en hugsunin, að vinstrimenn væru ekki sjálfkrafa asnar, hafði eiginlega ekki harflað að mér. Ég sé veggi heimsmyndar minnar hrynja í kringum mig... samfylkingarmaður sem "meikar sens"... hvað næst? Páll Óskar giftist Jónínu Ben og Gunnari í Krossinum eftir að þau fá öll óvæntar heimsóknir frá Mormónum? Íslendingar vinna Dani í fótbolta? Ég er alveg hættur að taka nokkrum hlut sem gefnum.

Merkilegt hvað nokkur orð geta haft mikil áhrif sé þeim raðað upp á réttan máta. Ég tek ofan fyrir þér, Kjartan.

Durtur, 7.9.2010 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband