Borgarstjóri í litlu málunum, Dagur í þeim stóru

Fullyrðingin í niðurlagi fréttarinnar er einfaldlega röng. Við sem ólumst upp við Klambratún höfum sum hver rjátlað á milli þessara tveggja nafna. Yngri kynslóðir þekka vart annað.

Klambratún er svo sem ágætt nafn. Hefur tengsl við upprunann. Ég sé samt enga þörf á að breyta grónum nöfnum enn og aftur. Miklu skynsamlegra væri fyrir nýjn borgarstjórnarmeirihluta að vinna að fjármálum borgarinnar og stefnumótun. 

Annars er ótrúlegt hvað lítið kemur frá nýjum borgarstjóra, rétt eins og hann sé slakur PR maður fyrir borgina. Það eina sem hann gerir er eitthvað sem sáralitlu máli skiptir. Þegar kemur að alvöru mála sendir hann Dag.


mbl.is Klambratún að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Að laga moldarhauginn á Lækjartorgi og festa hið rétta nafn á Klambratún er ekki lítið mál Sigurður og það er gengið í verkin strax. Fjármálin eru ekki einu stóru málin. Mér finnst óþarfi að gera lítið úr Jóni og félögum korteri eftir kosningar og tala niður til hans með þeim hætti sem þú gerir. Mér finnst hann byrja mjög vel í sínu starfi. Ég er viss um að það er verið að vinna að fjármálunum líka og vitleysa að hann sendi Dag í stóru verkin. Var ekki Jón að veiða lax í Elliðaá um daginn?

Guðmundur St Ragnarsson, 8.7.2010 kl. 16:57

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Stundum skipta smáir hlutir máli. Er við ekki búin að fá all góðan skammt af stórum málum ?

Finnur Bárðarson, 8.7.2010 kl. 17:30

3 identicon

Það er enginn að segja að það að einbeita sér að "litlum málum" (hvað sem það er nú) útiloki að "stóru málin" (hvað sem það er nú) verið sinnt.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 8.7.2010 kl. 18:06

4 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Stór mál eða lítil mál? Er ekki stóra málið sem Sigurður orðar ekki beint, að  næst minnsti flokkurinn í sveitarstjórn hefur tögl og hagldir í stjórnkerfi borgarinnar? Flokknum var hafnað í kosningum, en líkt og sagt var í spaugi um valdhafa í Austur-Þýskalandi, þá hefði Samfylkingin viljað fá nýja þjóð fyrst sú gamla var ekki nógu hrifin af flokknum

Flosi Kristjánsson, 8.7.2010 kl. 22:55

5 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Ég er bullandi ánægður með að fá Klambratúnið aftur. Alin upp í hverfinu og hef aldrei kunnað við þetta miklatúns nafn. Go on Gnarr

Sigurður Sigurðsson, 9.7.2010 kl. 00:18

6 Smámynd: Guðmundur Ingi Kristinsson

Ég er fæddur 1952 og þekki engann sem kallar þennan blett annað en Klambratún enda er orðið Miklatún um þennan blett ekkert annað en djók. Kærar þakkir Jón að leiðrétta þessa lýgi. Stóra málið er að hætta að ljúga í stóru sem sáu en hvað  er stórt og hvað er smátt?

Guðmundur Ingi Kristinsson, 9.7.2010 kl. 05:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband