Kort af Eyjafjallajökli, gossprunga og flóð
15.4.2010 | 08:30
Jarðvísindamenn hafa sett inn á kortið fjölmargar nytsamar upplýsingar fyrir þá sem áhuga hafa. Þarna er toppgígur Eyjfjallajökuls vel merktur. Gossprungan er greinilega tvískipt. Ég hef svo bætt við flóðinu úr báðum hlutum hennar, annars vegar til norðurs og hins vegar til suðurs.
Jökullinn er vinsæll til útivistar. Á hann hef ég merkt helstu gönguleiðina yfir hann, svokallaða Skerjaleið. Hún er kennd við Sker sem eru í norðvestanverðum jöklinum og er gömul gossprunga.
Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls er þarna merkt. Á Hálsinum má sjá gömlu gosstöðvarnar. Einnig er Steinsholtsjökull merktur inn á kortið.
Að lokum er ekki úr vegi að benda á allan þann fróðleik sem hægt er að hafa á vef Jarðvísindastofnunar, en slóðin þar er http://www.jardvis.hi.is/page/jardvis_eyjogos.
Smöluðu búfé í öskufalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.