Dómsmálaráðherra í slæmum félagsskap

Hver er skoðun dómsmálaráðherrans á því er Seðlabanki og Fjármálaeftirlit hefur afskipti af dómsorði Hæstaréttar og túlkar það þannig að leiðrétta þurfi niðurstöðuna þeim í hag sem tapaði málinu?

Eflaust hefur lögræðingurinn Ragna Árnadóttir ákveðnar skoðanir á þessu. Ég hef hins vegar áhyggjur af því að hún sé í slæmum félagsskap og megi ekki tjá sig gegn þessum afskiptum. Með þessu er fullyrði ég að hún sé á móti „leiðréttingum“ á dómi Hæstaréttar.

Staðreyndin er sú að aðgerðir Seðlabanka og Fjármálaeftirlits verður til þess að fjöldi fólks mun stefna fjármögnunarfyrirtækjum sem og þessum tveimur stofnunum af þeirri einföldu ástæðu að afleiðingin svokallaðra „tilmæla“ þeirra verður lakari fyrir skuldara en hefði dómurinn verið látinn gilda. 


mbl.is Telur flýtimeðferð vel koma til greina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Líklegra er að lántakendur neiti að greiða ef lánastofnanir reikna eftir þeim reglum sem SÍ og FME gáfu út. Þá verða lánastofnanir tekjulitlar þar til dómur hefur fallið, hvenær sem það svo verður. Hætt er við að lánastofnanir lifi ekki þann tíma af.

Gunnar Heiðarsson, 4.7.2010 kl. 08:10

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Merkilegt að það skuli ekki vera rætt við skuldara, að koma til móts við þá sem tóku lán í íslenskum krónum með því að mætast á miðri leið og afnema síðan verðtryggingu í áföngum eða verðtrygga laun til að gjá myndist ekki milla skulda og tekna!

Síðan mætti hagræða í bankageiranum því að þar hefur ekki verið hagrætt!

Sigurður Haraldsson, 4.7.2010 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband