Fín mynd, rangur myndatexti

527925.jpgMyndin sem fylgir þessari frétt er ekki af Markarfljóti né neinu í nágrenni þess.

Myndin er tekin við þjóðveginn og horft er til Núps ofan við Þorvaldseyri og þetta er líklegast Svaðbælisáin sem ruddist svo ofsalega fram í dag. Líklega um 20 km frá Markarfljóti.

Í myndatextanum segir: „Seinna hlaupið er komið að Markafljótsbrúnni.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem mbl.is klúðrar myndatextum eða myndum. Hvort tveggja er afar undarlegt vegna þess að hjá Mogganum starfa svo margir góðir ljósmyndarar. Alveg óþarfi er að klúðra myndum þeirra.

Kl. 21:21 var búið að breyta um mynd. 


mbl.is Hlaupið komið að Markarfljótsbrúnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 14.4.2010 kl. 20:55

2 Smámynd: Börkur Hrólfsson

Er þá búið að skifta um mynd núna, Kl. 21:20 ??

Börkur Hrólfsson, 14.4.2010 kl. 21:21

3 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þetta er smá mál, örlítil fljótfærni hjá Mogganum. Allt komið í lag.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 14.4.2010 kl. 21:37

4 Smámynd: Skúli Víkingsson

Það er ekki vanþörf á leiðrétta villur í fjölmiðlum sem stafa af bágborinni landfræðiþekkingu.  Þú átt þakkir skyldar Siggi fyrir margvíslegan fróðleik og leiðréttingar sem frá þér hafa komið í sambandi við eldsumbrotin undanfarið.

Skúli Víkingsson, 15.4.2010 kl. 09:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband