Er skjálftavirknig og órói í Mýrdalsjökli?
18.6.2010 | 08:54

Enn er hiti í gígnum í Eyjafjallajökli og ekki virðist gosinu algjörlega lokið. Grunnir jarðskjálftar mælast við toppgíginn nær daglega og á óróamælum er örlítil hreyfing með þeirri undantekningu að sveiflurnar eru langmestar á mælinum við Láguhvola, austan Mýrdalsjökuls.
Einhvern tímann eftir gosið á Fimmvörðuhálsi bloggaði virtur jarðfræðingur á þá leið er hann sá að upptök nokkurra skjálfta voru í Mýrdalsjökli að nú væri hugsanlega líf að færast í Kötlu. Hvað myndi hann nú segja ef hann mætti mæla fyrir sjálfskipaðri ritskoðun?
Skjálftunum í Mýrdalsjökli hefur fjölgað að mun síðustu vikur og það vekur alltaf grundsemdir leikmanna sem auðvitað hafa ekki hundsvit á tækjum jarðfræðinganna.
Hvaða ályktun má draga af aukinni skjálftavirkni í Mýrdalsjökli? Hvað þýða sveiflurnar í óróamælinum á Láguhvolum, sem vart mælast annars staðar í kringum tvíjökulinn? Er skjálftavirkni og órói í Mýrdalsjökli sem ástæða er til að hafa áhyggjur af?
Auðvitað hef ég ekkert fyrir mér í þessum efnum annað en draumfarir spakra kvenna sem lifa við sultarmörk á atvinnuleysisbótum og annarra forvitra ...
Meðfylgjandi mynd er af eldfjöllunum á Fimmvörðuhálsi, Magni er fjær, Móði er nær.
![]() |
Vatnsborð gígsins er sjóðandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það mun koma skot í SV hlíðum Kötlu og jafnvel tveim öðrum stöðum á landinu en fljótandi kvika er undir öllu landinu og bara það sem af er dagsins hafa 5 skjálftar í röð tæpir tveir riðið yfir og kort Veðurstofunnar er komið með hlaupabólu.
Þór Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 18.6.2010 kl. 14:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.