Hey, enn er sumar þrátt fyrir kuldakast

Í dag er 22. ágúst. Sumri er tekið að halla. Samt er ekki komið haust. Vel getur verið að það sé kuldakast á landinu, en engu að síður, ... það er ekki komið haust. 

Við búum á Íslandi og veðráttan hér getur verið talsvert undarleg fyrir útlendinga en ekki fyrir Íslendinga. Strax eftir verslunarmannahelgina var farið að bera á því hjá ljósvakavíkingum að haustið væri á næstu grösum. Kommon, eru fjölmiðlamenn virkilega svo illa að sér að þeir þekki ekki á dagatal eða inn á íslenska veðráttu.

Nú er sumar. Sættum okkur við að oft á sumrin verður stundum kalt og það hefur komið fyrir, jafnvel á þessu ári að það snjói í fjöll í júní og júlí. 

Þessu til viðbótar má fullyrða að haust á Íslandi hafa undanfarin ár frekar verið mild, stundum langt fram á vetur ... fram í desember. 


mbl.is Haustið sýnir klærnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Gæti ekki verið meira sammála þér.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.8.2010 kl. 15:38

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Því virðist dálítið þannig farið að um leið og dimma fer á kvöldin og myrkur að skella á þá fara menn að tala um haust. Og rigningar og norðanáttir (sem þó geta allteins komið í júlí) ýta svolítið undir þetta snemmbæra hausttal.

Arnór Bliki Hallmundsson, 22.8.2010 kl. 18:42

3 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Eins er þetta seinnipart vetrar; oft vilja menn tala um vorkomu í seinni hluta mars þegar orðið er bjart fram á kvöld. Þó vetur ríki sannarlega langt fram í apríl.

Arnór Bliki Hallmundsson, 22.8.2010 kl. 18:49

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Eins og þú segir Sigurður þá er enn sumar og óþarfi að fara á hliðina vegna eins kuldakasts.

En við Íslendingar virðumst aldrei ætla að læra á árstíðirnar til fulls, því alltaf kemur fyrsta hálkan á haustin okkur jafn skemmtilega á óvart, þó löngu sé komin tími á hana.

Bið að heilsa Magga sveitó og Dolla frænda.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.8.2010 kl. 01:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband